Fréttablaðið - 09.03.2004, Blaðsíða 32
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Öfugur endi
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
F
í
t
o
n
F
I
0
0
8
9
5
1
Frábær bók um lífeyrismál og eftirlaunasparnað
Loksins er komin út bók sem fjallar um lífeyrismál og eftirlaunasparnað, málefni sem
varðar okkur öll. Verðmætasta eignin er í senn aðgengileg og skemmtileg aflestrar.
Fyrirhyggja í lífeyrismálum er nauðsynleg og þess vegna á bókin erindi til allra þeirra
sem vilja fara trausta leið að fjárhagslegu öryggi. Bókin er fyrir fólk á öllum aldri
– ekki síst ungt fólk – og ætti að vera til á öllum heimilum. Verðmætasta eignin er
bók sem allir ættu að lesa.
Bókin fæst í útibúum Íslandsbanka um allt land og hjá Íslandsbanka-Eignastýringu,
Kirkjusandi. Hægt er að panta bókina hjá Þjónustuveri Íslandsbanka í síma 440 4000.
Einnig er bókin til sölu í bókabúðum Pennans-Eymundsson, hjá Máli og Menningu og hjá
Bóksölu stúdenta.
„Frábær samantekt um lífeyrissjóði og lífeyris-
sparnað. Gunnar gerir flókið viðfangsefni aðgengi-
legt og auðskilið. Skemmtilesning sem allir eiga að
renna augum yfir. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.“
Ásmundur Stefánsson, ríkissáttasemjari og
fyrrverandi forseti ASÍ
„Það er ljóst að hér hefur verið unnið mikilvægt starf
um málefni þar sem við Íslendingar stöndum öðrum
þjóðum framar. Höfundur hefur unnið gott verk og
afraksturinn er vel samsett og upplýsandi bók sem
ætti að vera til á öllum heimilum.“
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans
„Ég get hiklaust mælt með þessari bók. Fyrirhyggja í
lífeyrismálum er nauðsynleg og þess vegna er bókin
sérstaklega kærkomin fólki á öllum aldri. Kærar
þakkir fyrir góða bók sem er í senn aðgengileg og
skemmtileg aflestrar.“
Hrafn Magnússon,
framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
Margir hafa eflaust haft af þvímiklar áhyggjur að það vantaði
háskóla á Vestfjörðum, en frómur
þingmaður hefur lagt fram þings-
ályktunartillögu til að bæta úr því.
Best væri ef það væri viðskipta-
háskóli. Þeir eru nú aðeins þrír á
landinu bláa. Svo má færa fyrir því
gild rök að það vanti háskóla á Aust-
fjörðum, í Húnavatnssýslum og í
Biskupstungum. Háskólafaraldurinn
er svo sannarlega af hinu góða og
hefur blásið lífi í annars dauð svæði
– árangursrík byggðastefna. Grunn-
skólarnir virðast þó ekki jafn spenn-
andi í augum þeirra sem öllu ráða,
að minnsta kosti ekki ef marka má
árangur og getu íslenskra grunn-
skólabarna samanborið við útlöndin.
Ævinlega þegar samanburðartölur
berast erlendis frá kemur landinn
svo feikilega vel út. Hann er bjart-
sýnastur allra, hamingjusamastur,
duglegastur, jafnréttissinnaðastur,
næstum því ríkastur og flottastur.
Maður brosir í kampinn og hugsar
með sér – áfram Ísland – og heldur
sína leið út í hið fullkomna, íslenska
samfélag. Því er það svo mikið
reiðarslag þegar listar berast utan úr
heimi þar sem Frónverjinn lendir
neðarlega og situr meðal skussa. Það
er jafnvel svo leiðinlegt að bjartsýn-
ir og hamingjusamir leiða málið hjá
sér.
Þótt grunnskólakrílin séu
kannski neðarlega á alþjóðlegum list-
um þegar reikningskunnátta og aðrir
hæfileikar íslenskra pottorma eru
mældir verðum við fljótlega efst á
heimslista yfir háskóla miðað við
höfðatölu og fyrr en varir verður
annar hver Íslendingur viðskipta-
fræðingur og þá eigum við heimsmet
í viðskiptagúrúum miðað við hausa-
töluna fínu.
Hvernig væri nú að stefna að því
að verða efstir á listum yfir glæsi-
legustu grunnskóla veraldar? Svo
ekki sé minnst á framhaldsskóla og
þá væri nú lag að byrja á Vestfjörð-
um. Þar ku vera kominn nemenda-
kvóti í menntaskólanum og svo virð-
ist sem tugir ólöglegra nemenda
stundi þar nám, ef marka má leyfi-
legan námsmannafjölda þar. Á sandi
byggði heimskur maður hús, trölluð-
um við eitt sinn á kristilegum æsku-
lýðsfundum og við getum trallað enn
því fátt er jú heimskulegra en að
byrja á öfugum enda.