Fréttablaðið - 31.03.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MIÐVIKUDAGUR
HAGRÆN ÁHRIF MENNINGAR
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands stendur
fyrir málstofu um hlutdeild menningar í
hagkerfinu. Ágúst Einarsson prófessor
flytur erindi og ber meðal annars saman
opinber útgjöld til menningarmála í
mörgum löndum. Fundurinn hefst kl.
12.15 í Odda.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÁFRAM MIKIL HLÝINDI Á LAND-
INU ÖLLU Úrkoma hér og hvar á
landinu, síst á Norðausturlandi en einna
helst á Suðurlandi. Hægviðri í borginni og
vestan til. Sjá síðu 6.
31. mars 2004 – 90. tölublað – 4. árgangur
● lærisveinninn maría magdalena
Ævar Kjartansson:
▲
SÍÐA 39
Talar um Da
Vinci og Krist
● í langholtskirkju í kvöld
Ísak Ríkharðsson:
▲
SÍÐA 34
11 ára
einsöngvari
● 31 árs í dag
Kristján Guy Burgess:
▲
SÍÐA 22
Var næstum því
aprílgabb
● mpa-nám í hí ● prófkvíði
Anna Katrín Ragnarsdóttir:
▲
SÍÐUR 24-25
Trúir ekki á
lukkugripi
BITNAR HART Á SJÚKRAHÚSUM
Forstjóri Landspítalans segir sjúkrahúsið
ekki þola margra daga verkfall. Fyrirhugað
verkfall mun einnig bitna hart á Fjórðungs-
sjúkrahúsunum. Sjá síðu 2
STÆKKUN TRYGGÐ Utanríkisráðherra
kynnti ríkisstjórninni samkomulag EFTA-ríkj-
anna sem tryggir að stækkun EES verður
samhliða stækkun ESB. Sjá síðu 2
BARIST GEGN BARNAKLÁMI
Lögreglan í Danmörku handtók á annað
hundrað manns í samstilltum aðgerðum
gegn barnaklámi. Búist er við fleiri hand-
tökum á næstu dögum. Sjá síðu 6
RICE BER VITNI Bandarísk stjórnvöld
létu undan þrýstingi og ákváðu að leyfa
þjóðaröryggisráðgjafa forsetans að bera
vitni fyrir þingnefnd sem rannsakar hryðju-
verkaárásirnar 11. september. Sjá síðu 6
nám o.fl.
FRÁ SLYSSTAÐ Á AKRANESI
Lögreglan á Akranesi segir allt benda til þess að ökumaður bifreiðarinnar hafi bakkað út í höfnina við bryggju Sementsverksmiðjunnar.
Kvikmyndir 34
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 30
Sjónvarp 36
DÓMSMÁL Rúmlega fertugur mað-
ur hefur verið ákærður fyrir
Skeljungsránið í Lækjargötu. Í
ákærunni segir að hann hafi
framkvæmt ránið,
sem var skipulagt
með tveimur öðr-
um mönnum árið
1995 á bílastæði við
Íslandsbanka í
Lækjargötu. Mað-
urinn neitaði sök
þegar málið var
þingfest í Héraðsdómi Reykjavík-
ur á mánudag.
Maðurinn sem ákærður er
fyrir ránið vildi ekki tjá sig um
málið að svo stöddu en neitaði því
ekki að hann hefði þegar játað
hluta málsins fyrir lögreglu þegar
Fréttablaðið ræddi við hann í gær.
Ránið var framið þann 27. febr-
úar árið 1995. Tveir menn, með
hulin andlit, veittust að tveimur
starfskonum Skeljungs sem voru
á leið í Íslandsbanka til að leggja
inn uppgjör fyrirtækisins. Þriðji
maðurinn beið á stolnum flóttabíl.
Einn mannanna sló aðra starfs-
konuna í höfuðið með slökkvitæki
þannig að hún féll í götuna. Þá
hrifsaði hann af henni tösku sem í
voru á sjöttu milljón króna. Menn-
irnir hlupu með töskuna inn í
flóttabílinn og hurfu á brott.
Í byrjun síðasta árs fékk Lög-
reglan í Reykjavík ábendingu
sem kom henni á spor ræningj-
anna. Fram að því hafði málið
verið lagt til hliðar óupplýst.
