Fréttablaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 21
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 43 stk.
Keypt & selt 27 stk.
Þjónusta 49 stk.
Heilsa 9 stk.
Skólar & námskeið 4 stk.
Heimilið 6 stk.
Tómstundir & ferðir 7 stk.
Húsnæði 22 stk.
Atvinna 13 stk.
Tilkynningar 2 stk.
til London og Kaupmannahafnar
Tvisvar á dag
Nám í fótsnyrtingu
Bls. 2
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 18.
apríl, 109. dagur ársins 2004.
Reykjavík 5.44 13.27 21.12
Akureyri 5.21 13.12 21.05
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
„Ég er mjög ánægð með starfið mitt og
er ekki með skipti í huga í bili,“ segir
Ásgerður Ingibergsdóttir tanntæknir.
Hún hefur síðustu sex árin unnið á tann-
læknastofu Þórarins Sigþórssonar sem
stundum er nefndur Tóti tönn. Ásgerður
er þekkt úr kvennafótboltanum þar sem
hún var meðal annars árum saman í ís-
lenska landsliðinu en nú hefur hún lagt
skóna á hilluna. Hún kveðst kunna því
vel að vera hætt. „Nú hef ég allt í einu
tíma fyrir önnur áhugamál, get sótt
námskeið og fleira skemmtilegt sem
ekki var hægt áður.“ segir hún. Ásgerð-
ur menntaði sig sem tanntækni, fyrst í
tvö ár í Heilbrigðisskólanum við Fjöl-
braut í Ármúla og eitt ár í Tannlækna-
deild Háskólans. Námið var bæði bók-
legt og verklegt. En hvenær hættu að-
stoðarstúlkur tannlækna að vera kallað-
ar klínikdömur? Ásgerður upplýsir að
það hafi verið árið 1998. „Félag aðstoð-
arfólks tannlækna hélt upp á 20 ára af-
mæli sitt það ár og þá fékk það starfs-
heiti sínu breytt í tanntækna. Námið við
Heilbrigðisskólann er viðurkennd starfs-
menntun og nemendur hljóta löggildingu
strax að henni lokinni.“ segir hún.
En í hverju er starf hennar fólgið á
stofunni hjá Þórarni? „Vinnudagurinn
skiptist í tvennt hjá mér. Hálfan daginn
er ég í afgreiðslunni, svara í símann,
bóka sjúklingana, held utan um listana
og annað sem tilheyrir daglegum rek-
stri og hinn hluta dagsins vinn ég inni á
klínikinni með Tóta við að sinna fólkinu.
Þá er ég að taka myndir og mát, blanda
fyllingar, sjá um áhöldin og fleira.“ Ás-
gerður kveðst aldrei hafa lent í neinum
hremmingum vegna óþægra sjúklinga
og segir samkomulagið líka gott við
Þórarin og Ragnheiði konu hans sem
vinnur á móti henni á vöktunum. Hún
hlær þegar henni er þar líkt við þriðja
hjól. „Samstarfið er auðvitað orðið náið.
Við erum ofan í hvert öðru allan dag-
inn!“
gun@frettabladid.is
Vinnur hjá Tóta tönn:
Sér um bókanir og
tekur myndir og mát
Ásgerður Ingibergsdóttir Hefur aldrei fengið óþæga sjúklinga á tannlæknastofuna.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Lítið ekinn Ford Escort 1400 station
1996 bensín, beinskiptur, dráttarkúla,
góð nagla- og sumardekk, ekinn 115 þ.
Skoðaður 2004. Verð 280 þ. Sími 895
1250.
Toyota Corolla XLI ‘95. Ekinn 167 þ. Í
toppstandi, sk. ‘05. Verð 360 þ. Uppl.
Guðmundur, 698 0000.
BMW 318i, ‘99. Ek. 80 þ. Álfelgur, spól-
vörn, aksturstölva o.fl. S. 846 6137.
Toy. Carina E Gli 2.0. Tilboð 260 þ. Op.
Corsa ‘99. S. 849 6117.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
atvinna@frettabladid.is
Ferðalangur 2004 er fagnaður
sem haldinn verður í Reykjavík á
sumardaginn fyrsta, þann 22. apríl.
Þar verður ferðaþjónustan kynnt fyr-
ir íbúum höf-
uðborgarsvæð-
isins, meðal
annars til að
benda á mikil-
vægi hennar
sem atvinnu-
greinar. Að við-
burðinum standa Höfuðborgarstofa,
Ferðamálasamtök höfuðborgar-
svæðisins, Ferðamálaráð, SAF og fyr-
irtæki í ferðaþjónustu á höfuðborg-
arsvæðinu.
