Fréttablaðið - 20.03.2004, Page 1

Fréttablaðið - 20.03.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Kvikmyndir 58 Tónlist 44 Leikhús 44 Myndlist 44 Íþróttir 56 Sjónvarp 60 LAUGARDAGUR DAGURINN Í DAG 20. mars 2004 – 79. tölublað – 4. árgangur ÁR FRÁ INNRÁS Ár er liðið síðan inn- rásin í Írak hófst. Ógnarstjórn Saddams var hrundið frá völdum en í staðinn kom óöld hryðjuverka og glæpa. Sjá síðu 4 RÆTT VIÐ STARFSFÓLK Viðræður eru hafnar milli heilbrigðisráðuneytisins og starfsfólks endurhæfingarþjónustu fjöl- fatlaðra í Kópavogi um að starfsfólkið taki að sér rekstur deildarinnar. Sjá síðu 2 MEÐ EIMSKIP Í VÍKING Björgólfur Thor Björgólfsson, nýkjörinn stjórnar- formaður Burðaráss, móðurfélags Eim- skipafélagsins, stefnir í stórfellda erlenda fjárfestingu. Sjá síðu 6 24 UNGMENNI LÉTUST Þjóðarsorg var lýst yfir í Finnlandi eftir umferðarslys þar sem hópferðabifreið lenti í hörðum árekstri við drekkhlaðinn flutningabíl. Sjá síðu 8 Alsæll með enska boltann ● sextán hafa verið misnotaðar kynferðislega Angela Shelton: ▲ SÍÐA 20 Talaði við þrjátíu og tvær alnöfnur ● hverjir eru vinsælustu skemmtikraftarnir? Skemmtanalífið: ▲ SÍÐA 22 Árshátíðir út um allan bæ ● á ársafmæli íraksstríðsins Valur Grettisson: ▲ SÍÐA 18 Kaldhæðin mótmæli Magnús Ragnarsson, leikari og framkvæmda- stjóri Skjás eins, er kominn með boltann – enska boltann. Ljóst er að framkvæmdastjór- inn leggur áherslu á sóknarleik í starfsemi fyrirtækisins. ▲SÍÐA 24 og 25 toyota prius ● afmælissýning lexus Vill engar druslur lengur bílar o.fl. Marta Halldórsdóttir: ▲ SÍÐUR 40 og 41 VEÐRIÐ Í DAG JAFNDÆGUR AÐ VORI er í dag. Veðr- ið verður einna best í höfuðborginni, sæmi- lega bjart og skaplegur vindur. Snjókoma og strekkingur fyrir norðan. Sjá síðu 6. Magnús Ragnarsson: Hverjir eiga séns í Ólaf? Forsetakosningar eru á næsta leiti, en ekki er þó útséð með fleiri framboð. Mun Ólafur þurfa að berjast fyrir endurkjöri? Hverjir gætu velgt Ólafi undir uggum? STÓRLEIKUR Í GRINDAVÍK Grinda- vík og Keflavík mætast í undaúrslitum Intersport-deildarinnar í körfubolta klukkan 16. Fjórir leikir verða í Remax-deild kven- na. Fram mætir ÍBV klukkan 14. Þrír leikir verða klukkan 16. Þá tekur Grótta KR á móti FH, KA/Þór sækir Val heim og Stjarn- an Víking. SÍÐA 28 og 29 ▲ Forsetakosningar: SAMHERJAMENN ÞAKKA HJÁLPINA Samherjamenn buðu dómsmálaráðherra og tíu mönnum frá Landhelgisgæslunni til hádegis- verðar um borð í Vilhelmi Þorsteinssyni í þakklætisskyni í gær. „Við áttum saman góða stund þar sem við snæddum djúpsteiktan þorsk, skötusel og lúðu. Ákveðið var að hittast aftur síðar til að fara í gegnum björgun Baldvins Þorsteinssonar úr fjörunni,“ segir Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja, að hádegisverðinum loknum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R Hættulegir almenningi Lögregla telur sakborninga í líkfundarmálinu hafa beitt óvenjuharkalegum aðferðum við glæpi sína. Rannsókn málsins er á lokastigi. Niðurstöður krufningar leiddu í ljós að Vaidas Jucevicius lést vegna þarmastíflu en ekki vegna eitrunar af völdum morfínlyfsins. LÍKFUNDUR Héraðsdómur Reykja- víkur úrskurðaði þrjá sakborninga í líkfundarmálinu í Neskaupstað í svokallaða lausagæslu í gærkvöld. Samkvæmt úrskurðinum verða mennirnir áfram í gæsluvarðhaldi, en nú sem afplánunarfangar fram til 30. apríl næstkomandi. Lögreglan taldi nauðsynlegt vegna almannahagsmuna að sak- borningarnir yrðu áfram í gæslu- varðhaldi þó þess þyrfti ekki vegna rannsóknar málsins.