Fréttablaðið - 01.04.2004, Blaðsíða 25
■ Evrópa
25FIMMTUDAGUR 1. apríl 2004
www.hekla.is
Fyrir ástina á bílnum.
Meiri heiður fyrir Touran
HEKLA, Laugavegi 170-174, sími 590 5000
www.hekla.is, hekla@hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100
HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416
fia› flekkir enginn hugtaki› „skynsamlegt val“ betur en fijó›verjar.
fia› var flví sérstakur hei›ur fyrir VW Touran a› hljóta útnefninguna
„skynsamlegasta vali›“ hjá fl‡ska neytendatímaritinu „Guten Rat“.
Sérfræ›ingar tímaritsins hafa örugglega haft í huga a› Touran er m.a.
me› ESP stö›ugleikast‡ringu og fékk fullt hús e›a fimm stjörnur hjá
NCAP, Gullna st‡ri› og Auto ver›launin 2003. Er hægt a› bi›ja um meira?
Komdu og finndu af hverju Touran er meira en 7 sæta fjölskyldubíll.
Touran 1.6 Basicline 6 gíra beinskiptur 37.418 kr. á mánu›i*.
Touran 1.6 Basicline 6 flrepa Tiptronic sjálfskipting 40.188 kr. á mánu›i*.
Touran 1.9 TDI** Basicline 6 flrepa sjálfskipting 42.497 kr. á mánu›i*.
Touran er líka „skynsamlegasta valið“
*M.v. einkaleigu í 36 mán. flar sem innifali› er:
20.000 km akstur á ári, olíuskipti og ábyrg›ar- og fljónustusko›anir.
Einkaleiga er há› gengi gjaldmi›la og getur flví breyst án fyrirvara.
**TDI er skrásett vörumerki Volkswagen.
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
·
2
6
0
5
3
ALÞINGI Mörður Árnason, þing-
maður Samfylkingarinnar, hefur,
ásamt öðrum þingmönnum Sam-
fylkingarinnar, lagt fram frum-
varp um rjúpnaveiðar, en verði
það að lögum er talið að hægt
verði að leyfa hóflegar rjúpna-
veiðar strax nú í haust. Með frum-
varpinu er vonast til að sátt geti
skapast í rjúpnamálinu.
„Frumvarpinu er ætlað að
leysa rjúpnamálið úr sjálfheldu í
ráðuneytinu og á þingi undan-
farna mánuði. Varúðarreglunnar
er gætt til hins ýtrasta og er þar
tiltekin tala um 30 þúsund fugla
hámarksveiði sem miða skal við
haustin 2004 og 2005. Sú tala er í
samræmi við mat Náttúrufræði-
stofnunar,“ segir Mörður.
Mörður segir að í umræðum
síðastliðið haust um þriggja ára
veiðibann hafi umhverfisráðherra
kvartað yfir því að ekki væri laga-
heimild fyrir tveimur af þeim
leiðum sem bent hefði verið á til
að tryggja viðgang rjúpnastofns-
ins án veiðibanns.
„Með frumvarpinu eru þessar
leiðir færar. Annars vegar er lagt til
að sett verði sölu- og innflutnings-
bann á rjúpu þau tvö ár sem eftir
eru af tímabilinu og hins vegar er
heimild fyrir umhverfisráðherra til
kvótasetningar á rjúpuna með há-
marksveiði á hvern veiðimann. ■
Frumvarp um rjúpnaveiðar lagt fram:
Skapar vonandi sátt
RJÚPNAFRUMVARP
Mörður Árnason , Samfylkingunni, hefur lagt fram frumvarp sem hann segir að geti leitt til
þess að hægt yrði að leyfa hóflegar rjúpnaveiðar strax næsta haust.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ÓPÍUMBÁL
Afganskur hermaður stendur vörð á með-
an hass og ópíum að verðmæti hátt í eitt
hundrað milljónir íslenskra króna brennur
upp í útjaðri Kabúl.
MEINTIR STRÍÐSGLÆPAMENN
ÁKÆRÐIR Stríðsglæpadómstóll
Sameinuðu þjóðanna hefur gefið
út ákærur á hendur fjórum
Króötum sem grunaðir eru um
grimmdarverk gegn múslimum í
Bosníu árið 1993. Mennirnir voru
allir háttsettir embættismenn.
Farið hefur verið fram á það við
króatísk yfirvöld að mennirnir
verði handteknir.
SAUTJÁN ÁRA FANGELSI FYRIR
FJÖLDAMORÐ Stríðsglæpadóm-
stóllinn í Haag hefur dæmt fyrr-
um lögreglumann í sautján ára
fangelsi fyrir að taka þátt í því að
drepa á þriðja hundrað karlmenn
í fangabúðum í Bosníu-Hersegó-
viníu árið 1992. Darko Mrdja,
sem er Bosníu-Serbi, játaði sök.
Fórnarlömbin voru múslimar og
Króatar.
FIMM ALÞJÓÐLEGAR HANDTÖKU-
SKIPANIR Spænskur dómari hef-
ur gefið út alþjóðlegar hand-
tökuskipanir á hendur fimm
mönnum sem grunaðir eru um
aðild að sprengjuárásunum í
Madríd 20. mars síðastliðinn.
Handtökuskipanirnar voru send-
ar yfirvöldum í Bretlandi,
Frakklandi og Marokkó. Alls eru
tuttugu manns í haldi spænsku
lögreglunnar í tengslum við
rannsókn málsins.
HUGSANLEGIR IRA-MENN TEKNIR
Lögreglan í Londonderry á Norður-
Írlandi handtók í gær þrjá menn
sem grunaðir eru um að tilheyra
Írska lýðveldishernum, IRA. Íbúða-
hverfi í borginni var lokað af í
nokkrar klukkustundir á meðan
lögreglan gerði húsleit á fjölda
heimila. Að sögn yfirvalda var talið
hugsanlegt að mennirnir hefðu
falið sprengiefni í hverfinu.