Fréttablaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 34
MONTREAL, KANADA
26 18. apríl 2004 SUNNUDAGUR
Hver er maðurinn?
Stríðinn
draumóra-
maður
Við spyrjum að þessu sinni umkarlmann á miðjum aldri. Um
hann segir Daði Guðbjörnsson
listmálari meðal annars: „Hann er
afar ljóðrænn í sínum störfum og
mikill hugsjónamaður. Hann er
líka hjálpsamur öðrum í sínu fagi
og hefur nýtt velgengni sína til að
aðstoða aðra.“ Daði segir hann
líka skemmtilegan og stríðinn. En
sér hann engar neikvæðar hliðar á
okkar manni? „Nja, það er þá
helst hvað hann er mikill draum-
óramaður, en það er svo sem bæði
veikleiki og styrkleiki.“
Ólafur H. Torfason rithöfundur
segir okkar mann afar dulan en
um leið dæmigerðan Íslending í
augum umheimsins. Ólafur segir
enn fremur: „Það sem sumir halda
hroka og mont í honum er eðlileg
reisn og bjartsýnt sjálfsöryggi
hins snjalla og ódrepandi sögu-
manns,“ og enn fremur: „Það vita
fæstir og trúa síst að hann hefur
lítt eða aldrei brúkað tóbak.“
Þorfinnur Ómarsson, verk-
efnastjóri hagnýtrar fjölmiðlunar
við HÍ, segir manninn í grunninn
hinn besta kall, dreng góðan og
vilja vel. „Hann er mikill
húmoristi, getur verið stríðinn, en
hefur reyndar meiri húmor fyrir
öðrum en sjálfum sér. Hann elsk-
ar að segja sögur – aðallega hrak-
farir af öðrum og svo auðvitað
frægðarsögur af sjálfum sér frá
ýmsum heimshornum, enda lýkur
flestum sögum hans á: „And then
I said....“ og síðan kemur einhver
brilljant rúsína.“ Þorfinnur segir
hann líka hafa gaman af að plotta:
„Hann er mesti sérfræðingur í
samsæriskenningum – líka þegar
þær eiga ekki við...“ Og nú spyrj-
um við, hver er maðurinn? Svarið
er á blaðsíðu 28. ■
Lögreglumál í
Bandaríkjunum:
Sjónvarpið
meira virði
en móðirin
Bandarískur táningur hefurverið ákærður fyrir að hafa
ráðið mann til að drepa móður
sína. Drengurinn, 17 ára gamall,
bað manninn sem hann réð til
verksins um að gæta vel að því að
eyðileggja ekki sjónvarpstæki
fjölskyldunnar í árásinni. Lög-
reglan hóf rannsókn málsins eftir
vísbendingu um að drengurinn,
Carlos Chereza, hefði lagt á ráðin
um morð á móður sinni. Rann-
sóknarlögreglumaður kom sér í
mjúkinn hjá Carlos, sem bauð
honum um 130 þúsund krónur
fyrir morðið en þeir peningar
voru hluti af bankainnistæðu
móðurinnar. Carlos lét lögreglu-
manninn fá lykla og kort af íbúð-
inni og mynd af móðurinni. Hann
vildi að móðirin yrði skotin til
bana og að látið yrði líta svo út að
um innbrot hefði verið að ræða.
Carlos var handtekinn eftir fund
sinn með lögreglumanninum.
Samkomulagið milli sonar og
móður mun ekki hafa verið upp á
það besta. ■
Það styttist í Listahátíð í Reykjavík, en hún fer fram dagana 14. til 31. maí. Dagskráin er glæsileg og
um 200 erlendir listamenn munu koma hingað til lands af þessu tilefni. En hverjir eru þessir listamenn
og hvaðan koma þeir? Fréttablaðið skoðaði málið og komst að raun um að þeir koma æði víða að.