Í ljósi þess fór ríkislögreglustjóri fram á að sak- borningarnir þrír sitji í varðhaldi þar til dómur fellur. Lögregla segir aðferðir þeirra hafa verið óvenju harkalegar og að þeir eigi yfir höfði sér þunga dóma. Niðurstöður krufningar leiddu í ljós að Vaidas Jucevicius, sem fannst í höfninni við netagerðar- bryggjuna í Neskaupstað miðviku- daginn 11. febrúar, lést af þarma- stíflu vegna fíkniefnapakkn- inganna er hann bar innvortis. Rannsókn málsins er á lokastigi. „Staðfesting liggur ekki fyrir, en grunur er uppi um fíkniefna- tengsl við Litháen og um vitorðs- menn hér á landi. Verið er að skoða hvort nokkrir einstaklingar hér hafi tengst ætlaðri dreifingu og þá hugsanlega hvort fíkniefnainn- flutningur hafi átt sér stað í fleiri tilvikum,“ segir Arnar Jensson hjá ríkislögreglustjóra. Um 400 grömm í 60 plast- hylkjum voru í iðrum unga mannsins þegar lík hans var krufið. Að sögn Arnars er ekki útilokað að maðurinn hafi náð að losa sig við einhvern hluta efnanna með upp- köstum. Tveir þre- m e n n i n g a n n a þeir, Grétar og M a l a k a u s k a s , hafa játað aðild að málinu og gefið ít- arlegar skýrslur sem tekist hefur að sannreyna með ýmsum sönnunar- gögnum. Jónas Ingi neitar stað- fastlega sökum. Fullvíst þykir að Juceviciusi hafi verið gefið morfín- tengda lyfið contalgin einn til tvo síðustu dagana sem hann lifði. Hann virðist þó ekki hafa látist af völdum eitrunar heldur þarmastíflu. Þeir Jónas og Tomas eru taldir hafa vaf- ið líkið inn í plastpoka og síðan inn í gólfteppi og ekið síðan með það til Neskaupstaðar þar sem Grétar beið þeirra. Um miðnætti sunnudagsins 8. febrúar losuðu svo þremenning- arnir líkið úr teppinu á netagerðar- bryggjunni, stungu á það fimm göt til að hleypa úr því lofti og sökktu í höfnina. hrs@frettabladid.is HÆTTULEGIR MENN Grétar Sigurðarson, Tomas Malakauskas og Jónas Ingi Ragnarsson beittu óvenju harkalegum aðferðum. Stóru flokkarnir bæta við sig á kostnað þeirra litlu: Sjálfstæðisflokkur yfir 40 prósent KÖNNUN „Við höfum greinilega sótt í okkur veðrið frá því í síðustu alþingiskosningum og höfum ótví- ræða forystu í fylgi sem er auðvitað gleðilegt,“ segir Einar K. Guðfinns- son, þingflokksformaður Sjálfstæð- isflokks, en samkvæmt skoðana- könnun Fréttablaðsins, sem var gerð í gær, er Sjálfstæðisflokkur kominn með rúmlega 40% fylgi. Samkvæmt þessu fengju sjálf- stæðismenn 26 þingmenn en fengu 22 í síðustu kosningum. Framsókn- arflokkur tapar hins vegar miklu fylgi frá kosningum eða helmingi þingmanna sinna. Samfylkingin bætir lítillega við sig, hvort tveggja frá kosningum og síðustu könnun. Vinstri grænir tapa lítillega frá síðustu könnun en eru talsvert yfir kjörfylgi. Frjálslyndir tapa fylgi og fengju tæp fimm pró- sent atkvæða. Sjá nánar bls. 2 Rannsókn á kynferðis- brotum vatt upp á sig: Tveir menn grunaðir LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögreglu á máli manns sem hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn sex ungum drengum varð til þess að grunur féll á tvo menn um að þeir hefðu gerst sekir um samskon- ar brot. Annar mannanna hefur starfað sem afleysingaprestur hjá þjóðkirkjunni en er ekki starfs- maður hennar núna. „Það vaknaði grunur að um fleiri tilvik væri að ræða. Það er búið að yfirheyra mennina og mál- in eru enn í rannsókn,“ segir Hörð- ur Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Mennirnir þrír eru grunaðir um að hafa sett sig í samband við börn á Netinu, mælt sér mót við þau og brotið gegn þeim kynferðislega. Þó grunur hafi fallið á tvo síðustu mennina við rannsókn á máli þess fyrsta eru ekki tengsl milli mann- anna heldur féll grunur á þá vegna þess að þeir notuðu svipaðar að- ferðir og sá fyrsti við að komast í kynni við börnin. Húsleit var gerð á heimili ann- ars mannanna um hádegisbilið í gær. Það er sá mannanna sem hef- ur þjónað sem prestur. Upp úr því frétti Biskupsstofa af málinu og er fylgst með því þar. Þjóðkirkjan hefur staðið fyrir fræðslu meðal starfsfólks síns og hefur fagráð starfað hjá henni um meðferð kyn- ferðisafbrota um fimm ára skeið án þess að nokkurt mál hafi komið inn á borð til þess. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.