Fréttablaðið - 11.03.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 42
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 38
Sjónvarp 44
FIMMTUDAGUR
egypskir litir ● júníform
▲
SÍÐUR 26-27
tíska o.fl.
Fann jakkann í
Kaupmannahöfn
Elva Barkardóttir:
● páskaferðir seljast upp ● langvarandi brúnka
▲
SÍÐUR 28-29
ferðir o.fl.
Á göngu suður
í Evrópu
Steinunn Harðardóttir:
ÚRSLITAKEPPNIN BYRJAR Fyrstu
leikirnir í úrslitakeppni Intersport deildar
karla í körfubolta verða í kvöld klukkan
19.15. Í Keflavík taka heimamenn á móti
Tindastóli en í Stykkishólmi mætast
Snæfell og Hamar.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ENN OG AFTUR HVASSVIÐRI sunnan
og vestan til en hægari vindur á Norðurlandi.
Nú má búast við að það fari að sjást til sólar
nema þó á Suðausturlandi. Áfram hlýtt og
lægir um helgina. Sjá síðu 6.
11. mars 2004 – 70. tölublað – 4. árgangur
DEILT UM SUNDABRAUT Enn hefur
ekki verið tekin endanleg ákvörðun um
legu Sundabrautar. Mikill kostnaðarmunur
er á þeim tveimur leiðum sem valið
stendur um. Sjá síðu 4
KREFJAST FRAMSALS Íslensk stjórn-
völd reyna að fá dæmdan íslenskan dreng
framseldan frá Bandaríkjunum. Utanríkis-
ráðherra er mjög ósáttur við samskiptin við
Texas-ríki. Sjá síðu 4
FLESTIR OFFITUSJÚKLINGAR
UNGIR Fjölmennasti hópur offitusjúk-
linga sem kemur á Reykjalund er á þrítugs-
aldri. Forsvarsmenn Reykjalundar biðja um
auknar fjárveitingar. Sjá síðu 6
MÁL GEGN FASTEIGNASALA
Teiknari kveðst hafa tapað 9,5 milljónum
króna í viðskiptum sínum við fyrrverandi
fasteignasala. Hann höfðaði mál sem
verður dómtekið í næstu viku. Sjá síðu 10
SHARON Í ÞINGINU
Ísraelar hafa ekki sótt um aðild að ESB og
fulltrúi ESB telur fulla aðild óhugsandi.
Ísraelar og ESB:
Vilja aðild
TEL AVIV, AP Um það bil þrír af
hverjum fjórum Ísraelum telja að
Evrópusambandið halli á Ísrael í
átökunum við Palestínumenn en
þó vilja 60% þeirra að Ísrael verði
eitt af aðildarríkjum Evrópusam-
bandsins samkvæmt nýrri ísrael-
skri skoðanakönnun.
Mina Tzemach, yfirmaður Da-
haf stofnunarinnar sem gerði
könnunina, sagði Ísraela sjá efna-
hagslega kosti nánari tengsla við
Evrópu en fara í vörn gagnvart
gagnrýni forystumanna í álfunni.
Könnunin var gerð að beiðni
Evrópusambandsins. ■
VIÐSKIPTI Miklar breytingar verða
gerðar á stjórn Eimskipafélags-
ins á næsta aðalfundi. Fyrir fund-
inum liggur tillaga um að breyta
nafni félagsins í Burðarás. Eim-
skipa- félagið verður skipafélag
í eigu Burðaráss sem mun verða
fjárfestingarfélag. Markmið
Burðaráss verður að taka þátt í
fjárfestingarverkefnum innan-
lands og utan. Miklar breytingar
verða því á starfsemi félagsins.
Verkefni þeirrar stjórnar sem nú
situr var að undirbúa félagið und-
ir þessar breytingar. Mat manna
er að því verki sé lokið. Því sé
leitað annarra kosta fyrir kom-
andi verkefni.
Ekki er búið að ganga frá því
hverjir setjast í stjórn félagsins,
en því verki þarf að ljúka um
helgina. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafa stærstu
eigendur Eimskipafélagsins borið
víurnar í nokkra einstaklinga um
stjórnarsetu. Meðal þeirra sem
áhugi er á að fá inn í stjórn Burða-
ráss er Ólafur Jóhann Ólafsson,
rithöfundur og einn stjórnenda
AOL Time Warner. Ólafur Jóhann
hefur unnið með Björgólfi Guð-
mundssyni í Eddu miðlun. Þá eru
inni í myndinni Friðrik Sophus-
son, forstjóri Landsvirkjunar og
Friðrik Pálsson, fyrrum stjórnar-
formaður Símans. Friðrik gjör-
þekkir rekstur sölusamtakanna
SH og SÍF sem mun verða eitt af
stærri verkefnum Landsbankans
og Burðaráss í náinni framtíð.
Friðrik Sophusson situr í stjórn
Pharmaco og Björgólfsfeðgar
þekkja vel til starfa hans. Auk
þess að vera ánægðir með sam-
starfið er talið að Björgólfsfeðgar
sjái mikla kosti í því ef ráðist
verður í verkefni í Austur-Evrópu
að hafa fyrrverandi fjármálaráð-
herra í stjórninni. Þar um slóðir
er slíkt mikils metið.
Flugleiðir eiga 10 prósenta
hlut í Eimskipafélaginu. Áhugi er
á því að Sigurður Helgason setjist
í stjórn. Hann hefur víðtæka
reynslu af alþjóðlegum við-
skiptum. Áhersla er á slíka þekk-
ingu og hefur samkvæmt heimild-
um einnig verið leitað til banka-
manns í Bretlandi um að taka
sæti í stjórninni. Þór Kristjáns-
son, aðstoðarforstjóri
Pharmaco, mun líklega sitja
áfram í stjórn. Þá er talið líklegt
að Andri Sveinsson, bankaráðs-
maður í Landsbankanum og
starfsmaður Samsonar, muni taka
sæti í nýrri stjórn.
haflidi@frettabladid.is
Skipt verður um
stjórn í Eimskipi
Stefnt er að því að skipta um stjórn í Eimskipafélaginu á næsta aðal-
fundi. Nafni félagsins verður breytt í Burðarás. Skipafélagið Eimskip
verður ein af eignum Burðaráss sem mun leggja áherslu á fjárfestingar.
SIGIÐ UM BORÐ Í BALDVIN ÞORSTEINSSON EA Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti nokkra af skipverjum Baldvins Þorsteinssonar um borð í skipið í gær. Skipverjarnir voru að meta
ástand skipsins og undirbúa það undir að vera dregið á flot, en það strandaði í Skarðsfjöru aðfaranótt þriðjudags. Óvíst er hvort reynt verður draga skipið af strandstað í dag en ef það
verður ekki gert mun norskt dráttarskip, sem er á leið á strandstað, reyna að bjarga skipinu á morgun. Sjá nánar bls. 2
M
YN
D
/A
P
● 58 ára í dag
Kristín Steinsdóttir:
▲
SÍÐA 22
Hittir barnabarnið
í fyrsta sinn
● rekur kærleikslínu
Júlíus Júlíusson:
▲
SÍÐA 46
Stórhugi
á Dalvík
VERKEFNI LOKIÐ
Stjórn Eimskipafélagsins sem tók við eftir
hluthafafund í október, var falið að selja
sjávarútvegshluta fyrirtækisins og undirbúa
félagið undir ný verkefni. Eigendur telja
verki stjórnarinnar lokið og stefna að því
að endurnýja stjórnina að mestu leyti í
samræmi við breytt eðli félagsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M