Fréttablaðið - 15.04.2004, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 15.04.2004, Blaðsíða 29
Ákvörðun um háskólanám er ein sú afdrifaríkasta í lífi hvers einstaklings. Mikilvægt er fyrir þá sem hyggja á nám að hausti að vanda það val og kynna sér þá háskóla sem bjóða nám á því áhugasviði sem hentar. Á sviði viðskiptafræða og lögfræði starfa nokkrir háskólar hérlendis sem væntanlegir nemendur þurfa að bera saman. Við slíkt mat er eðlilegt að horfa til eftirfarandi þátta: Að velja háskóla.... Viðskiptaháskólinn á Bifröst birtir óhikað allar upplýsingar um ofangreind atriði enda teljum við að umsækjendur eigi rétt á slíku og hvetjum þá til að afla sambærilegra upplýsinga frá öðrum skólum sem kenna viðskipta- og lögfræði. Þessar upplýsingar varðandi Bifröst hafa verið staðfestar með úttektarskýrslum Menntamálaráðuneytisins, annarra óháðra úttektar- eða matsaðila eða Gæðaráðs samkvæmt gæðakerfi háskólans. Hlutfall umsókna og inntöku Góðir háskólar velja inn góða nemendur. Þegar farið er yfir umsóknir nýnema leggur Viðskiptaháskólinn á Bifröst mikið upp úr því að þeir sem valdir eru á grundvelli ágætis síns séu einnig fulltrúar ólíkra hópa í samfélaginu. Góður námsárangur er mikilvægur en skólinn tekur einnig tillit til þess við val á nýjum nemendum ef þeir hafa verið öflugir í félagsstarfi eða hafa reynslu úr atvinnulífi. Einungis eitt er ljóst: Sá sem ekki sækir um á ekki möguleika á inntöku. Inntökuhlutfall í háskóladeildir á Bifröst er samkvæmt úttekt IMG fyrir menntamálaráðuneytið 56%. Brottfall Brottfall er mælikvarði á það hvernig háskóli sinnir námsmarkmiðum þeirra nemenda sem hefja nám. Hátt brottfall er annað hvort vísbending um bresti í inntökuferli nemenda eða léleg kennslugæði. Erlendis er mikið brottfall hvarvetna talið merki um lélegt nám en lítið brottfall til marks um gæði náms. Brottfall á Bifröst 2003- 2004 er 4%. Bekkjarstærð Stærð vinnuhópa eða bekkja skiptir miklu máli um nálægð nemenda við kennara sína. Í mörg hundruð manna bekkjum eru gæði í námi þannig allt önnur og lakari en þar sem nemendur stunda nám sitt í litlum einingum með kennara sínum. Á Bifröst er stærð bekkja/verkefnahópa 10-12 nemendur í hóp. Hlutfall kennara og nemenda Hlutfall fastráðinna kennara og skráðra nemenda er mælikvarði á gæði. Því fleiri kennarar, því betri gæði miðað við fjölda nemenda. Á Bifröst er þetta hlutfall nú 1:16 eða með öðrum orðum 1 fastráðinn kennari á hverja 16 nemendur. Kennsluaðferðir Kennsluaðferðir eru lykilatriði þegar meta skal gæði í námi. Einhliða fyrirlestrar yfir hundruðum manna standast ekki samanburð við verkefnabundna kennslu í litlum hópum þar sem nemendur og kennari ræða saman þau viðfangsefni sem til skoðunar eru. Á Bifröst gilda vikuleg verkefni nemenda á fyrsta og öðru ári 60% af lokaeinkunn í hverri námsgrein. Kennslufræði skólans tekur mið af stærð skólans og því sem best þekkist í viðskiptaháskólum í hinum vestræna heimi. Nýting upplýsingatækni í námi og kennslu Í þekkingarsamfélagi nútímans er aðgangur að upplýsingum mikilvægasta auðlindin. Í háskólanámi er þetta sérstaklega mikilvægt. Á Bifröst eru fartölvur nemenda tengdar saman með þráðlausu neti. Fyrirlestrar koma á netið, þar leysa nemendur verkefni sín og próf eru tekin á tölvur. Aðgengi að gagnabönkum og upplýsingaveitum er fyrsta flokks. Alþjóðleiki í námi og kennslu Háskólar nútímans þurfa að búa nemendur sína undir líf og störf í alþjóðlegu umhverfi. Því