Fréttablaðið - 05.04.2004, Blaðsíða 26
■ ■ KVIKMYNDIR
19.00 Mánudagsmynd MÍR Ástin
vaknar frá árinu 2002 sýnd í bíósalnum
Vatnsstíg 10. Myndin er ótextuð.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Hlöðver Sigurðsson tenór
verður með
einsöngstón-
leika í Nes-
kirkju við
Hagatorg
ásamt Antoniu
Hevesi píanó-
leikara. Á dag-
skrá tónleikana eru íslensk sönglög og
óperuaríur eftir G. Donizetti, W. A. Moz-
art, C. Guonod og F. Lehár.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
5. apríl 2004 MÁNUDAGUR26
hvað?hvar?hvenær?
2 3 4 5 6 7 8
APRÍL
Mánudagur
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16
SÝND í Lúxus kl. 8 og 10.30
GOTHIKA kl. 10.30 B.i. 16
BJÖRN BRÓÐIR
FINDING NEMO
kl. 4 M. ÍSL. TALI
kl. 4 M. ÍSL. TALI
KÖTTURINN MEÐ HATTINN kl. 4 og 6
kl. 8 SOMETHING GOTTA GIVE
kl. 8 og 10.10ALONG CAME POLLY
SÝND kl. 6, 8, 10.10 B.i. 16
TWISTED kl. 10.10 B.i. 16kl. 8.10 B.i. 16 áraCOLD MOUNTAIN
kl. 6, 8 og 10.05 B.i. 12STARSKY & HUTCH
STARSKY & HUTCH kl. 4, 6, 8 og 10.10 B.i. 12
SÝND Í LÚXUS VIP kl. 4, 6, 8, 10.10
kl. 6 og 8WHALE RIDER
AMERICAN SPLENDOR kl. 10.05
SOMETHING’S GOTTA GIVE kl. 5.45
SÝND kl. 6 MEÐ ÍSL. TALI
SÝND kl. 6, 8 og 10
CHEAPER BY THE DOZEN kl. 3.40
STUCK ON YOU kl. 8 og 10.30
SÝND kl. 8 og 10.10 B.i. 16
Hann mun
gera allt til
að verða þú
Hágæða spennutryllir með
Angelinu Jolie, Ethan Hawke og
Kiefer Sutherland í aðalhlutverki
Sýnd kl. 3.40 og 5.50 M/ÍSLENSKU TALI
Sýnd kl. 3.40, 5.50 og 8 M/ENSKU TALI
Án efa einn besti
spennuhrollur sem
sést hefur í bíó. SÝND kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15
HHH1/2 kvikmyndir.com
HHHH kvikmyndir.is
HHH Skonrokk
Páskamynd
fjölskyldunnar
HHH
Ó.H.T Rás 2
BESTA
ERLENDA
MYNDIN
Páskamynd ársins
Páskamynd ársins
LORD OF THE RINGS SÝND Í LÚXUS kl. 4 B.i. 12
SÝND kl. 6, 8, 10.10 B.i. 16
SÝND kl. 4 og 6 MEÐ ÍSL. TALI
-ráð dagsins
Hendið furukönglum eða rifnum, þurrkuðum
berki af sítrónu/appelsínu í arineldinn til að
fá góðan ilm.
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
HÖRFATNAÐUR
KJÓLAR, SKYRTUR OG BUXUR
Kjörin fræðslusýning
MYNDLIST „Þetta er í raun og veru kjör-
in fræðslusýning, því hún fellur
mjög vel að markmiðum aðal-
námskrár grunn- og framhaldsskóla
um að veita nemendum innsýn í ís-
lenska myndlistarsögu,“ segir Rakel
Pétursdóttir, sem er deildarstjóri
fræðsludeildar Listasafns Íslands.
Um síðustu helgi var opnuð í
safninu sýningin Íslensk myndlist
1900-1930, sem veitir gott yfirlit
yfir þau margvíslegu viðfangsefni
sem íslenskir listamenn fengust við
fyrstu áratugi síðustu aldar, í mál-
ara- og höggmyndalist. Landslag,
þjóðsögur, mannamyndir, goðsögur
og uppstillingar voru allt áleitin
myndefni á þessu tímabili.
„Við erum með mjög virka
fræðslustarfsemi í tengslum við
þessa sýningu, eins og allar aðrar
sýningar í safninu,“ segir Rakel,
sem hefur meðal annars þann starfa
að taka á móti hópum og fylgja þeim
um sýningar safnsins.
„Þessi þjónusta er í boði fyrir
alla nemendur á landinu þeim að
kostnaðarlausu. Hingað koma nem-
endahópar frá klukkan átta á
morgnana til fjögur á daginn.
Stundum geta tugir ef ekki hundruð
nemenda verið búnir að skoða sýn-
ingar á safninu áður en það opnar
klukkan ellefu.“
Á þessari sýningu má sjá verk
eftir alla helstu listamenn þjóðar-
innar í byrjun síðustu aldar, meðal
annars Þórarin B. Þorláksson, Ás-
grím Jónsson, Jóhannes Kjarval,
Jón Stefánsson, Júlíönu Sveinsdótt-
ur, Kristínu Jónsdóttur, Finn Jóns-
son, Gunnlaug Blöndal, Guðmund
Thorsteinsson (Mugg), Nínu Sæ-
mundsson og Jón Þorleifsson.
„Ég hef alltaf lagt áherslu á að
ung börn geti alveg notið myndlist-
ar jafnt og fullorðnir og hef alltaf
hvatt kennara yngstu barna og leik-
skólakennara til að koma með börn
á sýningar okkar. Margir þeirra
gera það líka,“ segir Rakel, sem
skipuleggur allt fræðslustarf á veg-
um safnsins.
„Í tengslum við þessa sýningu
bjuggum við hins vegar til fræðslu-
efni, sem einkum er ætlað eldri nem-
endum. Við þurfum stundum að
halda okkur við ákveðinn markhóp í
vinnslu á texta og efni, og að þessu
sinni er markhópurinn efri bekkir
grunnskóla og framhaldsskólanem-
ar.“
Á sýningartímanum er einnig
leiðsögn fyrir almenning alla
þriðjudaga í hádeginu og annan
hvern sunnudag klukkan þrjú. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
LISTIN HEILLAR UNGA SEM ALDNA
Listasafn Íslands tekur flesta daga á móti hópum skólanema og veitir þeim fræðslu um sýningar safnsins hverju sinni. Nú stendur þar yfir
sýning á verkum íslenskra myndlistarmanna árin 1900-1930.