Fréttablaðið - 18.04.2004, Síða 46
LAUSN
Skriðþungi verðandinnar
ólínulegt öldurót tímans
gegn duttlungum og tittlingaskít
sem hverfa og gleymast
við hið fyrsta rangnefnda lífsmark.
Valtar yfir allt fyrr og síðar
og malbikar veröldina
frá ódeili til klassískrar eilífðar
hins nauma mannheims
því utan hans er ekkert
og innanstokksmunir fátæklegir.
Sú hin vota gröf
undir afvegaleiddum siglingaleiðum
á sjó afbrigðilegra fyrirbæra
hafi óreglna
samnefnara athafnanna
aðdraganda lífs
í formi gapandi kjafta
með syndandi síli
innan óljósra marka
undir þungum kjölförum
hjólförum utan vega
sem dreifast
og deyja sem fyrst út
hulin hversdagsheitum
á yfirborðinu.
. . .
Hlekkirnir
sem eitt sinn lágu um landið allt
gljáandi fínir og ávallt nýir
kyrfilega fastir saman
og glansandi ankerið djúpt í iðrum Heklu
meðvitund skýr
og yfirsýn himnakrókur
stöðugir hlutir
beint samband við allt
sem undir fótum var
og kraumar enn
lifandi og sígefandi ljós og líf
frjótt og fullnægjandi
þá dýrkað af öllum aftur að upphafsreit.
Endurskilgreining keðjunnar
gekk að henni gleymdri
við mikinn fáfróðan fögnuð
og nýjum boðskap.
Eyðan einhversstaðar milli fjalls og fjöru.
. . .
Á land hefur síðan rekið
margan kost og kunnáttu
og glætu torræða
ei ómaksins vert
álitna verðlausa
þó efst og síðast mál og hold hins illa
runna úr kalinni kreptri deyjandi hönd.
Ellegar hrakið á haf út aftur
slátrað
nema hvað náttúrulega
svívirt fyrst.
Allar breytingar óvelkomnar
svo lengi sem hið ímyndaða hald
í upprunann sé áþreifanlegt.
Nú þegar framvinda vélarinnar
annar ekki eftirspurn
með sínum tíðu bilunum
og þrálegu óskum
um eitthvað ...
hvað sem er ...
þjóðlegri lausn ...
síðbúnum vélvirkja að handan
klónuðum utan úr geimi
sögulegum viðgerðarmanni
smurningu
olíu
koppafeiti ...
einhverja töfralausn
þó það væri ekki nema smá WD-40.
Meðan hafið bifast spakt
undantekningarlaust fram og aftur
velkist með fjársjóðinn grafinn í sandinn
í einum af djúpstæðustu dölum hins víðfeðma botns.
. . .
Á fjöruna rekur
annað kastið
kannski fátt dýrmætt
en þó það
sem stigið hefur yfir
hið sýnilega óyfirstíganlega
að handan
frá rótum sannleikans
illt að þrotum komið
eftir þessa svaðilför
með undrun og vonleysissvip
alls ókunnan svip og lit á brá
sem afar auðveld bráð
einhæfni orðanna
á mjósleginni tungu
óvíg og voluð
sýnd sú veiði og gefin
og ekki þarf egghvasst járn
til að komast yfir og traðka niður
og hirða það fáa sem nýtilegt er
til persónulegra nota
og upphafningar yfir nágranna.
Hrósið 38 18. apríl 2004 SUNNUDAGUR
... fær Tómas Tómasson fyrir
taumlausan áhuga sinn á góðum
hamborgurum.
Ég man eftir kaotískum partíum, fjögurra augna samræðum
í raunveruleikajakkafötum með slaufu daglegs lífs
ég bauð mig fram til fífls í samfélagsins satírum
í eins manns göngu revíum, söng minn rétt til lífs
með sjónarsvið í þriðja lið, hendist inn á heyrnarsvið
viðmiðun mín takmarkast við drauma heims míns dyr
með vindsins byr, ég kemst þá fyrr að dyrakarm og opna dyr
þá dirfskulega dandalast og samblandast við sessunaut
ég þig nú spyr um fortíðir og samkenndir í hugarlaug
þá þrot mitt þraut, við jónustaut, ég studdi mig, þá hækju braut
hitti fyrir fáráðling á óséðu torgi með töfrataut
hengdi á augnhimnur jólaskraut og seyði svefnsins saup
margvíslegar mishæðóttar mannverur,
í Meistarans og Margarítu meinloku með egóin í eintölu
velkist um í vafa, milli hafa, milli laka,
milli himingeims og jarðar, hugarlausna og sálarsaka
hverju tapa ef ég hrapa fyrir ætternisstapa?
