Fréttablaðið - 14.04.2004, Side 1
● gefur 1000 eintök af plötu
▲
SÍÐA 31
Setur pressu
á skattinn
● æst í að koma til íslands
Pink:
▲
SÍÐA 30
Hrópaði
af gleði
● tónleikar í kvöld
Lars Graugaard:
▲
SÍÐA 27
Semur tónlist
með tölvuforriti
HEILBRIGÐISMÁL Páll Pétursson, for-
maður lyfjaverðsnefndar, sagði að
nefndin myndi kynna ákvörðun
sína um verðbreytingar á lyfjum á
allra næstu dögum. Hann kvaðst
ekki vilja tjá sig efnislega um
væntanlega ákvörðun nefndarinn-
ar, hvorki hve mikið myndi sparast
með lækkaðri álagningu heildsölu-
og smásöluverðs, né hversu mikil
verðlækkun yrði á einstökum
lyfjaflokkum til almennings.
Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra sagði, að ætlunin væri að
spara samtals 450 milljóna króna
með lækkun á lyfjaverði með sam-
ræmdum aðgerðum, sem þegar
hefðu verið kynntar að hluta.
„Við teljum að verðmunur á
lyfjum hér á landi annars vegar og
á hinum Norðurlöndunum sé of
mikill,“ sagði hann. „Norðurlöndin
eru dýrt markaðssvæði og það er
of mikið að lyf skuli vera allt að
15% dýrari hér heldur en þar.“
Ráðherra sagði að nýverið hefði
ráðuneytið kynnt aðgerðir til að
spara lyfjaútgjöld hins opinbera.
„Þar er svokallað viðmiðunar-
verð sjálfsagt umdeildasta atrið-
ið,“ sagði Jón. „Það felur í sér að
niðurgreiðslan er miðuð við
ódýrasta lyfið í hverjum lyfja-
flokki. Menn fá þá greiðsluþátt-
töku í dýrari lyfjum ef sérstaklega
stendur á. Þetta fyrirkomulag
tíðkast víðast annars staðar.“
Þá nefndi ráðherra að hætt
væri við greiðsluþátttöku í tiltekn-
um lyfjaflokkum nema að það
væri mat læknis að menn þyrftu
þau lyf. Þessar leiðir hefðu verið
valdar til að lækka lyfjareikning
Tryggingastofnunar án þess að
hækka almenna greiðsluþátttöku.
Þá kvaðst ráðherra líklega
mæla fyrir breytingu á lyfjalögum
í þessari viku, þess efnis, að lyfja-
verðsnefnd og greiðsluþátttöku-
nefnd væru sameinaðar. Fleiri at-
riði væru í frumvarpinu, sem mið-
aði að því að lækka verð á lyfja-
pakka landsmanna, sem næmi 13
milljörðum króna.
jss@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MIÐVIKUDAGUR
SPILAÐ Í BIKARNUM Þrír leikir
verða í deildarbikarnum í fótbolta í kvöld. Í
karlaflokki tekur Keflavík á móti Stjörnunni
í Reykjaneshöll klukkan 18.45. Í kvenna-
flokki verða tveir leikir í Laugardalnum.
Klukkan 19 mætast HK/Víkingur og Þrótt-
ur. Fjölnir tekur á móti Keflavík klukkan 21.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
SÓLARDAGUR AUSTANLANDS
sem nær frá Akureyri austur um til Horna-
fjarðar. Gæti rofað til milli skúra sunnan og
suðvestanlands en éljagangur á Vestfjörð-
um. Sjá síðu 6.
14. apríl 2004 – 101. tölublað – 4. árgangur
heilsa ● smáauglýsingar
Kynntist karate í
gegnum móður sína
Bryndís Valbjarnardóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
SVARAR GAGNRÝNI DAVÍÐS Yfir-
maður hjá eftirlitsstofnun EFTA vísar gagn-
rýni Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á
stofnunina á bug. Hann segir afgreiðslu rík-
isábyrgðar ekki hafa tekið óeðlilega langan
tíma. Sjá síðu 4
ÁTÖK Í MIÐBÆNUM Til átaka kom í
miðbæ Reykjavíkur í gærmorgun þegar
tveim hópum laust saman á götu úti.
