Fréttablaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 44
32 23. apríl 2004 FÖSTUDAGUR
STATTU ÞIG MARADONA!
Aðdáandi knattspyrnusnillingsins fyrrver-
andi Diego Maradona hrópar stuðningsóp
til goðsins fyrir utan sjúkrahús í Argentínu
þar sem hann dvelur þessa dagana. Mara-
dona er enn í öndunarvél eftir að hafa
fengið fyrir hjartað en ku vera á batavegi.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
20 21 22 23 24 25 26
APRÍL
Föstudagur
Evrópukeppni U19-landsliða kvenna:
Öruggur sigur
á Pólverjum
FÓTBOLTI „Við skoruðum mjög
snemma en svo jöfnuðu þær eftir
aukaspyrnu og þá aðeins datt
þetta niður. Það tók okkur smá
tíma að jafna okkur á því en þetta
var frekar óvænt,“ sagði Ólafur
Þór Guðbjörnsson, þjálfari U19-
landsliðs kvenna sem sigraði Pól-
verja 3-1 í gær. Greta Mjöll Samú-
elsdóttir skoraði fyrsta mark Ís-
lands á þriðju mínútu en Katar-
zyna Soltysinska jafnaði fimm
mínútum síðar.
„Þegar líða fór á hálfleikinn
náðum við betri tökum á þessu og
smelltum inn einu marki á 30.
mínútu. Það sem lifði af þeim
hálfleik vorum við með yfirhönd-
ina,“ sagði Ólafur. „Við fengum
dauðafæri á fyrstu mínútu seinni
hálfleiks og fylgdum því þokka-
lega eftir og vorum mun sterkari í
seinni hálfleik. Um leið og við
skoruðum þriðja markið vorum
við komin með þetta í hendurnar
og réðum öllu á vellinum.“
Margrét Lára Viðarsdóttir
skoraði annað mark Íslands og
Greta setti þriðja markið korteri
fyrir leikslok.
Þjóðverjar unnu Pólverja 9-0 á
þriðjudag og Ungverja með sömu
tölum í gær. „Þeir eru rosalega
sterkir,“ sagði Ólafur. „Ég sá fyrri
hálfleikinn á móti Ungverjum.
Þeir eru með mjög gott lið en við
teljum okkur vera með mjög gott
lið líka og ætlum að veita þeim
harða keppni. Þetta er það sem við
stefndum að, að fá úrslitaleik við
Þjóðverja um sigur í riðlinum.“
Lið Íslands gegn Pólverjum:
Guðbjörg Gunnarsdóttir - Inga
Lára Jónsdóttir, Björg Ásta Þórð-
ardóttir, Guðríður Hannesdóttir,
Dóra María Lárusdóttir, Dóra
Stefánsdóttir, Nína Ósk Kristins-
dóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir,
Greta Mjöll Samúelsdóttir (Katrín
Ómarsdóttir 82.), Hallbera Guðný
Gísladóttir (Sif Atladóttir 57.),
Dagmar Ýr Arnardóttir (Regína
María Árnadóttir 57.). ■
FÓTBOLTI Frakkinn Zinedine Zidane
hefur verið kjörinn besti knatt-
spyrnumaður Evrópu síðustu 50
árin. Þjóðverjinn Franz Becken-
bauer varð annar og Hollendingur-
inn Johan Cruijff varð þriðji.
Evrópska knattspyrnusamband-
ið, UEFA, efndi til kosningarinnar í
tilefni af 50 ára afmæli sínu. Rúm-
lega 150.000 manns kusu og hlaut
Zidane 123.582 atkvæði, aðeins
1.013 fleiri en Beckenbauer.
Marco Van Basten varð fjórði
og þeir Dino Zoff, Alfredo Di
Stefano, Eusebio, Lev Yashin,
Michel Platini og Paolo Maldini
skipuðu 5. til 10. sæti. Bobby
Charlton varð í 14. sæti og var efstur
Englendinga. George Best, fyrrum
samherji Charlton hjá Manchester
United, varð í 19. sæti. ■
Íslandsmótið í blaki:
Stjarnan
vann fyrsta
leikinn
BLAK Stjarnan vann HK 3-1 í Ás-
garði í fyrrakvöld í fyrsta leik lið-
anna í úrslitum Íslandsmóts karla
í blaki. Leikurinn var bráðfjörug-
ur og mikil stemning var á meðal
hinna fjölmörgu áhorfenda.
