Fréttablaðið - 15.03.2004, Qupperneq 1
● hættur að koma fram
Luciano Pavarotti:
▲
SÍÐA 26
Kveður óperuna
MADRID, AP Kjósendur á Spáni
refsuðu hægri stjórn landsins í
þingkosningunum í gær. Lýðflokk-
urinn, sem hefur setið einn við
stjórnvölinn, missti verulegt fylgi.
Þegar 95% atkvæða höfðu
verið talin hafði Lýðflokkurinn
hlotið 148 þingsæti en Sósía-
listaflokkurinn, sem er leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, hafði
fengið 164 þingsæti.
Í síðustu kosningum árið 2000
hlaut Lýðflokkurinn 183 þingsæti
en Sósíalistar 125, þannig að hlut-
föllin hafa heldur betur snúist við.
Til þess að fá hreinan meiri-
hluta á þinginu þarf stjórnmála-
flokkur að fá 176 þingsæti, þannig
að svo virðist sem mynda þurfi
samsteypustjórn nú að loknum
kosningum.
Kosningarnar voru haldnar í
skugga sprengjuárásanna í Madríd á
fimmtudaginn var, þar sem 200
manns fórust og 1500 særðust. Fyrir
kosningarnar höfðu allar skoðana-
kannanir bent til þess að Lýðflokk-
urinn myndi vinna yfirburðasigur.
Eftir handtöku fimm manna,
sem taldir eru tengjast samtökum
herskárra múslima, daginn fyrir
kosningar virðast margir kjósend-
ur hafa komist að þeirri niður-
stöðu að ríkisstjórn Spánar beri
þá sök að hafa ögrað múslimum
með þátttöku sinni í stríði Banda-
ríkjanna og fleiri ríkja gegn Írak.
Mikill meirihluti Spánverja var
andvígur þátttöku í stríðinu, þótt
stjórnvöld hafi staðið þétt við bak-
ið á Bandaríkjamönnum.
Kjósendur virðast hafa
styrkst enn frekar í þessari af-
stöðu í gær eftir að myndband
kom fram, þar sem fullyrt er að
al-Kaída samtökin beri ábyrgð á
árásunum í Madríd. ■
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MÁNUDAGUR
MINNINGABÓK VEGNA
HRYÐJUVERKANNA Í MADRÍD Í
dag gefst fólki kostur á að rita nafn sitt í
minningabók um fórnarlömb hryðjuverka-
árásarinnar í Madríd. Minningabókin verður
á skrifstofu ræðismanns Spánar, Þorgeirs
Baldurssonar, milli klukkan 11 og 13.
Spænska ræðismannsskrifstofan er til húsa
í prentsmiðjunni Odda Höfðabakka 3-7.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJARTVIÐRI í Reykjavík og vestantil á
landinu. Úrkoma austlantil og þar hreyfir
eitthvað vind. Gæti dropað víða síðdegis.
Milt. Sjá síðu 6.
15. mars 2004 – 74. tölublað – 4. árgangur
● leið eins og skólastelpu
Jóhann Ingi Stefánsson:
▲
SÍÐA 30
Hitti Schwarz-
enegger
Magnús Geir Þórðarson:
▲
SÍÐA 18
Byggir upp leikhús
HRYÐJUVERKIN Á SPÁNI Al-Kaída
lýsir yfir ábyrgð á sprengjuárásunum í Ma-
dríd. Lögreglan á Spáni treystir sér ekki til
að fullyrða að myndbandið sé ófalsað.
Þjóðverjar vilja kalla saman neyðarfund í
Evrópusambandinu. Sjá síðu 2
DRÁTTURINN HAFINN Norski drátt-
arbáturinn Normann Mariner byrjaði í gær-
kvöldi að draga Þorstein Baldvinsson EA af
strandstað í Meðallandsfjöru. Áður var 100
tonnum af vatni og sjó dælt úr skipinu og
til stóð að losa loðnu úr skipinu. Sjá síðu 4
FRELSIÐ SKERT Félagsmálaráðherra
segir ekki útilokað að setja þurfi laga-
ramma til að þrengja að íslensku viðskipta-
lífi. Ríkisstjórninni beri skylda til að sjá til
þess að þróunin sé sem best fyrir land og
þjóð. Sjá síðu 6
EVRÓPUSAMBANDIÐ Naumur meiri-
hluti vill ESB aðild en flestir vilja kanna
málið í aðildarviðræðum. Áhugi á evrunni
er lítill hjá almenningi en mikill hjá fyrir-
tækjum. Langflestir telja EES samninginn
hafa verið til góðs. Sjá síðu 8
MOSKVA, AP Vladimir Pútín, forseti
Rússlands, vann yfirburðasigur í
forsetakosningunum þar í landi í
gær. Þegar talinn hafði verið
helmingur atkvæða hafði Pútín
hlotið 69,3 prósent þeirra.