er mikilvægt að veita þeim möguleika á að taka hluta af námi sínu erlendis og að hluti þess náms sem fram fer hérlendis sé alþjóðlegt. Um 40% nemenda á Bifröst taka eina til tvær annir af námi sínu við skólann erlendis samkvæmt sérstökum samningum Viðskiptaháskólans við valda samstarfsskóla víða í Evrópu, Kanada, Bandaríkjunum, Japan og Kína. Þá fer stór hluti náms á þriðja ári fram á ensku með þátttöku erlendra skiptinema frá Evrópu og Asíu. Stærð skóla Stærð háskóla skiptir miklu um samband nemenda og skóla. Í fjölmennum skólum er hætt við ópersónulegu fjöldanámi þar sem einstaklingsbundnum þörfum nemenda er ekki sinnt. Viðskiptaháskólinn er lítill háskóli með tæplega 400 nemendum í smáum einingum þar sem nemendur þekkja hvern annan og kennara sína. Tækifæri til rannsókna Í góðum háskólum fara saman kennsla og rannsóknir. Góðir nemendur hafa áhuga á að dýpka þekkingu sína með þátttöku í rannsóknartengdum verkefnum. Aðgengi þeirra að slíku ræðst af rannsóknarvirkni þess skóla sem þeir stunda nám við. Á Bifröst starfa hæfir fræðimenn og kennarar sem sinna rannsóknum á sínu sviði. Þessa njóta nemendur sem eru komnir áleiðis í sínu námi með þátttöku í rannsóknarverkefnum eða aðstoðarkennslu. Þá störfuðu tæplega 20 nemendur að rannsóknarverkefnum síðasta sumar sem kostuð voru af nýsköpunarsjóði námsmanna eða öðrum aðilum. Háskólasamfélag/kampus Háskóli er ekki einungis skóli. Hann er einnig lifandi samfélag. Víða um hinn vestræna heim þykir það mikill kostur háskóla að geta boðið nemendum sínum upp á búsetu í slíku samfélagi utan stórborga þar sem þeir njóta næðis til náms og þroska. Í háskólaþorpinu Bifröst búa nú, nema og starfa um 600 manns í samfélagi sem er einstakt hérlendis. Leikskóli, verslun, þvottahús, líkamsræktarstöð og kaffihús eru starfrækt í þorpinu auk stofnana háskólans. Bifröst er í 100 km fjarlægð frá miðborg Reykja-víkur. Saga og tengsl við útskrifaða nemendur og samfélag Aldur, saga og hefðir skipta skóla miklu máli. Skólar sem hafa með áratuga starfi sannað sig njóta meiri virðingar en nýrri skólar án sögu og útskrifaðra nemenda sem hafa markað spor í samfélagið. Viðskiptaháskólinn á Bifröst hefur undanfarin 85 ár haft það að markmiði að mennta leiðtoga og stjórnendur fyrir atvinnulíf og samfélag. Á þriðja þúsund útskrifaðir nemendur hafa með störfum sínum sannað gildi skólans og þeirrar menntunar sem hann veitir. Þar á meðal er fjöldi ráðherra, þingmanna, frumkvöðla og stjórnenda í atvinnulífinu. Staða á atvinnumarkaði að námi loknu Atvinnumöguleikar að námi loknu skipta miklu máli um gildi þess fyrir nemendur. Viðtökur atvinnulífsins eru þannig mikilvægur mælikvarði á gagnsemi háskóla og það nám sem þeir bjóða. Samkvæmt könnun á meðal nýlega útskrifaðara Bifrestinga þá starfa 70% þeirra sem stjórnendur, 80% þeirra höfðu fengið vinnu fyrir eða við útskrift og enginn aðspurðrar var án vinnu. Að meðaltali greiddu útskrifaðir nemendur upp þriggja ára skólagjöld sín vegna BS náms með launahækkun þeirri sem námið veitti þeim á fyrsta starfsári eftir útskrift. Við leggjum metnað okkar í að reka lítinn og góðan háskóla sem er í stakk búinn til að sinna þörfum hvers og eins. Skólagjöld á Bifröst standa undir gæðum í námi og þjónustu sem ekki eru í boði annars staðar. Skólagjöld á Bifröst eru lánshæf hjá LÍN. Nánari upplýsingar og umsóknarform er að finna á www.bifrost.is Með kveðju, Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.