Mennirnir voru vopnaður sveðjum og rör-
bútum. Sjá síðu 2
SEMUR VIÐ STÖÐ 2? Friðrik Þór Frið-
riksson bindur vonir við að samkomulag
takist við Stöð 2 um kaup stöðvarinnar á
sýningarrétti mynda Íslensku kvikmynda-
samsteypunnar. Sjá síðu 2
VILL NÝJA RANNSÓKN Lögmaður
aðstandenda barns sem lést eftir fæðingu
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur
krafist þess að fram fari ný rannsókn á
dánarorsök þess. Sjá síðu 8
Mest seldu lyfin
lækka verulega
Lyfjaverðsnefnd mun á næstunni tilkynna umtalsverða verðlækkun á mest seldu lyfjaflokkunum
vegna lækkunar álagningar. Meðal mest seldu lyfjanna eru geðlyf, hjartalyf og magalyf.
Minni lækkun verður á lyfjum sem minna eru notuð.
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
Ráðherra sent bréf:
Óskað eftir
tillögum til
lausnar
JAFNRÉTTISMÁL Lögmaður Hjördísar
Hákonardóttur sendi Birni Bjarna-
syni dómsmálaráðherra bréf í gær
þar sem hann óskar eftir tillögum
hans til lausnar á deilu sem komin
er upp vegna úrskurðar kæru-
nefndar jafnréttismála.
Að sögn Atla Gíslasonar,
lögmanns Hjördísar, eru engar
kröfur settar fram í bréfinu heldur
var því beint til Björns að hann
sendi Atla tillögur til lausnar á mál-
inu ef hann hefði þær.
„Ég vona að hann komi fram með
tillögu um góða lausn í málinu,“ seg-
ir Atli.
Aðspurður segir hann ýtrustu
kröfur vera skaðabætur sem yrði
mismunur á launum Hjördísar nú
og laununum sem hún hefði haft
ásamt lífeyrisréttindum.
Sjá nánar síðu 6
STRÍÐINU Í ÍRAK MÓTMÆLT
Fjöldi Ítala safnaðist saman fyrir framan þinghúsið í Róm til að mótmæla stríðinu í Írak. Fjögurra Ítala sem unnu sem verktakar fyrir
bandarískt fyrirtæki er saknað síðan á mánudag. Fjöldi útlendinga hefur verið tekinn í gíslingu á síðustu vikum.
ÍRAK Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, segir
að vegna átaka síðustu daga komi
ekki til greina að samtökin sendi
fjölmennt starfslið til Írak í nán-
ustu framtíð. Sameinuðu þjóðirn-
ar kölluðu alla erlenda starfs-
menn sína heim frá Írak í október
síðastliðnum eftir mannskæðar
árásir á höfuðstöðvar samtakanna
í Bagdad.
Annan segir að hernámsliðið
verði að stilla til friðar í Írak svo
hægt verði að framselja völdin í
hendur heimamanna hinn 30. júní
eins og fyrirhugað er. Átökin síð-
ustu daga hafa torveldað störf
sendinefndar SÞ sem er í Írak til
að aðstoða heimamenn við að
mynda bráðabirgðastjórn og und-
irbúa kosningar.
Að minnsta kosti 78 bandarísk-
ir hermenn hafa látist og 561
særst í átökum í Írak það sem af
er aprílmánaðar, að sögn tals-
manns Bandaríkjahers. Bandarík-
in hyggjast senda 10.000 hermenn
til viðbótar til Írak til að freista
þess að ná tökum á ástandinu.
Sjía-klerkurinn Moqtada al-
Sadr, sem er einn helsti andstæð-
ingur Bandaríkjamanna í Írak,
hefur lýst því yfir að hann sé
reiðubúinn að láta lífið fyrir mál-
stað sinn. Al-Sadr hvetur íraska
hermenn til að ganga í lið með
uppreisnarmönnum og hrekja
Bandaríkjamenn á brott.
Sjá nánar síðu 14
Bandaríkjaher hefur misst tökin á ástandinu:
Sameinuðu þjóðirnar ekki á leið til Írak
AP
/M
YN
D
Ríkið:
Fótbolti:
Áhangendur
til leigu
ÞÝSKALAND Hópur þýskra fótbolta-
áhangenda hafa auglýst stuðning
sinn til sölu fyrir greiðslu í formi
pylsu og bjórs. Lið þeirra, SC
Goettingen, varð gjaldþrota og
því geta áhangendurnir ekki leng-
ur stutt sína menn. Þeir hafa
stofnað félagið „Áhangendur án
liðs“ og segjast hafa fengið svo
mikil viðbrögð að þeir gætu auð-
veldlega mætt á fótboltaleik um
hverja helgi það sem eftir er leik-
tímans.
Að sögn talsmanns félagsins
var tilgangurinn með stofnun
þess að halda Goettingen-áhang-
endum saman. ■