„Okkur bárust mjög áreiðanlegar
vísbendingar sem við skoðuðum,“
sagði Hörður Jóhannesson þegar
Fréttablaðið ræddi við hann
meðan unnið var að rannsókn
málsins. Þá sagði hann tvo menn
og eina konu hafa verið yfirheyrð
vegna málsins. Mennirnir eru
fæddir 1963 og 1965 en konan
1966. Konan er sökuð um að hafa
tekið við og notað hluta ráns-
fengsins. Hörður sagði að játn-
ingar lægju fyrir að hluta til en
önnur atriði væru óljós og taldi
lögregla mögulegt að þau yrðu
aldrei upplýst að fullu. Málið
telst þó upplýst í aðalatriðum. Þá
sagði hann að ekki hefði náðst að
yfirheyra einn þeirra sem grun-
aðir voru þar sem hann væri lát-
inn.
Sjá nánar bls. 4
hrs@frettabladid.is
sda@frettabladid.is
Einn ákærður fyrir
Skeljungsránið
Rúmlega fertugur maður hefur verið ákærður fyrir Skeljungsránið í Lækjargötu sem framið var
árið 1995. Sakborningurinn vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu en neitaði því ekki að hafa
játað málið að hluta fyrir lögreglu. Hann neitaði sök fyrir dómi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/M
AG
N
Ú
S
M
AG
N
Ú
SS
O
N
LÖGREGLUMÁL Eldri hjón létu lífið
þegar bifreið þeirra ók fram af
bryggju í Akraneshöfn um miðj-
an dag í gær. Reyndust björgun-
artilraunir nærstaddra árangurs-
lausar og voru hjónin látin þegar
kafarar komu að. Slysið átti sér
stað við bryggju Sementsverk-
smiðjunnar og voru hjónin að aka
vini sínum til skips þegar óhapp-
ið varð. Virðist sem ökumaðurinn
hafi bakkað of langt þegar snúið
var við með þeim afleiðingum að
bíllinn steyptist fram af bryggju-
sporðinum.
Var óskað aðstoðar þyrlu
Landhelgisgæslunnar og tók það
hana innan við 20 mínútur að
komast á vettvang slyssins þar
sem áhöfn hennar hafði nýlokið
æfingaflugi þegar neyðarkallið
barst. Um borð í þyrlunni voru
fjórir kafarar sem hófu strax
björgun en um tíu mínútur tók að
losa fólkið úr bifreiðinni. Voru
hjónin látin þegar kafarar komu
að. ■
Banaslys við höfnina á Akranesi:
Eldri hjón drukknuðu
Landssímamálið:
Bótakröfur
birtar
LÖGREGLUMÁL Fjórmenningunum í
Landssímamálinu hefur öllum verið
birt bótakrafa sem Síminn gerir á
hendur þeim. Fyrr-
verandi aðalféhirðir
Símans sveik sam-
tals 261 milljón
króna út úr fyrir-
tækinu.
„Við viljum ekki
gefa upp kröfur á
einstaka menn,“
segir Andri Árna-
son, lögmaður Sím-
ans.
„Við reiknuðum okkur til kostn-
að og vexti og lögðum það fram. Ég
hef áhuga á því að málið komi fram
sem fyrst og við bíðum eftir því,“
segir Brynjólfur Bjarnason, for-
stjóri Símans, um kröfurnar. ■
Frambjóðandi í aðgerð:
Kerry getur
ekki heilsað
BANDARÍKIN John Kerry, forseta-
frambjóðandi Demókrataflokksins í
Bandaríkjunum,
þarf að gangast
undir minniháttar
aðgerð á öxl og mun
því að líkindum
ekki geta heilsað
kjósendum með
handabandi næstu
vikurnar.
Kerry sleit sin í
annarri öxlinni þeg-
ar bílstjóri fram-
boðsrútu hans varð
að negla skyndilega niður í Iowa í
janúar. Hann fer í aðgerð í dag á
sjúkrahúsi í Boston og verður að
láta sér nægja að veifa til kjósenda
næstu vikurnar. ■
JOHN KERRY
Lætur sér nægja
að veifa til kjós-
enda.
■
Maðurinn neit-
aði sök þegar
málið var þing-
fest í Héraðs-
dómi Reykjavík-
ur á mánudag.
BRYNJÓLFUR
Áhugi fyrir því að
málið skýrist
sem fyrst.