Fréttablaðið - 18.04.2004, Side 33
hafa verið byggðir ódýrt. Víða úti
á landi eru menn kannski að borga
tuttugu þúsund í félagsgjöld og
geta spilað golf sex mánuði á ári.“
Reglur um klæðaburð
Á sumum golfvöllum eru gerðar
ákveðnar kröfur um klæðaburð.
Hörður segir að það sé ætlast til
þess að fólk komi snyrtilega til
fara á golfvöllinn en það sé engin
krafa um að það klæðist dýrum
fatnaði. „Þetta er hluti af leiknum
því golfíþróttin krefst ákveðins
sjálfsaga og það er lögð áhersla á
að það sé borin virðing fyrir íþrótt-
inni sjálfri – að menn séu snyrtileg-
ir gagnvart umhverfi sínu og öðr-
um,“ segir Hörður. Hjá sumum
golfklúbbum er fólki meinaður að-
gangur að völlunum klæðist það
gallabuxum. Hörður segir það
frekar vera af praktískum ástæð-
um. „Þetta er partur af því að virða
íþróttina og umhverfið almennt. Ég
held að þetta sé mikilvægur þáttur
að halda í þennan aga og virðingu
sem þarf í golfið, sérstaklega gagn-
vart unglingum og börnum. Menn
eiga ekki að líta á það sem nei-
kvæðan hlut.“ Hörður nefnir sem
dæmi að fólki mæti ekki í gallabux-
um í handbolta enda séu þær
óhentugar til þess. „Hér á Íslandi
eru menn ekki mjög harðir varð-
andi fatnaðinn en víða erlendis
færðu ekki að fara inn á velli í
gallabuxum.“
Golfið komið til að vera
Hörður er sannfærður um að
golfsprengjan sé komin til að
vera. „Við þurfum að byrja á því
að leysa þennan golfvallavanda.
Æfingasvæði eins og í Grafarholti
koma til með að leysa hluta af hon-
um og við þurfum að leggja meiri
áherslu á að fólk byrji þar þannig
það verða kannski meiri kröfur á
stóru völlunum þegar fólk fer
þangað. Það er til að halda uppi
leikhraða svo vellirnir afkasti
þokkalega. Við förum kannski þá
leið sem hefur verið farin víða er-
lendis þar sem er gerð krafa um
forgjafaskírteini – þannig að fólk
sé búið að ná ákveðinni getu áður
en það fer inn á golfvöllinn. Þá á
fólk möguleika á að vera á ódýrari
og minni völlum til að byrja með.
Það er eitthvað sem mætti skoða í
Reykjavík, að koma upp æfinga-
völlum, þannig að byrjendur geti
lært íþróttina. Ég hef trú á því að
þessi aukning eigi eftir að halda
áfram því golfið er mjög hagstæð
heilsurækt.“
Fleiri börn og unglingar
Hörður segir golfið líka vera
orðið meiri afreksíþrótt. „Ungir
krakkar og börn eru farin að
horfa á golfið sem alvöru íþrótta-
grein en ekki sem eitthvað karla-
sport. Fólk er farið að hugsa að ef
það ætli að ná langt í íþróttinni
þurfi það að vera í toppformi lík-
amlega, einbeitt og agað. Fólk
verður að æfa jafn mikið og í öðr-
um íþróttagreinum. Við erum að
upplifa það núna að miklu fleiri
börn og unglingar eru að koma
inn í íþróttina. Það sem er til
dæmis jákvætt við könnun
Gallups er að 50 prósent af börn-
um 12 til 20 ára hafa áhuga á golf-
íþróttinni. Það er miklu hærri
tala en var fyrir nokkrum árum.
Það er gott að áhuginn er svona
mikill því þá getum við vonandi
byggt upp sterka afrekssveit.
Vandamálið er hins vegar að geta
tekið við þeim og hafa aðstöðu
fyrir þau.“
kristjan@frettabladid.is
25SUNNUDAGUR 18. apríl 2004
GRAFARHOLTSVÖLLUR
Grafarholtsvöllur er elsti golfvöllurinn á Íslandi, tekinn í notkun í maí árið 1934, fyrir réttum 70 árum.
HÖRÐUR ÞORSTEINSSON
Framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands telur að þörf sé á fleiri golfvöllum enda hefur
kylfingum fjölgað gríðarlega síðustu ár.
Golfklúbbur Reykjavíkur, elstiog stærsti golfklúbbur lands-
ins, stendur nú í stórræðum við
byggingu á nýju æfingasvæði í
Grafarholti. Æfingasvæðið er í
raun þriggja hæða skýli með 72
básum þar sem kylfingar geta æft
allan ársins hring. Það er eina æf-
ingasvæði sinnar tegundar hér á
landi – minnir um margt á æfinga-
skýli sem sjást í bandarískum bíó-
myndum. Æfingasvæðið verður
flóðlýst þannig að skammdegið á
ekki að koma í veg fyrir golfiðkun.
„Þetta er algjör bylting fyrir
golfið sem felst meðal annars í því
að það verður hægt að æfa allan
ársins hring við góðar aðstæður,
það er ef veðurguðirnir leyfa,“
segir Ómar Örn Friðriksson hjá
Golfklúbbi Reykjavíkur. Reykja-
víkurborg og Golfklúbbur
Reykjavíkur standa að uppbygg-
ingu svæðisins, sem kostar um
110 milljónir.
Framkvæmdir eru nú í fullum
gangi en stefnt er að því að vígja
svæðið þann 3. júlí. ■
Golfiðkun á Íslandi
hefur yfirleitt verið
ódýr og það er ákveðin
tröllasaga um að þetta sé
eitthvað ríkra manna sport.
,, ÆFINGASVÆÐIÐSvona kemur æfinga-svæðið til með að líta útþegar byggingu er lokið.
Bylting fyrir golfið
FRAMKVÆMDIR
Framkvæmdir standa nú yfir en áætlað er að svæðið verði tekið í notkun í sumar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
TÖ
LV
U
M
YN
D
/O
N
N
O