Fréttablaðið - 15.04.2004, Blaðsíða 35
27FIMMTUDAGUR 15. apríl 2004
hvað?hvar?hvenær?
12 13 14 15 16 17 18
APRÍL
Fimmtudagur
FERÐ ÞÚ Á LEIKINN?
Glaumbar býður þér út á
Man Utd - Liverpool 24. apríl.
SMS LEIKUR
TAKTU
ÞÁTT!
13.HVER
VINNUR
Glaumbar býður þér og vini þínum á Old Trafford að sjá Man Utd-Liverpool
Sendu SMS skeytið JA SPORT á númerið 1900 og þú gætir unnið.
Við sendum þér 2 spurningar. Þú svarar með því að senda SMS skeytið
JA A, B eða C á númerið 1900.
Þú gætir unnið ferð fyrir 2 á Man Utd-Liverpool* • Glaðning frá Adidas
Fótbolta tölvuleik • Enn meira af leikjum, VHS og DVD myndum
og margt fleira.
*Ferðin á leikinn er dreginn 22. apríl úr öllum innsendum skeytum í beinni á
SkonRokk • Ef þú vinnur ekki þá ferðu á Glaumbar þar sem boltinn er alltaf í 100% beinni
Vinningar verða afhentir hjá BT Skeifunni 11. Reykjavík, Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb BT. 99 kr/skeytið
www.glaumbar.is
...þá sjaldan maður lyftir sér upp 585-4100
Petter Solberg:
Óánægðir ökuþórar
RALL „Reglugerðarbreytingarnar
eru að eyðileggja íþróttina,“ sagði
Petter Solberg, heimsmeistari í
ralli, við norska dagblaðið VG.
„Breytingarnar eru of margar.
Það var margt nýtt í Mexíkó og
hér verður ný keppni með breytt-
um forsendum,“ sagði Solberg en
rallið í Nýja-Sjálandi, fjórða
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar, hefst í dag.
„Þetta hefur ekkert að gera
með að breytingarnar henti mér
illa,“ sagði Solberg, sem hefur
ekki gengið sem best í ár. „Ég er
aðeins að hugsa um að breyting-
arnar séu of margar núna. Þetta
getur leitt til þess að við missum
yfirsýnina yfir íþróttina.“
Á Nýja-Sjálandi fer önnur
leiðarskoðun fram sama dag og
keppnin sjálf og leiðir það til
þess að dagurinn verður mjög
langur hjá keppendum, allt upp í
16 til 17 tíma. „Þetta þýðir líka að
aðstoðarökumaðurinn nær ekki
að skrá hjá sér bestu minnis-
punkta,“ sagði Solberg, sem
kvartar líka undan því að liðin
megi ekki senda bíla á undan
keppnisbílunum sem senda nýj-
ustu upplýsingar um leiðina til
keppenda. Hann segir að enginn
hlusti á ökumennina frekar en í
Formúlunni.
Ýmsir telja að aukinn áhugi á
rallinu bitni á áhuganum á For-
múlunni og spurði blaðið Solberg
hvort reglubreytingar væru til
þess að vinna gegn þessari þróun.
Hann vildi ekki taka undir það en
sagði: „Áhorfstölur í sjónvarpi
hafa aðeins legið upp á við að und-
anförnu. Af hverju þarf að breyta
því sem gengur vel?“ ■
PETTER SOLBERG
Er ekki ánægður með reglubreytingar í rallinu.
EDU
Hefur staðið sig frábærlega með Arsenal á
þessari leiktíð.
Arsenalmaðurinn Edu:
Í brasilíska
landsliðið
FÓTBOLTI Edu, miðvallarleikmaður
Arsenal, hefur verið valinn í
brasilíska landsliðið í fyrsta sinn
en það mætir Ungverjum í vin-
áttulandsleik í næstu viku.
Edu lýsti því yfir að hann gæti
hugsað sér að gerast breskur rík-
isborgari til að geta leikið með
enska landsliðinu. Aðrir nýliðar í
hópnum eru Mancini, bakvörður
hjá Roma, og þeir Bordon og Dede
sem leika í Þýskalandi. Ronaldo
var ekki valinn vegna meiðsla
sem hann varð fyrir á dögunum.■
■ ■ LEIKIR
19.15 Fram tekur á móti KA í
Framhúsinu í 8 liða úrslitum
Remax-deildar karla í handbolta.
19.15 FH-ingar og Valsmenn eig-
ast við í Kaplakrika í 8 liða úrslit-
um Remax-deildar karla í hand-
bolta.
19.15 Grótta KR og ÍR mætast á
Seltjarnarnesi í 8 liða úrslitum
Remax-deildar karla.
19.15 Eyjamenn taka á móti
Haukum í 8 liða úrslitum Remax-
deildar karla.
■ ■ SJÓNVARP
18.30 Olíssport á Sýn.
19.00 Þáttur um bandarísku PGA
mótaröðina í golfi á Sýn.
19.30 Sterkasti maður heims á Sýn.
20.00 Íslandsmótið í handbolta í
Sjónvarpinu. Bein útsending frá
síðari hálfleik leiks í átta liða úr-
slitum karla.
20.00 Sterkasti maður heims á Sýn.
21.00 Evrópska PGA-mótaröðin í
golfi á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
Heiðar Helguson:
Meiddur á hné
FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Heiðar
Helguson meiddist á hné þegar
Watford vann Burnley 3-2 í ensku 1.
deildinni á mánudag. Talið er að lið-
bönd í hné Heiðars hafi skaddast en
það skýrist ekki fyrr en síðar í vik-
unni hversu alvarleg meiðslin eru.
Heiðar meiddist einnig á hné á æf-
ingu hjá Watford um miðjan sept-
ember og gat ekki leikið að nýju
fyrr en í desember.
Samkvæmt fréttum enskra net-
miðla getur Heiðar ekki leikið með
Watford gegn Rotherham á laugar-
dag eða Millwall á þriðjudag og svo
gæti farið að hann missi einnig af
leikjunum gegn Norwich annan
laugardag og West Ham og Reading
í byrjun maí. Heiðar hefur skorað
átta mörk í 20 deildarleikjum með
Watford í vetur og má félagið varla
við því að leika án hans í fallbarátt-
unni sem fram undan er. ■
HEIÐAR HELGUSON
Meiddist í sigurleiknum gegn Burnley á
mánudag.