Fréttablaðið - 05.04.2004, Page 1
LÖGREGLUMÁL Maðurinn sem gekk í
skrokk á sextán ára pilti á laugar-
dag með þeim afleiðingum að hann
var hætt kominn vegna innvortis
blæðinga var sleppt úr haldi í gær-
kvöldi. Lögregla fór fram á gæslu-
varðhaldsúrskurð en dómari taldi
ekki málsástæður til þess og því er
maðurinn frjáls ferða sinna.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er maðurinn sem grunað-
ur er um árásina annar mannanna
sem dæmdir voru í fangelsi í
fyrravor fyrir hrottafengna árás á
mann við Skeljagranda um versl-
unarmannahelgina árið 2002.
Hinn grunaði er 23 ára gamall og
hefur hlotið fjölda dóma fyrir of-
beldisglæpi.
Hann er á reynslulausn úr
fangelsi en hann var dæmdur til
tveggja ára fangelsisvistar fyrir
tæpu einu ári síðan og hefur því
setið minna en helming dómsins.
Bróðir hans og vitorðsmaður í
árásinni árið 2002 var dæmdur í
þriggja og hálfs árs fangelsi.
Lögregla fékk tilkynningu um
árásina um miðjan dag síðastlið-
inn laugardag. Fórnarlambið hafði
verið í íbúð hins grunaða en kom-
ið sér út úr íbúðinni með erfiðis-
munum eftir barsmíðarnar og
hringt í neyðarnúmer. Lögregla
sótti piltinn og ók með hann á
sjúkrahús en ekki kom í ljós fyrr
en síðar hversu alvarlegir áverk-
ar hans voru.
Í ljós kom að pilturinn var með
sprungið milta og miklar innvort-
is blæðingar og var í bráðri lífs-
hættu en er ekki talinn vera það
lengur. Honum var gefið blóð og
er mjög kvalinn. Að sögn aðstand-
enda vonast læknar til að þurfa
ekki að gera á piltinum aðgerð en
til þess gæti komið ef blæðingar
hefjast á ný. ■
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MÁNUDAGUR
STÓRLEIKUR Í HÓLMINUM
Snæfell tekur á móti Keflavík í þriðja leik
liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í
körfubolta. Staðan í einvíginu er 1-1 en
það lið sem fyrr sigrar þrjá leiki verður
meistari. Leikurinn fer fram í Stykkishólmi
og hefst klukkan 19.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
SÓLARDAGUR SUNNANLANDS
sem nær frá Reykjavík austur til Horna-
fjarðar. Nepjulegt nyrðra, enda vindur og
snjó- eða slydduél þar. Hægari vindur
vestan til. Sjá síðu 6.
5. apríl 2004 – 895. tölublað – 4. árgangur
fasteignir ● hús ● fjármál o.fl.
Skreytti tröppur með
diskabrotum
Guðlaug Halldórsdóttir:
● 10 ár frá dauða rokkarans
Vildi brenna frekar
en að visna
Kurt Cobain:
▲
SÍÐA 20
ÓVÆNTAR NIÐURSTÖÐUR Formaður
bandarísku þingnefndarinnar, sem hefur
verið að kanna
hryðjuverkaárás-
irnar 11. septem-
ber árið 2001,
segir að sumar
af niðurstöðum
nefndarinnar hafi
komið sér á
óvart. Sjá síðu 2
RANNSAKA FYRRI EIGENDUR
Uppgjör stærsta hluthafa Eddu við Mál og
menningu er lokið. Rannsókn á fjárhags-
upplýsingum mun aðeins beinast að eig-
endum Vöku-Helgafells. Sjá síðu 2
DREGUR UMMÆLI TIL BAKA
Stjórnarformaður Landsvirkjunar dregur til
baka ummæli svo þau trufli ekki kjaravið-
ræður. Formaður Rafiðnaðarsambandsins
segir að í raun sé hann ekkert að draga til
baka. Sjá síðu 4
HÖFUÐPAURINN LÁTINN Höfuð-
paur árásanna á Madríd 11. mars sprengdi
sig í loft upp ásamt þremur félögum sínum
á laugardagskvöldið. Talið er að hann hafi
ætlað að gera frekari árásir. Sjá síðu 6
Illa haldinn eftir
fólskulega árás
23 ára maður á reynslulausn úr fangelsi er grunaður um að hafa sært mann lífshættulega á laug-
ardaginn. Dómari sá ekki ástæðu til að verða við gæsluvarðhaldskröfu lögreglu. Hinn grunaði
var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innan við ári síðan.
