Fréttablaðið - 18.04.2004, Qupperneq 23
3
ATVINNA
!"
#$% &'(%)#* ($%&
+,&&,-'*,
-%(##'$ (&.-'&/0-&.1&
+,&-'&/0-2)3 0.
Íþróttakennarar
Laus er til umsóknar íþróttakennarastaða við
Kirkjubæjarskóla á Síðu.
Kirkjubæjarskóli er grunnskóli á Kirkjubæjarklaustri
með um 70 nemendur. Nýtt og glæsilegt
íþróttahús var nýlega tekið í notkun. Aðbúnaður
nemenda og starfsfólks er ágætur. Við skólann er
nýtt tölvuver og sérlega vel búið bókasafn og þar
er einnig starfræktur tónlistarskóli. Við skólann
starfar metnaðarfullur og samhentur hópur
kennara og starfsfólks. Á Kirkjubæjarklaustri er að
finna alla nauðsynlega þjónustu s.s. heilsugæslu-
stöð og leikskóla,.
Upplýsingar veitir Stella Á. Kristjánsdóttir, skólastjóri
og Kjartan Kjartansson aðstoðarskólastjóri í símum
487-4633/ 865-7440. Fyrirspurnir má senda á
netfang skólastjóra, stellak@ismennt.is. Nánari
upplýsingar um skólann og Skaftárhrepp er að
finna á heimasíðu Kirkjubæjarskóla http://kbs.is
og á heimasíðu Skaftárhrepps www.klaustur.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og
Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 17. maí.
Skriflegar umsóknir skulu berast til skólans merkt-
ar; Kirkjubæjarskóli, bt. skólastjóri, Klausturvegi 4,
880 Kirkjubæjarklaustur.
Tónlistarkennarar
Tónmenntaskólinn óskar eftir að ráða
tónmenntakennara (tónlistarkennara) frá 1.
september nk. fyrir skólaárið 2004 - 2005.
Um er að ræða eina hlutastöðu. Kennslusvið
nær frá forskólakennslu 6 og 7 ára barna til
hópkennslu nemenda á aldrinum 8 - 15 ára, en
þar er um að ræða samþætta kennslu í tón-
fræði, tónheyrn, hlustun, sköpun o.fl. Einnig er
auglýst eftir 2 píanókennurum í hlutastöður.
Tónmenntaskóli Reykjavíkur er einn af elstu
tónlistarskólum landsins, stofnaður 1952, og er
til húsa við Lindargötu. Kennslustaða er góð og
tækjakostur mjög góður.
Þeir, sem áhuga hafa á þessu starfi, vinsamlega
sendi skriflega umsókn, þar sem fram koma
persónuupplýsingar og upplýsingar um mennt-
un og kennsluferil. Meðmæli óskast.
Umsóknir sendist auglýsingadeild DV fyrir 30.
apríl, merktar : „Tónlistarkennsla - 101“.
Tónmenntaskóli Reykjavíkur
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Skólastjóri og aðstoðarskólastjóri
Öldutúnsskóla
Staða skólastjóra við Öldutúnsskóla er laus til
umsóknar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf í júní.
Meginhlutverk skólastjóra er að stýra og bera
ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans en
einnig að veita skólanum faglega forystu á sviði
kennslu og þróunar í skólastarfi.
Staða aðstoðarskólastjóra við Öldutúnsskóla er
laus til umsóknar. Staðan er veitt frá 1. ágúst.
Umsækjendur um stöðurnar þurfa að hafa til að
bera eftirtalda þætti:
· Kennaramenntun
· Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar,
uppeldis- eða kennslufræði og reynslu
af stjórnun
· Lipurð í mannlegum samskiptum
· Metnað og áhuga fyrir nýjungum
Öldutúnsskóli er heildstæður, einsetinn
grunnskóli með 640 nemendur. Í skólanum
er mjög blómleg starfsemi, öflugt félagsstarf
og nýbreytni á ýmsum sviðum. Í Hafnarfirði
eru íbúar rúmlega 21.000 og ríkjandi er já-
kvætt og metnaðarfullt viðhorf til skólamála.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar er þjónustumiðstöð í
þágu menntunar í bæjarfélaginu og þar starfa sér-
hæfðir starfsmenn sem veita faglega ráðgjöf og
þjónustu sem hæfir hverju sinni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús Bald-
ursson, fræðslustjóri í síma 585 5800, netfang
magnusb@hafnarfjordur.is en fræðslustjóri er næsti
yfirmaður skólastjóra.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi lau-
nanefndar sveitarfélaga og KÍ.
Umsókn þarf að innihalda yfirlit um menntun og
reynslu. Umsóknarfrestur um stöðu skólastjóra er
til og með 9. maí en umsóknarfrestur um stöðu
aðstoðarskólastjóra er til og með 16. maí.
Umsóknum ber að skila á Skólaskrifstofu
Hafnarfjarðar, Strandgötu 31, 220 Hafnarfjörður.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
Egilsstaðir: Tækifæri fyrir fagmann í hárgreiðslu.
Við höfum rekið hársnyrtistofu á Egilsstöðum í tæp 5 ár.
Nú er uppsveifla á Austurlandi og við viljum bæta við okkur.
Starfsandinn er góður og viðskiptin ganga vel.
Bjóðum nú til leigu stól fyrir góðan fagmann í haust.
Hársnyrtistofan Caró
Einbúablá 29
700 Egilsstaðir
s. 860-2980 (Vordís)
Smáauglýsingar sem allir sjá
515 7500
Pantaðu fyrir kl. 15
Pöntun á smáauglýsingu í Fréttablaðið á
morgun verður að berast fyrir kl. 15 í dag
Smáauglýsingar:
550 5000
Skaftahlíð 24
visir.is