Fréttablaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 6
FJÖLMIÐLASKÝRSLA Davíð Þór
Björgvinsson, lagaprófessor og
formaður nefndar menntamála-
ráðherra um eignarhald á fjöl-
miðlum sagði í viðtali við Frétta-
blaðið að forsendur fyrir nei-
kvæðum áhrifum samþjöppunar
og samráðs á fjölmiðlamarkaði
væru byggðar á reynslu í öðrum
löndum.
„Ef eignarhaldið á fjölmiðlum
safnast á of fáar hendur leiðir það
til einhæfni í framboði dagskrár
og skoðana, framsetningu og svo
framvegis. Skýrslan byggir á
þeim forsendum um eignarhald
sem eiga við í þessum fræðum.
Ein af forsendunum fyrir því að
tryggja fjölbreytni í fjölmiðlum
til frambúðar er að tryggja fjöl-
breytni í eignarhaldinu,“ sagði
Davíð. „Framboð og framsetning
á viðhorfum og skoðunum mótast
alltaf óhjákvæmilega af því
hverjir eiga fjölmiðla. Það er ekki
ástæða til að deila mikið um það,
þetta nánast leiðir af sjálfu sér,“
sagði hann.
Þegar hann var spurður hvaða
merki væru um að þetta væri að
gerast á íslenskum markaði sagði
hann að þegar jafn mikil sam-
þjöppun og hefur orðið nú á allra
síðustu mánuðum ætti sér stað, þá
yrði þetta raunin. Sleit hann síðan
samtalinu fyrirvaralaust. ■
6 25. apríl 2004 SUNNUDAGURVeistusvarið?
1Hvar var sigurvegari Íslandsglímunn-ar í ár?
2Hver er leikhússtjóri Leikfélags Akur-eyrar?
3Forseti Suður-Afríku var endurkjör-inn fyrir skemmstu. Hvað heitir
hann?
Svörin eru á bls. 46
Skynsamlegra að setja
lög um blaðamennsku
Herdís Þorgeirsdóttir, doktor í lögum, segir heppilegra að setja lög um
starfsemi fjölmiðla en um eignarhald. Hún segir að Mannréttindasátt-
málar verndi bæði eignarrétt og tjáningarfrelsi.
FJÖLMIÐLAR Herdís Þorgeirsdótt-
ir, doktor í lögum og sérfræð-
ingur í tjáningarfrelsi fjölmiðla,
segir að líta verði til lögvarinna
réttinda fjölmiðlafyrirtækja
þegar tekin er ákvörðun um
lagasetningu um eignarhald.
„Fjölmiðill sem lögaðili nýtur
verndar rétt
eins og einstak-
lingur sam-
kvæmt dóma-
f r a m k v æ m d
Mannréttinda-
sáttmála Evr-
ópu. Nýleg
d ó m a f r a m -
kvæmd stað-
festir þau efna-
hagslegu lög-
mál sem dag-
blöð eru háð en
þeim má ekki
setja sömu
skorður til
dæmis varð-
andi leyfisveit-
ingu eins og
ljósvakamiðlum. Fyrsta grein
Mannréttindasáttmálans kveður
skýrt á um það að stjórnvöldum
beri skylda til að tryggja öllum
innan sinnar lögsögu þau rétt-
indi sem eru varin í Sáttmálan-
um,“ segir Herdís.
Hún bendir einnig á að réttur
útgefenda til að stýra pólitískri
stefnu blaða sé sérstaklega var-
inn í þýsku stjórnarskránni.
Hún segir að fjölmiðlar og
starfsmenn þeirra njóti aukinn-
ar verndar hvað varði tjáningar-
frelsi en einnig séu lagðar á
herðar þeim skyldur um að upp-
lýsa almenning um mál sem
varða almannahagsmuni.
„Það er almennt viðurkennt
að stjórnskipulegt vægi fjöl-
miðlafrelsis gangi framar póli-
tískum og efnahagslegum hags-
munum og það er viðurkennt
bæði af Mannréttindadómstól
Evrópu sem Hæstarétti Banda-
ríkjanna í ótal málum varðandi
fjölmiðla,“ segir hún.
