Fréttablaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 16
Hinn 30. júní árið 2000 undirrit-uðu forsvarsmenn tveggja
stærstu útgáfufyrirtækja landsins
samrunaáætlun. Um var að ræða
Vöku - Helgafell annars vegar og
Mál og menningu hins vegar. Eign-
arhlutur félaganna tveggja var í
upphafi jafn í nýja félaginu, sem
hlaut nafnið Edda miðlun. Á miss-
erunum fyrir sameiningu hafði
Vaka - Helgafell styrkt stöðu sína
og aukið við reksturinn, meðal
annars með kaupum á Iceland
Review.
Tími tækifæranna
Þá keypti Fjárfestingarbanki at-
vinnulífsins, sem síðar var samein-
aður Íslandsbanka, helmingshlut í
félaginu í mars árið 1999. Í fréttum
af þeim kaupum kom fram að
bankinn teldi vaxtamöguleika á
sviði útgáfu og miðlunar og var
stefnt að því að bretya félaginu í al-
menningshlutafélag og skrá það á
Verðbréfaþing Íslands. Þetta var á
þeim tímum þegar fáar hugmyndir
þóttu svo fánýtar að ekki tæki því
að smíða utan um þær fallegar við-
skiptaáætlanir. Lánastofnanir og
fjárfestar höfðu fullar hendur fjár
og sú stemning ríkti á mörkuðum
að hægt væri að reikna sig upp í
ofsagróða á nokkurn veginn hvaða
viðskiptahugmynd sem er. Slegist
var um tækifæri til að dæla pen-
ingum í jafnvel hina fráleitustu
loftkastala.
Raunveruleg verðmæti
Í þessu umhverfi var vitaskuld
auðvelt að sjá fyrir sér mikla
möguleika hjá fyrirtæki á borð við
Vöku - Helgafell og Mál og menn-
ingu, sem höfðu innan sinna vé-
banda stóran hóp hæfileikaríks
starfsfólks og listamanna auk út-
gáfuréttar á ómetanlegum menn-
ingarverðmætum, meðal annars
bókum Halldórs Kiljans Laxness.
Lykilorðið í umbreytingu út-
gáfufyritækja á tímum netvæð-
ingar og hátækni var „miðlun“,
sem fól í sér að starfsemin yrði víð-
feðmari en hefðbundin útgáfu-
starfsemi, með sérstaka áherslu á
nýja tækni til miðlunar á gögnum
og afþreyingarefni.
Edda verður til
Rúmu ári eftir aðkomu Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins að Vöku -
Helgafelli var tilkynnt um samruna
félagsins við Mál og menningu, hinn
risann í íslensku bókmenntalífi. Fé-
lagið hlaut nafnið Edda miðlun og í
viðtali við Ólaf Ragnarsson, nýjan
stjórnarformann Eddu, og Halldór
Guðmundsson, útgáfustjóra félags-
ins, í Morgunblaðinu 1. júlí árið
2000 var fjallað um áformaða útrás
félagsins á erlendum mörkuðum.
„Auk þess eru uppi áform um að
Edda muni miðla því íslenska menn-
ingar- og upplýsingaefni sem Vaka -
Helgafell og Mál og menning eiga
um Netið eða með öðrum þeim
hætti [sem] ný tækni á hverjum
tíma býður upp á,“ sagði í fréttinni.
Lítil samlegð
Í grein í Morgunblaðinu um fé-
lagið 16. september árið 2000 kem-
ur fram að þrátt fyrir sameining-
una hafi enn ríkt ákveðinn sam-
keppnisandi milli deildanna sem
áður heyrðu undir móðurfélögin.
