Fréttablaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 36
36 20. mars 2004 LAUGARDAGUR
Ég hef alltaf sagt að Michaeler meira en bara stjörnuleik-
maður, hann leikur fyrir liðið,“
sagði Gerard Houllier, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, á
heimasíðu félagsins eftir sigur á
Portsmouth í vikunni.
„Hvað gera þessi mörk fyrir
Michael?“ spurði Houllier.
„Hvað haldið þið að tvö góð
mörk eins og þessi muni gera
fyrir hann?“
Það er lykilspurningin fyrir
Liverpool og enska landsliðið.
Michael Owen skoraði tvisvar
og lagði upp eitt mark þegar
Liverpool vann Portsmouth 3-0 á
miðvikudag. Stuðningsmenn
Liverpool og enska landsliðsins
vænta þess að hann sé að finna
sitt rétta form að nýju eftir
langa þrautagöngu vegna
meiðsla og annarrar ólukku.
Háleit markmið
„Næsta leiktíð verður sér-
staklega mikilvæg,“ skrifaði
Owen á heimasíðu Liverpool í
fyrrasumar. „Við viljum ná á
toppinn og sigra í deildinni. Við
fáum ekki óteljandi tækifæri til
þess svo okkur verður að takast
þetta fljótlega,“ skrifaði Owen.
„Ég hef leikið í sex eða sjö ár, er
kannski hálfnaður með ferilinn
og hef ekki enn orðið deildar-
meistari.“
Owen hafði ástæðu til að vera
bjartsýnn fyrir þessa leiktíð.
Hann lék mjög vel í fyrra og
skoraði nítján mörk í deildinni
annað árið í röð. „Mér finnst ég
vera í betra formi og sterkari á
þessu stigi leiktíðarinnar en
nokkru sinni fyrr,“ sagði Owen
eftir að hann skoraði fjögur
mörk gegn WBA í lok apríl í
fyrra. „Loksins gengur mér allt í
haginn og þetta eru launin fyrir
mikla vinnu sem ég hef lagt á
mig. Allt er á uppleið. Þetta ger-
ist þrátt fyrir lokakeppni HM í
fyrra sem stytti sumarfríið mitt
verulega. Ég hef ástæðu til að
vera bjartsýnn.“
Ian Rush leit framtíð Owen
sömu augum og sagði eftir leik-
inn gegn WBA að Owen hafi átt
frábæran leik en hafi einnig
leikið mjög vel næstu vikur á
undan. „Fjögur mörk er mjög
gott í hvaða leik sem er, en þetta
sýndi hversu góður leikmaður
Owen er. Ég held að næsta ár
verði líka árið hans. Hann er enn
ungur og verður bara betri og
betri,“ sagði Rush.
Brostnar vonir
Owen byrjaði tímabilið vel.
Hann skoraði sjö mörk í jafn
mörgum deildarleikjum og virt-
ist ætla að fylgja orðum sínum
eftir. Þá dundi ólánið yfir hann
og þrálát meiðsli urðu til þess að
hann lék aðeins tvo leiki með
Liverpool í október, þrjá í nóv-
ember en missti af öllum leikj-
unum í desember. Hann var orð-
inn leikfær að nýju í janúar en
náði ekki að finna taktinn. Owen
var helst í sviðsljósinu fyrir
seinheppni upp við mark
mótherjanna og eftir misheppn-
aða vítaspyrnu í bikarleik gegn
Portsmouth þýddi lítið að þræta
fyrir að hann ætti í mótbyr.
„Mér hefur aldrei liðið verr
en daginn sem við lékum við
Portsmouth. Ég óskaði þess að
leiktíðinni lyki strax þá,“ sagði
Owen. „Ég man að ég hugsaði að
ég vildi að einhver gæfi okkur
fjórða sætið svo við gætum
lokið leiktíðinni þá. Þessi leik-
ur var botninn á ferlinum.
Framkvæmdastjórinn var und-
ir miklum þrýstingi frá utanað-
komandi aðilum og þá klúðraði
ég víti.“
Framhaldið veltur á sæti í
Meistaradeildinni
Owen hefur leikið með Liver-
pool allan sinn feril en fram-
haldið veltur á því hvort félagið
nær að tryggja sér sæti í Meist-
aradeildinni á næstu leiktíð. Við-
ræður Liverpool og Owens um
framlengingu á samningi hófust
í haust en hefur lítið miðað.
Sjálfur hefur Owen slegið úr og
í um hvort hann leiki áfram með
Liverpool.