Stjarnan vann fyrstu hrinu en
önnur hrina var eign HK-manna.
Stjarnan vann síðan bæði þriðju
hrinu og þá fjórðu og tryggði sér
sigur. Annar leikur liðanna verður í
Hagaskóla næstkomandi þriðjudag.
Vinni Stjörnumenn verða þeir Ís-
landsmeistarar annað árið í röð. ■
■ ■ SJÓNVARP
18.00 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
19.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
19.30 Alltaf í boltanum á Sýn.
20.00 Meistaradeild UEFA á Sýn.
Fréttaþáttur um Meistaradeild
UEFA.
20.30 Supercross á Sýn. Nýjustu
fréttir frá heimsmeistaramótinu í
Supercrossi.
21.30 Motorworld á Sýn. Kraftmik-
ill þáttur um allt það nýjasta í
heimi akstursíþrótta.
JOSÉ MOURINHO
Porto varð þrefaldur meistari undir hans
stjórn í fyrra og stefnir á sama árangur í ár.
José Mourinho:
Til Chelsea?
FÓTBOLTI „Hefur Chelsea áhuga á
mér?“ spurði José Mourinho,
þjálfari Porto. „Þið vitið meira en
ég. Ég get aðeins sagt ykkur að ég
hef ekkert heyrt frá Chelsea. Ég
veit ekkert um Chelsea.“
Enska dagblaðið Guardian
heldur því fram að Roman
Abramóvitsj og Peter Kenyon
hafi flogið til spánska bæjarins
Vigo í vikunni til að hitta Mour-
inho. Þeir fóru hins vegar erindis-
leysu því þjálfarinn hætti við
fundinn á síðustu stundu.
Forseti Porto, Jorge Nuno
Pinto da Costa, hefur sent FIFA
kvörtun vegna málsins en Peter
Kenyon vildi sem minnst gera úr
málinu. „Voru þeir að kvarta?“
spurði Kenyon. „Ég átta mig ekki
á því af hverju þeir ættu að
kvarta. Ég veit að það eru til
myndir af okkur. Við vorum á
Spáni en við ferðumst mikið.“ ■
ZINEDINE ZIDANE
Kosinn besti knattspyrnumaður Evrópu
undanfarin 50 ár.
Besti leikmaður Evrópu:
Zidane kosinn
AP
/M
YN
D
GRETA MJÖLL SAMÚELSDÓTTIR
Skoraði tvisvar gegn Pólverjum í gær.
STAÐAN Í RIÐLINUM
Þýskaland 2 2 0 0 18:0 6
Ísland 2 2 0 0 7:1 6
Pólland 2 0 0 2 1:12 0
Ungverjaland 2 0 0 2 0:13 0
LEIKIR Á MORGUN
Ísland - Þýskaland
Ungverjaland - Pólland
Michael Schumacher, öku-þór Ferrari í Formúlu 1
kappakstrinum, hefur fimm
sinnum komið fyrstur í mark
á Imola-brautinni í San Marínó,
þar sem keppt verður um helgina.
Fyrsti sigur Schumacher í San
Marínó var fyrir tíu árum og
rennur sá dagur honum, sem og
öðrum íþróttaáhugamönnum,
seint úr minni. Þá lést Brasilíu-
maðurinn Ayrton Senna eftir að
hafa klesst bíl sínum á vegg og
var Schumacher þá rétt fyrir aft-
an hann. Svo virðist sem bölvun sé
á þátttöku Schumacher í San Mar-
ínó því á síðasta ári lést móðir
hans nokkrum klukkustundum
áður en hann hóf keppni. Samt
sem áður bar hann sigur úr býtum
og sýndi þar gífurlegan vilja-
styrk. ■
■ Tala dagsins
5