Þá var stefnt að því að neytendur
yrðu sem minnst varir við samein-
inguna og litlar breytingar urðu á
útgáfunni. „Bæði Vaka - Helgafell
og Mál og menning eru reyndar að
gefa út kennsluefni í dönsku, bæk-
ur og geisladiska og munu halda
því áfram,“ er haft eftir Ólafi
Ragnarssyni. Um hagræðingu
nefndi Halldór sem dæmi að bæði
Iceland Review, sem heyrði undir
Vöku - Helgafell, og Forlagið, sem
heyrði undir Mál og menningu,
hafi gefið út ferðamannabækur.
„Þær verða áfram gefnar út undir
nöfnum þessara tveggja forlaga
en við munum ekki fara að gefa út
sitt hvora bókina sem báðar eru
um sama efni og fyrir sama hóp-
inn hvora undir sínu forlagsnafn-
inu. Margt af þessu er bara rök-
rétt þegar menn fara að leggja það
niður fyrir sér,“ er haft eftir Hall-
dóri.
Það er því óhætt að fullyrða að
í upphafi sameiningarinnar hafi
lítil áhersla verið lögð á að fella
áþekka starsfemi hinna samein-
uðu félaga undir sama hatt. Búist
var við því að nýmiðlun yrði sífellt
stærri þáttur í starfsemi Eddu
miðlunar og sögðu forsvarsmenn
fyrirtækisins mikilvægt að til
væri öflugt íslenskt útgáfufyrir-
tæki, meðal annars til að verjast
ásókn erlendra útgáfurisa á ís-
lenskan markað, en Halldór og
Ólafur sögðust vita til þess að út-
sendarar erlendra fyrirtækja
væru að velta fyrir sér tækifær-
um á íslenska markaðinum.
Þungur rekstur
Þeir sem kunnugir eru íslenska
bókamarkaðinum hafa bent á að
rekstur stóru bókaforlaganna hafi
ekki aðeins snúist um rekstur held-
ur hafi flokkapólitík einnig verið
viðkvæmt úrlausnarefni innan
fyrirtækjanna. Fljótlega mun hafa
komið í ljós að reksturinn stóð ekki
undir þeim væntingum sem til
hans voru gerðar við sameining-
una og hefur félagið skilað miklu
tapi frá sameiningunni.
Nýtt hlutafé
Í janúar árið 2002 var hlutafé í
Eddu miðlun aukið og við það eign-
aðist Mál og menning meirihluta í
félaginu. Þá var einnig tilkynnt að
ekki væri tímabært að skrá félagið
á Verðbréfaþing. Um sama leyti
hófust þreifingar á milli Máls og
menningar og Björgólfs Guðmunds-
sonar um að hann kæmi að félaginu.
Hinn 25. mars 2002 birtist frétt í
Fréttablaðinu þar sem fram kom að
Björgólfur íhugaði kaup á hlut í fé-
laginu. Þar kom fram að staða fyrir-
tækisins væri ekki góð og að Ís-
landsbanki, eigandi um fjórðungs-
hlutar, væri tregur til frekari fyrir-
greiðslu til handa félaginu. Daginn
eftir staðfesti Ólafur Ragnarsson,
stjórnarformaður Eddu, við Frétta-
blaðið að verið væri að undirbúa
hlutafjárútboð.
Björgólfur til sögunnar
Í byrjun apríl 2002 var tilboði
Björgólfs Guðmundssonar um kaup
á félaginu hafnað. Hinn 24. maí 2002
náðist hins vegar samkomulag um
kaup Ólafsfells, félags í eigu Björg-
ólfs Guðmundssonar, á nýju hlutafé í
félaginu upp á eitt hundrað milljónir.
Ólafsfell keypti einnig hlut þeirra
sem stóðu að Vöku - Helgafelli við
sameininguna; fjölskyldu Ólafs
Ragnarssonar og Íslandsbanka. Fé-
lag Björgólfs átti eftir þessi við-
skipti 68 prósent í Eddu.