Dagskráin er fjölbreytt og fer fram
víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu.
M.a. verður boðið upp á rútuferð á
heimaslóð kryddaða ýmiskonar af-
þreyingu, sjóstangaveiði, kajaksigl-
ing, útreiðatúr, hellaskoðun, kletta-
klifur eða safnaskoðun. Meiningin er
að heimamenn horfi á borgina og
umhverfi hennar með augum ferða-
mannsins.
Akureyrskum unglingum
fæddum 1988 er gefinn kostur á
sex vikna vinnu í sumar hjá bæj-
arfélaginu sínu. Miðað er við sjö
tíma á dag eða samtals 210
vinnustundir. Vinna 14 og 15 ára
unglinga verður með svipuðum
hætti og síðastliðið sumar og
verða störfin auglýst síðar.
Suðurnesjamenn vilja snúa
vörn í sókn í atvinnumálum á
næstu misserum. „Við höfum verið
með fólk af atvinnuleysisskrá í
starfsþjálfun í þrjá til sex mánuði hjá
ýmsum fyrirtækjum. Það er plástur á
sárin og betra en ekki neitt,“ segir
Ketill Jósepsson hjá Reykjanesbæ.
Hann segir Suðurnesjamenn búa
við allmikið atvinnuleysi annað árið
í röð sem rekja megi til uppsagna
hjá Varnarlið-
inu. Nú segir
hann mikið af
ónýttum
mannvirkjum á
svæðinu sem
ýmsir mögu-
leikar felist í.
Ferðamönnum til Íslands
fjölgaði um 13,4% fyrstu þrjá
mánuði ársins miðað við sama
tímabil í fyrra. Störfum í ferða-
þjónust-
unni
fjölgar
ekki að
sama
skapi að
sögn
Þorleifs
Þórs Þorleifssonar, hagfræðings
Samtaka ferðaþjónustunnar. „Þar
er svo mikil aukaafkastageta á
þessum árstíma,“ segir hann. „Ef
gestum fjölgaði um 15% yfir allt
árið gæti það leitt af sér 7% fjölg-
un starfa,“ reiknaði hann út snar-
lega og kom með smá hliðar-
dæmi: „Það þarf ekki fleiri rútu-
bílstjóra þótt farþegum fjölgi úr
tveimur upp í 50 og þjónar geta
oft bætt við sig borðum.“
Liggur í loftinu
Í ATVINNUMÁLUM
Í marsmánuði voru
skráðir 114.789 at-
vinnuleysisdagar á
landinu öllu sem
jafngilda því að
4.991 hafi að með-
altali verið á at-
vinnuleysisskrá í
mánuðinum. Þess-
ar tölur jafngilda
3,5% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á
vinnumarkaði. Meðalfjöldi atvinnulausra var um 2% minni í mars en í
febrúar en um 11,6% minni en í mars árið 2003. Ekki er líklegt að at-
vinnuástandið breytist mikið í apríl og er talið að atvinnuleysið geti
orðið á bilinu 3,3% til 3,6%.
Atvinnuleysi minnkaði alls staðar frá febrúar, nema á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem það er nú 3,9%. Á landsbyggðinni er atvinnuleysi
3% en mest minnkaði það á Suðurlandi og Vestfjörðum. Á lands-
byggðinni er atvinnuleysið mest á Suðurnesjum, 4,3%, en minnst er
atvinnuleysið á Austurlandi, 1,9%. Atvinnuleysi er nú alls staðar
minna en í mars 2003 nema á Vestfjörðum. Það hefur minnkað hlut-
fallslega mest á Austurlandi og á Vesturlandi.
Atvinnulausum körlum fækkaði um 4,2% milli febrúar og mars og var
sú fækkun á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu var lítils háttar
fjölgun. Heildarfjöldi atvinnulausra kvenna breyttist lítið, fjölgun var á
höfuðborgarsvæðinu en fækkun á landsbyggðinni.
Framboð af lausum störfum í lok mars jókst frá því í febrúar. 482 störf
voru laus hjá vinnumiðlunum í lok mars en 357 í lok febrúar. Um 30%
þessara starfa eru á höfuðborgarsvæðinu.
Atvinnuleysi:
Ekki miklar
breytingar í apríl
Lausum störfum fjölgaði lítillega Atvinnu-
leysi verður lílklega 3,3 til 3,6% í apríl.