Kosningaþátttakan fór vel yfir
þau 50 prósent sem þurfti til að
kosningarnar teldust gildar. Þegar
90 mínútur voru eftir þangað til
kjörstöðum var lokað tilkynntu
kjörstjórar að 61 prósent kosninga-
bærra manna væru búnir að greiða
atkvæði.
„Ég kaus Pútín vegna þess að
hann sigrar hvort sem er og hver
væri þá tilgangurinn með því að
kjósa einhvern annan?“ sagði
Jelena Tsjebakova, rúmlega
þrítugur endurskoðandi í Moskvu
þar sem hún var mætt á kjörstað
snemma dags í gær.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagðist í gær hafa
áhyggjur af því hvernig fram-
kvæmd forsetakosninganna í Rúss-
landi væri háttað. Hann hvatti
rússnesk stjórnvöld til þess að
„standa sig betur“ svo lýðræðið
gæti virkað eins og til er ætlast.
Meira en 500 erlendir eftirlits-
menn fylgdust með kosningunum,
þar á meðal fulltrúar frá Evrópu-
ráðinu og Öryggis- og samvinnu-
stofnun Evrópu. Nokkrir frambjóð-
endur stjórnarandstöðunnar létu
einnig eigin eftirlitsmenn fylgjast
með framkvæmd kosninganna. ■
Hægri stjórnin
á Spáni fallin
Hægri stjórnin á Spáni missti þingmeirihluta sinn í gær. Tengsl her-
skárra múslima við sprengjuárásirnar í Madríd virðast hafa haft af-
gerandi áhrif á afstöðu kjósenda.
Forsetakosningar í Rússlandi:
Pútín situr áfram
MANEZH BRENNUR
Sýningarbyggingin Manezh í Moskvu brann
í gærkvöldi stuttu eftir að forsetakosning-
unum í Rússlandi lauk.
Eldur á Rauða torginu:
Sögufræg
bygging
brann
AP, MOSKVA Alvarlegur eldur braust
út á sunnudagskvöldið í sýningarsal
við Rauða torgið nokkrum mínútum
eftir að öllum kjörstöðum fyrir for-
setakosningarnar í Rússlandi var
lokað.
Yfirvöld í Moskvu sögðu að eld-
urinn væri á fimmta stigi, sem er al-
varlegasti flokkurinn. Tveir
slökkviliðsmenn dóu þegar þak
hrundi ofan á þá.
Byggingin sem kviknaði í er frá
18. öld og er kölluð Manezh. Hún
hefur verið notuð sem æfingahöll
fyrir reiðkappa og er í nokkurra
metra fjarlægð frá Kreml. Bygg-
ingin hefur mikið sögulegt gildi og
er notuð fyrir sýningar og við-
skiptasamkomur.
Talið er að skammhlaup í raf-
magni hafi valdið brunanum. ■
● skipulag við Mýrargötu ● klósetttískan
▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Karmískur sófi og
skyrtuveggfóður
Margrét Lóa Jónsdóttir:
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
● nýráðinn til Akureyrar
Aristide til
Jamaíka
HAÍTÍ Jean-Bertrande Aristide, fyrr-
verandi forseti á Haítí, er á leiðinni
til Jamaíka þar sem hann verður í
nokkrar vikur áður en hann fær
varanlegt hæli annars staðar, hugs-
anlega í Suður-Afríku.
Fyrir tveimur vikum fór
Aristide frá Haítí til Mið-Afríkulýð-
veldisins, eftir að uppreisnarmenn
höfðu steypt honum af stóli. Þar
kom til hans í gær nefnd banda-
rískra og jamaískra embættis-
manna, sem eiga að fylgja honum til
Jamaíka.
Fljúga átti af stað seint í gær-
kvöldi. ■
GREIÐIR ATKVÆÐI
Þessi rússneska kona greiddi atkvæði á
kjörstað í þorpinu Bolsjoje Ufimje, vestan
til í Rússlandi. Úrslitin komu fáum á óvart.
TAUGIN DREGIN Stórvirkar vinnuvélar voru notaðar til að draga taugina sem notuð var til að draga Baldvin Þorsteinsson EA í gærkvöld.
Þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær miðaði björguninni vel og hafði skipið færst um tvær skipslengdir í átt til sjávar. Sjá nánar bls. 4
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R