fiðlustrengir kynda undir dramað, hendist milli húsþaka
endurgeri og afbaka, á pásu spóla til baka
ég vil taka það fram að oftast nær er ég til trafala
ég hnakkann á mér baktala, ferðbýst oft til afdala
slæst þar sár við sjakala í formi minna bakþanka
til langdvala ég býst meðan skynjun mín snýst samfara!
Leitin að Sigurskáldinu
Ídag birtast númer fimm og sexaf átta í ljóðakeppni Fréttablaðs-
ins og Eddu útgáfu. Þjóðin fær nú
tækifæri til að velja hvort þessara
ljóða fer áfram í keppninni um
Sigurskáldið. Þó svo ummæli dóm-
nefndar fylgi með er það á ykkar
valdi, lesendur góðir, að velja það
ljóð sem ykkur þykir skara fram
úr. Næstu tvö ljóð birtast á morgun
og á mánudag birtast ljóð númer
sjö og átta og er þar með fyrstu
umferð lokið.
Að kvöldi mánudags standa eft-
ir fjögur ljóð sem keppa í undanúr-
slitum á þriðjudag og miðvikudag.
Úrslitaslagurinn fer fram næsta
fimmtudag og sjálft Sigurskáldið
verður krýnt föstudaginn 23. apríl
sem er dagur bókarinnar. ■
HVERNIG VELUR ÞÚ LJÓÐ?
Til að kjósa þitt ljóð sendir þú einfaldlega SMS-skeyti, eitt eða fleiri.
Ef þú kýst ljóð Jóns Magnúsar sendir þú SMS-skeytið JA L6 í númerið
1900*
Ef þú kýst ljóð Ófeigs sendir þú SMS-skeytið JA L7 í númerið 1900*
Dregið verður úr innsendum SMS-skeytum á
hverjum degi. Vinningshafi dagsins fær bók-
ina Kvöldljósin eru kveikt eftir Kristínu Marju
Baldursdóttur. * Hvert skeyti kostar 99 krónur
Þorvaldur Þorsteinsson:
Tónskáld keppninnar, fullt af rythma og
óvæntum aukaljóðum.
Kristján B. Jónasson:
Þarna er eitthvað mikið að gerast. Eitt-
hvað nýtt!
Kolbrún Bergþórsdóttir:
Að lesa þetta ljóð er eins og að fara í
fjörugan gátuleik, maður bíður spenntur
eftir næstu línu. Miklir hæfileikar þarna.
Þorvaldur Þorsteinsson:
Eins og reikult, rótlaust þang sem flækist
í sífellu í taugaendana.
Kristján B. Jónasson:
Skáldleg mælska sem fær mann til að
svima.
Kolbrún Bergþórsdóttir:
Það er metnaður á bak við þetta langa
ljóð en það er full upphafið og á köflum
klisjukennt.
JÓN MAGNÚS ARNARSON
A.K.A. VIVID BRAIN (JA L6)
Tónlistarmaður, fæddur 1982.
ÓFEIGUR SIGURÐSSON (JÁ L7)
Skáld og námsmaður í Berlín,
fæddur 1975.
Rocky
Halló? Marcus? Þetta er
Rocky, manstu ekki eftir
mér? Bleesaður! Hvað segja
menn? *
Já, það eru tvö ár síðan síðast,
en þú veist hvernig ég er,
heyrist bara í mér þegar mig
vantar eitthvað, hahahahaha-
haha!
Nei, í alvöru
talað...
Ég er á leiðinni til New York
fljótlega og mig vantar eiginlega
einhvern stað til
að búa á...
Í alvöru?
Geeðveikt!
Þvílíkur snillingur! Við höfum
hist einu sinni, en ég fæ samt
að búa hjá honum eins lengi og
ég vil!
Gott!
Þá þarf ég kannski ekki að
selja annað nýrað úr þér til
að borga símreikninginn!
* Menntaskólaenska