„Ef við komumst í Meistara-
deildina verður hann örugglega
áfram hjá okkur,“ sagði Steven
Gerrard, fyrirliði Liverpool, við
dagblaðið News of the World í
vetur. „Ef ekki þarf hann að taka
stóra ákvörðun. Hann vill leika í
Meistaradeildinni og það er ekki
flóknara en það.“
Liverpool á enn möguleika á
sæti í Meistaradeildinni á næstu
leiktíð. „Það er erfitt að segja til
um hvað við þurfum af stigum
því önnur félög eiga líka efttir
að tapa stigum,“ sagði Þjóðverj-
inn Dietmar Hamann um mögu-
leika Liverpool. „Við eigum eftir
erfiða leiki, þar á meðal á Old
Trafford og á Highbury. Enn eru
30 stig í pottinum og við þurfum
örugglega meira en 20. Tuttugu
stig gætu dugað en við gætum
þurft 24.“
Með öðrum orðum metur
Hamann stöðuna svo að Liver-
pool þurfi að sigra í átta leikjum
af tíu sem eftir eru. Liverpool á
eftir að leika við Wolves, Black-
burn, Charlton, Fulham, Midd-
lesbrough og Newcastle á Anfi-
eld og Leicester, Arsenal,
Manchester United og Birming-
ham á útivelli.
Leikur best þegar mest á
reynir
„Þið kunnið ekki að meta
Michael Owen, en þið eruð
heppin að hann skuli vera
enskur,“ sagði Sven-Göran
Eriksson landsliðsþjálfari
eftir að Owen hafði skorað
bæði mörk í Englendinga
í 2-1 sigri á Slóvökum í
undankeppni EM. „Ég
er ánægður fyrir
hönd Michaels. Þetta
var góð leið til að
sýna hvernig á að
vera fyrirliði og
hvern-
ig á að
halda upp á 50.
landsleikinn. Enn
og aftur sýndi hann
okkur í mikilvægum
leikjum að hann býr
yfir miklum hæfileik-
um.“
Alan Hansen, fyrrum
leikmaður Liverpool, tók í
sama streng í grein á vefsíðu
BBC. „Sagt er að bestu sóknar-
menn láti það ekki á sig fá þó
þeir skori ekki úr nokkrum fær-
um. Þeir reyna bara aftur,“ skrif-
aði Hansen. „Mér fannst Owen
leika frábærlega. Hann lá í aftas-
ta varnarmanni og hljóp mikið án
bolta. Hann hefur bætt þessa
þætti í leik sínum mjög mikið
síðustu tvö árin.“
Hansen þótti sigur
Englendinga á Slóvökum
haustið 2002 ósanngjarn
en sagði að þá hefði sést að
enska liðið ætti leikmenn
sem gætu unnið leiki þó
að liðið léki illa. „Michael
Owen og David Beckham
falla undir þessa skil-
greiningu og þeir gerðu
gæfumuninn í leik þegar
betra liðið tapaði.“
Stenst samanburð við þá
bestu
Michael Owen hefur
skorað 24 mörk í 54
landsleikjum og deilir
11. til 12. sætinu með
Geoff Hurst á listan-
um yfir markahæstu
leikmenn Englands.
Hann státar af svip-
uðum árangri og
bestu framherjar
Evrópu. Frakkinn
David Trezeguet hef-
ur skorað 25 mörk í 45
leikjum, sem er að
meðaltali fleiri mörk
en aðrir helstu fram-
herjar Evrópu. Spán-
verjinn Raúl González
er ekki langt undan
með 37 mörk í 67 leikj-
um. Thierry Henry,
Ruud van Nistelrooy og
Andriy Shevchenko
skora að meðaltali álíka
mörg mörk í landsleikj-
um og Owen, og Al-
essandro Del Piero
stendur þeim ekki langt
að baki með 24 mörk
í 62 leikjum.
MICHAEL OWEN
(F. 14. DESEMBER 1979)
Leikir og mörk
Deildakeppni 207 113
Bikarkeppni 15 8
Deildabikar 14 9
Evrópukeppnir 48 21
Samtals 284 151
Deildarleikir og mörk
Anfield Road 103 60
Aðrir vellir 104 53
Deildarleikir og mörk gegn
Arsenal 12 2
Aston Villa 13 5
Barnsley 2 0
Birmingham 2 1
Blackburn 8 5
Bolton 6 2
Bradford 3 1
Charlton 8 4
Chelsea 10 5
Coventry 8 5
C Palace 2 1
Derby 10 5
Everton 12 4
Fulham 4 1
Ipswich 3 3
Leeds 9 4
Leicester 7 3
Man City 4 5
Man Utd 10 3
Middlesbro 9 3
Newcastle 8 12
Nottm Forest 2 5
Portsmouth 1 2
Sheff Wed 5 4
Southampton 11 7
Sunderland 7 3
Tottenham 12 4
Watford 1 0
West Brom 2 4
West Ham 9 7
Wimbledon 6 3
Wolves 1 0
Samtals 207 113
MICHAEL OWEN
Þakkar fyrir sig og kveður
í vor eða heldur áfram
hjá Liverpool?
Michael Owen skoraði tvisvar gegn Portsmouth á miðvikudag og velta menn fyrir
sér hvort hann sé kominn á skrið að nýju. Framtíð hans hjá Liverpool gæti oltið á
því hvort félagið vinnur sér sæti í Meistaradeildinni.
Owen
á tíma-
mótum