Listamenn frá öllum
heimshornum
Marc-André Hamelin píanóleik-
ari Að flestra mati einn besti
píanóleikari samtímans. Súper-
virtúós. Hann er sá sem „sérfræð-
ingarnir“ óskuðu helst að kæmi á
listahátíð, enda snillingur á ferð.
Hamelin spilar í Háskólabíói 15.
og 16. maí.
ST. PÉTURSBORG, RÚSSLANDI
Olga Borodina mezzósópran Stundum kölluð
Ferrari óperuheimsins. Hún mun syngja með
Sinfóníunni í Háskólabíói 19. og 22. maí.
MADRÍD, SPÁNI
Sýningin á Kenjunum eftir Francisco de
Goya Þessi sýning á Kenjunum eftir einn
mesta snilling listasögunnar, Francisco de
Goya, opnar í Listasafninu á Akureyri þann
15.maí. Um er að ræða dýrasta verkefni sem
Listasafnið á Akureyri hefur ráðist í.
QAANAAQ, GRÆNLANDI
Pólstjörnur, tónlistardagskrá Frá Græn-
landi kemur trommudansarinn Robert
Pears og tekur þátt í einstöku tónlistar-
verkefni með tónlistarmönnum frá Belgíu,
Kutuaq á Grænlandi og íslenska slagverks-
manninum Pétri Grétarssyni. Fer fram í
Borgarleikhúsinu þann 27. maí.
PARÍS, FRAKKLANDI
Dominique Perrault arkitekt Hann hann-
aði meðal annars þjóðarbókhlöðu Frakk-
lands, varð heimsfrægur fyrir vikið og er
einn sá virtasti í faginu. Perrault mun flytja
fyrirlestur í Hafnarhúsi þann 29. maí.
BRISBANE, ÁSTRALÍU
Listakonan Tamara Kirby Kirby er höf-
undur svokallaðs Lifandi líkneskis sem
sett verður upp í Hljómskálagarðinum 15.
maí með tilstyrk 180 grunnskólanema
sem taka munu þátt í verkefninu í mið-
bænum þann dag. Leikstjóri er Ágústa
Skúladóttir.
PARÍS, FRAKKLANDI
Gyðingadjassbandið Klezmer Nova Þeir spila í Broa-
dway 28. maí, Seyðisfirði 29. maí og Akureyri 30.
maí. Um er að ræða hámenntaða tónlistarmenn og
margir hverjir spila í þekktum sinfóníuhljómsveitum
ytra. Klezmer Nova þykir líklegt til þess að mynda
svipaða stemningu í kringum sig og Les Negresses
Vertes gerði á Íslandi á árum áður.
NEW YORK, BANDARÍKJUNUM
Roni Horn myndlistarmaður Þessi heimsþekkta
listakona er mikill Íslandsvinur. Hún opnar sýn-
ingu í Listasafni Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum
þann 20. maí. Hún hefur meðal annars látið
hafa eftir sér að hún elski veðrið hér á landi
eins og það er.
ÍTALÍA
Francisco Clemente myndlistarmaður Hann opn-
ar sýningu í Listasafni Reykjavíkur Kjarvalsstöðum
þann 20.maí og kemur til landsins í tilefni opnun-
arinnar. Sagt er um Clemente að hann sé ein hels-
ta „poppstjarnan“ í myndlistabransanum í dag, og
prýðir hann gjarnan forsíður glansblaða í Banda-
ríkjunum, þar sem hann er búsettur nú.
FINNLAND
Ljósmyndasýningin Nýir veruleikar Þessi sýn-
ing á finnskri samtímaljósmyndun verður opnuð
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur þann 16. maí.
Finnsk ljósmyndun hefur notið mikillar hylli
undanfarið og þykja margir finnskir ljósmyndar-
ar vera þeir fremstu í fagi sínu á Norðurlöndum.
Nokkrir þeirra verða viðstaddir opnunina.
