Fréttablaðið - 31.03.2004, Blaðsíða 34
34 31. mars 2004 MIÐVIKUDAGUR
SÝND kl. 5, 8 og 10.40 B.i. 16
SÝND í Lúxus kl. 5, 8 og 10.40
GOTHIKA kl. 10.30 B.i. 16
BJÖRN BRÓÐIR
FINDING NEMO
kl. 4 og 6 M. ÍSL. TALI
kl. 4 M. ÍSL. TALI
KÖTTURINN MEÐ HATTINN kl. 4,6 og 8
kl. 8 og 10.20SOMETHING GOTTA GIVE
kl. 6, 8 og 10ALONG CAME POLLY
Sýnd kl. 4, 6, 8 & 10.10
SÝND kl. 5.50, 8, 10.10 B.i. 16
SÝND Í LÚXUS VIP kl. 5.50, 8, 10.10
LOONEY TUNES kl. 4
TWISTED kl. 10.10 B.i. 16
kl. 8 B.i. 16 áraMYSTIC RIVER
kl. 8.10 B.i. 16 áraCOLD MOUNTAIN
kl. 6, 8 og 10.05 WHALE RIDER
AMERICAN SPLENDOR kl. 6
SOMETHING’S GOTTA GIVE kl. 5.45
SÝND kl. 6, 8 og 10.05 B.i. 12
,,Hreint útsagt
frábær
skemmtun!”
- Fréttablaðið
,,Þetta er besta
myndin í bíó í dag
- ekki spurning”
- Fréttablaðið
HHH1/2 kvikmyndir.com
HHHH kvikmyndir.is
HHH Skonrokk
FILMUNDUR KYNNIR:
SLÆMT BLÓÐ „Mauvais Sang“ kl. 10.30
CHEAPER BY THE DOZEN kl. 3.45 og 5.50 STUCK ON YOU kl. 8 og 10.30
SÝND kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16
Hann mun
gera allt til
að verða þú
Hágæða spennutryllir með
Angelinu Jolie, Ethan Hawke og
Kiefer Sutherland í aðalhlutverki
HHH
Skonrokk
HHH Skonrokk
Sýnd kl. 3.40, 5.50 og 8 M/ÍSLENSKU TALI
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 & 10.15 M/ENSKU TALI
Páskamynd fjölskyldunnar
Stórkostleg skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Leikin ævintýramynd eins og
þær gerast bestar!
Ævintýrið
eins og þú
hefur aldrei
upplifað það.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Lúðrasveitin Svanur heldur
vortónleika sína í Loftkastalanum. Leik-
in verður metnaðarfull íslensk tónlist
undir stjórn Rúnars Óskarssonar, og ber
þar helst að nefna Sögur af Sæbjúgum
eftir Össur Geirsson, March Parelle eftir
Tryggva Baldvinsson, Garden Party eftir
Eyþór Gunnarsson og Tjarnarmarsinn
eftir Pál P. Pálsson.
20.00 Seinni Hátíðartónleikar
Tónskóla Sigursveins í Salnum, tónlist-
arhúsi Kópavogs, verða haldnir í kvöld.
22.00 Hljómsveitirnar Hestbak,
Sans Culotte og Heiða og heiðingjarn-
ir spila ásamt fleirum á Grand Rokk á
tónleikum til styrktar heimilislausum
börnum í Kambodíu.
hvað?hvar?hvenær?
28 29 30 31 1 2 3
MARS
Miðvikudagur
Syngur eins og engill
TÓNLEIKAR Tveir kórar, Vox Academ-
ica og Háskólakórinn, halda sam-
eiginlega tónleika í Langholts-
kirkju í kvöld ásamt þrjátíu manna
hljómsveit sem nefnist Jón Leifs
Camerata. Einsöngvari á tónleik-
unum er Ísak Ríkharðsson, en hann
er aðeins ellefu ára.
„Við flytjum stór verk eftir
Benjamin Britten sem heitir
Chichester Psalms, sem samið er
við texta úr Gamla testamentinu,“
segir Hákon Leifsson, sem stjórnar
báðum kórunum. Hákon stofnaði
Vox Academica fyrir tíu árum og
hefur einnig stjórnað Háskóla-
kórnum með hléum þessi tíu ár.
„Í þessu verki er nokkuð stór
kafli sem er skrifaður fyrir
drengjarödd, og þann kafla syngur
Ísak. Það eru miklar andstæður í
verkinu, en svo allt í einu dettur
það niður í þennan englasöng með
hörpuleik.“
Á æfingum munu hörðustu
naglar hafa tárast þegar Ísak hefur
upp sína ungu raust, svo fallega
kvað hann syngja þennan kafla.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Ísak sungið í drengjakór Nes-
kirkju í fjögur ár. Hann er byrjað-
ur að læra söng í tónlistarskóla,
en hefur lært á fiðlu um nokkurra
ára skeið. Hann söng þetta sama
verk í fyrra í Hallgrímskirkju
með Mótettukórnum, en þá var
það ekki flutt með jafn stórri
hljómsveit og í kvöld.
Foreldrar hans eru þau
Richard Korn bassaleikari og Sig-
ríður Hrafnkelsdóttir fiðluleikari,
en bæði starfa þau í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Á tónleikunum í kvöld flytja
kórarnir einnig kantötu eftir
Bach og nýtt verk eftir Báru
Grímsdóttur.
„Þetta er nánast frumflutning-
ur á verki Báru, en reyndar frum-
fluttum við það í Norræna húsinu
fyrir hálfum mánuði,“ segir
Hákon. „Þetta er tveggja ára gam-
alt verk, en það hefur tekið tím-
ann sinn að koma því á lappir.
Þetta er fallegt verk, en svolítið
sérstakt og þess vegna erfitt í
flutningi.“
Verk Báru heitir Nótt og er
samið við samnefnt ljóð eftir
William Blake. Það er sungið án
undirleiks og er samið sérstak-
lega fyrir Háskólakórinn, sem
hefur það að reglu að frumflytja
árlega eitt íslenskt verk. ■
EINSÖNGVARINN UNGI
Ísak Ríkharðsson, ellefu ára piltur, syngur einsöng með Háskólakórnum og Vox Academica
í Langholtskirkju í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan átta.