Fréttablaðið - 14.03.2004, Blaðsíða 1
Sálarlíf Íslendinga ekki beysið
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 42
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 38
Sjónvarp 44
SUNNUDAGUR
BEBOP Á BORGINNI Hin rafmagn-
aða bebop-hljómsveit Óskars Guðjóns-
sonar heldur tónleika á vegum djass-
klúbbsins „Múlans“ á Hótel Borg í kvöld
klukkan 21. Á efnisskrá hljómsveitarinnar
eru bebop-lög eftir Miles Davis, Charlie
Parker, Thelonious Monk, Bud Powell og
fleiri.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
14. mars 2004 – 73. tölublað – 4. árgangur
HRYÐJUVERKIN Á SPÁNI Fimm
menn sem taldir eru tengjast sprengjuárás-
unum í Madríd á miðvikudag voru hand-
teknir í gær. Stjórnvöld á Spáni eru sökuð
um að leyna upplýsingum um tilræðið.
Málið gæti haft mikil áhrif á úrslit kosning-
anna í dag. Sjá síðu 2
BJÖRGUN REYND Í DAG Stefnt er að
því að ná Baldvini Þorsteinssyni úr Skarðs-
fjöru í dag. Veður hamlaði undirbúningi
björgunaraðgerða á strandstað í gær. Sjá
síðu 4
LAUNASAMNINGAR LÆKNA Laun
lækna á landsbyggðinni hafa hækkað
óeðlilega mikið að mati ríkisendurskoðun-
ar. Stofnunin telur að auka beri aðhald við
gerð launasamninga. Sjá síðu 6
SKREF Í ÁTT TIL LÝÐRÆÐIS Síð-
ustu ár hafa leiðtogar arabaríkja gefið
landsmönnum sínum fyrirheit um aukið
lýðræði og bætt mannréttindi. Lítið hefur
þó orðið um efndir. Sjá síðu 8
TETRA ÍSLAND Allt hlutafé í Tetra Ís-
landi verður afskrifað og Lands-
bankinn og Lýsing eignast meiri-
hluta í félaginu ef samningar nást
um fjárhagslega endurskipulagn-
ingu félagsins. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins gera áætlan-
ir, sem þegar hafa verið undirrit-
aðar, ráð fyrir að 115 milljónir af
340 milljóna kröfu Lýsingar
breytist í hlutafé og 122 milljónir
af 204 milljóna kröfu Landsbank-
ans verði hlutafé.
Ef þetta nær fram að ganga er
gert ráð fyrir að flestir kröfu-
hafar fái um 40% greitt upp í
kröfur sínar en samningarnir eru
háðir áframhaldandi samningum
Tetra Íslands við ríki og borg um
rekstur tetra-kerfis.
Orkuveita Reykavíkur er
stærsti hluthafinn í Tetra Íslandi
með tæplega 45% hlut að nafn-
virði tæplega 257 milljónum
króna. Hlutur Landsvirkjunar er
173,7 milljónir að nafnvirði en
Motorola og Tölvumyndir eiga
einnig hluti í félaginu. Allt þetta
hlutafé tapast og verður afskrifað
að fullu.
Landsvirkjun og Orkuveitan
munu leggja til 50 milljónir hvor í
nýju hlutafé og munu því eiga
tæplega 23% hvort að aflokinni
endurskipulagningu.
Landsbankinn verður stærsti
hluthafinn með um sextíu milljón-
ir að nafnvirði en Lýsing mun eiga
litlu minna en það.
Tetra Ísland hefur átt í miklum
rekstrarerfiðleikum að undan-
förnu og hefur stjórn félagsins
veitt forráðamönnum þess heim-
ild til að leita nauðasamninga. Ná-
ist samkomulag við lánardrottna
um niðurfellingu skulda kemur
ekki til þess að það úrræði verði
nýtt. ■
Sálarlíf Íslendinga er ekki beysið ef marka má nýja skýrslu sem fagráð um heilsueflingu hefur unnið
fyrir Landlæknisembættið. Þunglyndi, stress, fábreytni, einstaklingshyggja, ofgnótt, rótleysi og aga-
leysi er meðal þess sem talið er geta unnið gegn góðri heilsu landans. SÍÐA 24–25
▲
Allt hlutafé í Tetra
Ísland afskrifað
Orkuveitan afskrifar 257 milljónir að nafnvirði og Landsvirkjun 173 milljónir. Landsvirkjun og
Orkuveitan leggja 50 milljónir króna hvor í viðbót í fyrirtækið.
Jesúmynd Mels Gibson:
Prestar
ósammála
MÁLÞING Myndin veltir sér upp úr
því aumlegasta og billegasta sem
til er í þessum bransa,“ sagði Dr.
Gunnar Kristjánsson, prófastur á
Reynivöllum í Kjós. Ljóst er að ís-
lenska presta greinir mjög á um
gildi myndarinnar.
Nánar á síðum 20 og 21
AP
/A
N
JA
N
IE
D
R
IN
G
H
AU
S
HÆGVIÐRI FRAMUNDAN Eitthvað
mun þó hreyfa vind sunnan og austantil
en hann gengur smám saman niður.
Úrkoma austantil og gæti rignt eitthvað
annars staðar. Sjá síðu 6.
Nafni Baldurs Guðnasonar
skýtur hvað eftir annað
upp kollinum í viðskiptalíf-
inu. Nýverið keypti hann í
félagi við aðra Ingvar
Helgason og Bílheima auk
fransks matvælafyrirtækis.
Á fullri ferð í
fjárfestingum
▲
SÍÐA 16 og 17
Hryðjuverkin
í heiminum
Um 190 manns létust í hryðju-
verkunum á Spáni á fimmtudag.
Fjögur önnur hryðjuverk af þessari
stærðargráðu hafa verið framin í
heiminum á síðustu sex árum.
LÁTINNA MINNST Í MADRÍD Börn kveiktu á kertum fyrir utan El Pozo lestarstöðina í Madríd í gær þar sem fórnarlamba hryðjuverk-
anna á fimmtudaginn var minnst. Sjá nánar bls. 2.
SÍÐA 26 og 27
▲
Friðrik Þór Friðriksson:
Milljarða í
myndir
SUNNUDAGSVIÐTAL „Ef allt fer vel
gefst manni annað tækifæri í líf-
inu,“ segir Friðrik Þór Friðriksson
kvikmyndaleikstjóri í viðtali við
Fréttablaðið. Hann freistar þess
nú að stýra fyrirtæki sínu, Ís-
lensku kvikmyndasamsteypunni,
frá gjaldþroti. Friðrik hyggst snúa
vörn í sókn. „Við erum að búa fyr-
irtækið undir það að verða eitt
stærsta kvikmyndafyrirtækið á
Norðurlöndum og á þessu ári ætl-
um við að gera myndir fyrir þrjá
og hálfan milljarð.“
Nánar á síðum 22 og 23.