BANDARÍKIN
Í nærmynd Sýning á bandarískri samtímalist. Hinn
heimsfrægi myndlistarmaður Jeff Koons kemur m.a.
til landsins vegna sýningarinnar, sem er hin merki-
legasta, enda bandarísk samtímalist vel til þess fallin
að hrista upp í landanum. Sýningin opnar 14. maí í
Listasafni Íslands. Meðal sýningargripa er postulíns-
stytta af Michael Jackson.
BRETLAND
Brodsky-strengjakvarttettinn Þessi víðfrægi
kvartett, og samstarfsfólk Bjarkar, spilar 28. maí í
Íslensku óperunni og 29. maí í Borgarleikhúsinu. Á
fyrri tónleikunum mun kvartettinn frumflytja nýtt
íslenskt verk sem Snorri Sigfús Birgisson hefur
samið sérstaklega fyrir hann. Sjón mun síðan fara
á kostum, ef að líkum lætur, sem sögumaður á
seinni tónleikunum í Borgarleikhúsinu.
MOSKVA, RÚSSLANDI
St. Basil-karlakórinn Himneskir bassar og
silkimjúkir tenórar, og þess má geta að í
kórnum er fræg poppstjarna. Uppselt er á
eina tónleika og miðar eru að klárast á
hina. Tónleikarnir fara fram í Hallgríms-
kirkju og Reykholtskirkju 15. og 16. maí.
BERLÍN, ÞÝSKALANDI
Schaubühne-leikhópurinn Leikhúsgaldur
aldarinnar að margra mati. Leikstjórinn
Sasha Waltz þykir hafa magnaða kímni-
gáfu. Sýningar hópsins verða 21. og 22.
maí í Borgarleikhúsinu.
KILDARE- OG DERRY-SÝSLA, ÍRLANDI
Seamus Heaney skáld og Liam O’Flynn sekkjapípu-
leikari Nóbelsverðlaunahafinn Seamus er frá Derry-
sýslu og Liam er frá Kildare-sýslu. Þeir koma fram með
dagskrána Skáldið og sekkjapípuleikarinn á Höfn í
Hornafirði 22. maí, á Akureyri 23. maí og í Íslensku óp-
erunni 24. maí. Seamus Heaney mun hafa heillast af Ís-
landi árið 1995 og samdi m.a. ljóð um landið sem hann
tileinkaði Aðalsteini Ingólfssyni listfræðingi.
NAPÓLÍ, ÍTALÍU
Þjóðlagasveitin NCCP Heyrst hefur að
þessi grúppa sé eitt best geymda leyndar-
mál Listahátíðar. Mikilla arabískra áhrifa
gætir í tónlistinni. Hún spilar á NASA 23.
maí.
RÓM, ÍTALÍU
Klassíska hljómsveitin I Solisti Veneti
Spilar Vivaldi, Puccini og aðra ítalska
klassík í Hallgrímskirkju 23. maí. Flutning-
urinn er jafnan ægifagur, enda þykir
hljómsveitin með bestu klassískum sveit-
um Evrópu um þessar mundir. Einleikari á
flautu verður Áshildur Haraldsdóttir.
LIMA, PERÚ
Susana Baca söngkona Þessi heims-
fræga söngkona og Grammy-verðlauna-
hafi treður upp í Broadway 30. og 31.
maí. Baca þykir mikil sviðsmanneskja og
því ætti enginn að vera svikinn af tónleik-
um hennar.
TÓKÝÓ, JAPAN
Sanaki Juku-danshópurinn Hreyfingar í kvikmyndinni
Matrix eru sprottnar frá þessum danshópi. Hann mun
sýna Hibiki í Þjóðleikhúsinu 19. og 20. maí. Sagt er að
töfrarnir séu slíkir að áhorfendur upplifi allt annað
tímaskyn á meðan á sýningu stendur.
TÍBLISI, GEORGÍU
Rustaveli-þjóðleikhúsið Hér mun vera á
ferðinni eldfim sýning, og Robert Sturua
er af mörgum talinn besti Shakespeare-
leikstjóri allra tíma. Leikhúsið mun sýna
Þréttándakvöld í Þjóðleikhúsinu þann 14.
og 15. maí.