Fréttablaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 6
6 18. apríl 2004 SUNNUDAGURVeistusvarið?
1Hvað heitir nýr forsætisráðherraSpánar?
2Hvað er áætlað að jarðgöng til Vest-mannaeyja kosti?
3Hvað skoraði knattspyrnumaðurinnThierry Henry mörg mörk gegn
Leeds?
Svörin eru á bls. 39
ALÞINGI „Mér vitanlega liggur ekk-
ert fyrir um það hvort tækni-
frjóvgunardeild Landspítalans
verður lokað í sumar,“ segir Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra
en allir þrír læknar deildarinnar
hafa sagt starfi sínu lausu, með
þriggja mánaða fyrirvara, og
stefna að því að hefja einkarekst-
ur utan spítalans í haust.
Sérfræðingarnir hafa sótt um
starfsleyfi fyrir einkarekstur og
hefur heilbrigðisráðuneytið haft
það til umfjöllunar í nokkurn
tíma. Heilbrigðisráðherra segir
að hingað til hafi ekki þótt tíma-
bært að veita starfsleyfið.
„Það verður væntanlega aftur
farið yfir þetta mál þegar nefnd,
sem skipuð var til að skilgreina
hlutverk spítalans, hefur skilað af
sér. En að svo stöddu liggur
starfsleyfið ekki fyrir,“ segir Jón.
Mörg hundruð aðgerðir eru
framkvæmdar árlega á tækni-
frjóvgunardeildinni en færri
komast að en vilja og eru biðlistar
langir. Læknadeild Háskóla Ís-
lands og Tilvera, samtök þeirra
sem hafa nýtt sér þessa þjónustu,
hafa verið andvíg því að þjónust-
an fari út af spítalanum.
„Við getum ekki litið framhjá
því að vilji sérfræðinganna
stendur til þess að hefja einka-
rekstur,“ segir ráðherrann. ■
Virkjanaframkvæmdir
fara nú þegar af stað
Búið er að undirrita samninga um sölu á raforku vegna stækkunar Norður-
áls. Framkvæmdir hjá Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja fara á
fullt skrið. Um átta hundruð störf skapast vegna framkvæmdanna.
STÓRIÐJA Fulltrúar Norðuráls, Orku-
veitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suður-
nesja undirrituðu í gærmorgun samn-
ing um raforkusölu til stækkaðs ál-
vers Norðuráls á Grundartanga. Til
stendur að tvöfalda afkastagetu ál-
versins og mun það afkasta 180 þús-
und tonnum eftir framkvæmdirnar.
Orkuveita Reykjavíkur mun
byggja gufuaflsvirkjun á Hellisheiði
og Hitaveita Suðurnesja á Reykjanesi.
Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar,
stjórnarformanns Orkuveitu Reykja-
víkur, verða tekjur hvorrar orkuveit-
unnar um sig um milljarður króna ár-
lega. Hvort fyrirtækið sér um að út-
vega um 80 megavött til álversins.
Alfreð segir að undirbúningur að
framkvæmdum sé þegar hafinn.
„Núna strax í næstu viku hefjast
framkvæmdir með miklum krafti
bæði á Reykjanesi og á Hellisheiði,“
segir Alfreð. Hann segir að umhverf-
ismat liggi fyrir vegna beggja virkj-
ananna og því sé ekkert framkvæmd-
unum til fyrirstöðu.
„Þetta er tveggja ára fram-
kvæmdatímabil. Virkjun Suðurnesja-
manna verður tilbúin í byrjun árs
2006 og okkar virkjun á Hellisheiði
verður tilbúin á haustdögum árið
2006. Í millitíðinni mun Orkuveita
Reykajvíkur útvega raforku frá
Nesjavöllum af því við erum að
stækka virkjunina þar úr 90 mega-
vöttum í 120,“ segir hann.
Um efnahagsleg áhrif fram-
kvæmdanna segir Alfreð að um
verulega fjárfestingu sé að ræða
meðan á framkvæmdunum stendur.
Við það bætist að aukin útflutnings-
verðmæti vegna stækkunarinnar
nema um tólf milljörðum króna ár-
lega.
Um átta hundruð störf verða til á
framkvæmdatímanum. Alfreð segir
að með hliðsjón af því að atvinnuá-
stand í Reykjavík og á Reykjanesi sé
ekki nægilega gott hafi framkvæmd-
irnar mikil áhrif. „Það má segja að
þessi framkvæmd komi á hárréttum
tíma og verður mikil vítamínsprauta
fyrir atvinnulífið á höfuðborgar-
svæðinu enda er um fimmtíu millj-
arða króna innspýtingu í efnahags-
kerfið að ræða,“ segir Alfreð Þor-
steinsson. thkjart@frettabladid.is
Mannskæð umferðarslys:
Lest rakst á
skólabíl
ANKARA Að minnsta kosti sjö ung-
menni biðu bana þegar lest rakst á
skólabíl skammt
frá Ankara, höfuð-
borg Tyrklands, í
gærmorgun. Átta
manns slösuðust,
þar á meðal bíl-
stjóri skólabílsins.
Fjölskyldur skóla-
barnanna hröðuðu
sér á vettvang þeg-
ar fregnir bárust af
slysinu.
Á annan tug manna lést og 28
slösuðust þegar flutningabíll rakst á
rútu skammt frá borginni Amasya í
norðurhluta Tyrklands í gær. Að
sögn lögreglu sofnaði bílstjóri flutn-
ingabílsins undir stýri og fór yfir á
öfugan vegarhelming. Eldur kvikn-
aði í rútunni og flutningabílnum eft-
ir áreksturinn. ■
FLAK SKÓLA-
BÍLSINS
Að minnsta kosti
átta skólabörn
létu lífið í slysinu.
JÓN KRISTJÁNSSON
Heilbrigðisráðherra segir að umsókn
lækna tæknifrjóvgunardeildar um starfs-
leyfi til að bjóða upp á þjónustu utan
Landspítalans verði tekin til skoðunar þeg-
ar nefnd, sem skipuð var til að skilgreina
hlutverk spítalans, hefur skilað af sér.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VATæknifrjóvgunarlæknar vilja hefja einkarekstur:
Starfsleyfi fyrir tæknifrjóvg-
unardeild liggur ekki fyrir
STJÓRNARFOR-
MENN SKÁLA
Alfreð Þorsteinsson,
stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavík-
ur, og Ellert J. Eiríks-
son, stjórnarformað-
ur Hitaveitu Suður-
nesja, takast í hend-
ur eftir undirritun í
gærmorgun.
Varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna:
Framlengir
dvöl her-
manna
WASHINGTON Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, hefur ákveðið að framlengja
dvöl um 20.000 bandarískra her-
manna í Írak um þrjá mánuði að
beiðni yfirmanns bandaríska her-
námsliðsins, Johns Abizaid.
„Stríð ríkir í landinu og við verð-
um að gera það sem nauðsynlegt er
til að vinna,“ sagði Rumsfeld. „Fá-
mennur hópur hryðjuverkamanna
fær ekki að ákveða örlög 25 millj-
óna Íraka.“
Rumsfeld vísaði á bug fréttum
arabískra sjónvarpsstöðva um að
hundruð óbreyttra borgara, þar á
meðal fjöldi barna, hefðu fallið í að-
gerðum bandaríska hersins í Fallu-
jah síðustu daga. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M