Um haustið 2002 lögðu forráða-
menn Ólafsfells fram greinargerð
um stöðu mála í Eddu þegar kaupin
áttu sér stað. Samkvæmt mati
þeirra var upplýsingum um fjár-
hagsstöðu fyrirtækisins verulega
ábótavant og mikil óreiða í bók-
haldi. Mikil frávik voru á milli þess
bráðabirgðauppgjörs sem lá til
grundvallar kaupum Ólafsfells í fé-
laginu og niðurstöðu samþykkts
ársreiknings fyrir árið 2001. Í kjöl-
far þessa fór fram endurskoðun á
verði hlutarins sem Ólafsfell keypti
af Íslandsbanka og við hlutafjár-
aukningu var tekið tillit af hálfu
Máls og menningar til þessa mis-
ræmis.
Rekstri gjörbreytt
Frá því að nýir eigendur tóku við
stjórnartaumum í Eddu hefur rekst-
urinn tekið miklum umskiptum.
Starfsmönnum hefur fækkað um 75
prósent, úr tvö hundruð niður í
fimmtíu, og hefur velta félagsins
dregist saman úr 1,7 milljörðum
króna í 1,3 milljarða á síðasta ári.
Bókabúðir hafa verið seldar frá fyr-
irtækinu, tónlistardeild seld, hús-
næðisnotkun dregin saman, tíma-
ritaútgáfan seld og svokölluð
nýmiðlunardeild lögð niður. Þá var
útgefnum titlum fækkað verulega.
Fram hefur komið að þrátt fyrir
þessar aðgerðir sé staða Eddu veik
og hefur verið haft eftir Páli Braga
Kristjónssyni, núverandi forstjóra,
að rekstur fyrirtækisins gangi ekki
nema til komi aukin fjármögnun.
Hann hefur þó látið hafa eftir sér að
framlegð frá rekstri fyrirtækisins,
það er afkoma án tillits til fjár-
magnsliða, sé að komast í jafnvægi.
Þá hefur verið lögð áhersla á skýr-
ari markaðssetningu erlendis þar
sem stigin verða smá skref en
markviss.
Enn meira hlutafé
Á hluthafafundi sem boðaður
hefur verið 23. apríl næstkomandi
verður að líkindum tekin ákvörðun
um niðurskrift á hluta af hlutafé
og útgáfu á nýju hlutafé. Ekki ligg-
ur fyrir hvort Mál og menning taki
þátt í þeirri hlutafjáraukningu en
geri hún það ekki – og Ólafsfell
leggi eitt fram nýtt hlutafé – mun
Björgólfur Guðmundsson ráða yfir
rúmlega níutíu prósentum hluta-
fjár. Enn gætu orðið eftirmál af
þeirri óreiðu sem sögð er hafa ver-
ið á bókhaldi félagsins við kaup
Ólafsfells árið 2002 en komið hefur
fram að félagið mun óska eftir
óháðu mati á þeim.
Fram hefur komið hjá stjórn-
endum félagsins að nú líti út fyrir
að reksturinn geti borið sig. Til
þess telja þeir þó að koma þurfi til
nýtt fé enda sé félagið of skuld-
sett og því þurfi hlutafjáraukning
að koma til.
thkjart@frettabladid.is
18. apríl 2004 SUNNUDAGUR
■ Viðskipti
Edda enn á
tímamótum
Þegar Vaka - Helgafell og Mál og menning sameinuðust í Eddu miðlun
voru uppi miklar áætlanir um landvinninga erlendis. Nýmiðlun og tónlist
bættust við starfsemina. Gríðarlegt tap hefur verið á rekstrinum og nú
þarf enn að bæta við hlutafé en reksturinn mun vera kominn í jafnvægi.
BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON
Félagið Ólafsfell, sem er í eigu Björg-
ólfs, á nú ríflega 68 prósent í Eddu út-
gáfu. Að mati Ólafsfells þarf að skrifa
niður núverandi hlutafé og gefa út nýtt
til þess að reksturinn geti borið sig en
félagið er sligað af skuldum sem stofn-
að var til á síðustu árum.