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
Frumvarp um
áfengiskaupaaldur:
Aldurinn
lækki í átján
STJÓRNMÁL Miklar líkur eru taldar á
að Alþingi samþykki að lækka
áfengiskaupaaldurinn úr tuttugu í
átján ár. Frumvarp þess efnis er nú
til meðferðar hjá allsherjarnefnd
þingsins og hefur Fréttablaðið
heimildir fyrir því að mikill meðbyr
sé með málinu.
Frumvarpið lögðu fram sextán
þingmenn úr öllum flokkum undir
forystu Jóhönnu Sigurðardóttur
Samfylkingu.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
átján ára og eldri fái að kaupa
áfengi en fólk á aldrinum átján til
tuttugu ára fái þó ekki að kaupa sér
sterk vín.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að breytingin taki gildi 1. janúar
2005 en tveimur árum síðar verði
skipuð nefnd til þess að meta
reynsluna af breytingunni. ■
SKAMMGÓÐUR VERMIR Veðrið lék við íbúa höfuðborgarsvæðisins í gær og er líklegt að vorfiðringur sé kominn í fólk. Fótboltastrák-
arnir í FH kunnu vel að meta blíðuna. Á þessum árstíma er hins vegar vissara að nýta þær fáu góðu stundir sem gefast því í dag og á
morgun á aftur að kólna í veðri og er búist við snjókomu eða éljum á Norðurlandi. Syðra verður líklega bjart en kalt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Verslunarmenn semja:
Markaðslaun fest í sessi
KJARAMÁL Verslunarmannafélag
Reykjavíkur og Félag íslenskra
stórkaupmanna skrifuðu undir
nýjan kjarasamning um klukkan
tíu í gærkvöldi.
„Ég held að ég sé bara nokkuð
sáttur,“ segir Gunnar Páll Páls-
son, formaður VR. Hann segir að
með samningnum sé markaðs-
launakerfi fest enn frekar í sessi
og þá hafði verið samið um að
eftir fjögur ár verði lágmarks-
laun 120 þúsund krónur á mán-
uði. Samningurinn er ótíma-
bundinn en uppsegjanlegur á
tveggja ára fresti með sex mán-
aða fyrirvara. Einnig var samið
um tveggja prósenta aukafram-
lag atvinnurekenda í lífeyrissjóð
og aukið orlof. Samningurinn
nær til um tíu prósent félags-
manna VR eða 2.000 manns.
Gunnar Páll segir að viðræð-
urnar við Samtök atvinnulífsins
þokist áfram. Fundað verði í dag.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafa kjaravið-
ræður Starfsgreinasambandsins
og ríkisins gengið vel um helg-
ina. Í gærkvöldi voru viðræð-
urnar á mjög viðkvæmu stigi og
ætluðu samningamenn aftur að
hittast klukkan níu í dag.
Hugsanlegt er talið að skrifað
verði undir nýjan kjarasamning
hjá sáttasemjara í dag. ■
Fylgstu me› dagskránni
WWW.NORDUR.ISLÁTTU fiIG EKKI VANTA!
s k í › a l ö n d i n
s u n d l a u g a r n a r
m e n n i n g i n
h l j ó m s v e i t i r n a r
g i s t i s t a › i r n i r
v e i t i n g a h ú s i n
...og allt hitt!