Hún segir að í nýlegu máli
hafi Mannréttindadómstóll Evr-
ópu komist að þeirri niðurstöðu
að þótt tjáningarfelsið væri
mikilvægt þyrfti einnig að taka
tillit til eignarréttarins.
Hjördís segir að fjölmiðlafyr-
irtæki þurfi að ákveðnu leyti að
lúta öðrum lögmálum en annar
fyrirtækjarekstur. „Þeim eru
lagðar skyldur á herðar, eigend-
um ekki síður en blaðamönnum,
á sama tíma. Það væri ósann-
gjarnt að ætlast til þess að aðil-
ar í einkarekstri væru að færa
persónulegar fórnir,“ segir hún.
„Hins vegar eru í gildi lög um
eignarhald á fjölmiðlum þar
sem víða annars staðar og þykir
ekki brjóta í bág við stjórnar-
skrá,“ segir hún.
„Niðurstaða minnar doktors-
rannsóknar er sú að á meðan
fjölmiðlar eru háðir velvilja við-
skiptalegra afla og pólitískra sé
skynsamlegra að tryggja
ritstjórnarlegt sjálfstæði með
því að löggilda starf blaða-
manna og setja lög um starfs-
semi fjölmiðla þannig að þeir
ræki þær skyldur sem þeim eru
settar og hægt sé að neyta þess
réttar ef þörf krefur,“ segir
Herdís Þorgeirsdóttir.
thkjart@frettabladid.is
PRINSINN GIFTIR SIG
Þrátt fyrir að hafa ekki fengið samþykki
fyrir „konunglegu hjónabandi“.
Hollenskur prins giftist:
Stjórnin
gegn hjóna-
bandinu
HOLLAND, AP Hollenski prinsinn Jo-
han Friso, annar sonur Beatrix
drottningar, giftist í gær Mabel
Wisse Smit. Prinsinn gekk í hjóna-
band án samþykkis hollensku
stjórnarinnar og hefur því fyrir-
gert rétti sínum sem mögulegur
handhafi krúnunnar, næst í röð-
inni á eftir Willem Alexander
bróður sínum og Amalíu dóttur
hans. Forsætisráðherrann Jan
Peter Balkenende sagði í október
að elskendurnir hefðu gefið hon-
um rangar upplýsingar í aðdrag-
anda brúðkaupsins, en þau viður-
kenna að hafa reynt að fela sam-
band Mabels við eiturlyfjabarón-
inn Klaas Bruinsma.
Meðal þeirra sem sóttu brúð-
kaupsveisluna var öll hollenska
konungsfjölskyldan og Haraldur
Noregskonungur. ■
Tvöfaldir
Vildarpunktar
til 1. maí
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
24
12
5
0
4/
20
04
Ráðherraskipti vegna
Íraksmálsins:
Gade nýr
varnarmála-
ráðherra
DANMÖRK, AP Sören Gade var form-
lega skipaður nýr varnarmálaráð-
herra Danmerkur í gær degi eftir
að forveri hans, Svend Aage Jens-
by, sagði af sér. Afsögn Jensby
kom í kjölfar gagnrýnisradda sem
sögðu að danski herinn hefði ýkt
þá hættu sem stafaði af Saddam
Hussein til að verja stríðsrekstur-
inn í Írak. Jensby segist fórnar-
lamb rógsherferðar stjórnarand-
stöðunnar. Forsætisráðherrann,
Anders Fogh Rasmussen, segir að
Jensby hafi sjálfur ákveðið að
segja af sér og að afsögnin hafi
virst eini kosturinn í stöðunni.
Hún muni þó ekki hafa áhrif á af-
stöðu Dana í Íraksmálinu.
Um 500 danskir hermenn eru
nú í Írak. ■
HERDÍS ÞORGEIRSDÓTTIR
Samkvæmt niðurstöðum rannsókna henn-
ar ætti að löggilda starf blaðamanna og
setja reglur um starfsemi fjölmiðla.
■ Afríka
■ Írak
„Það er al-
mennt viður-
kennt að
stjórnskipu-
legt vægi fjöl-
miðlafrelsis
gangi framar
pólitískum og
efnahagsleg-
um hagsmun-
um.
RÉÐUST Á OLÍUVERKAMENN Tveir
Bandaríkjamenn og þrír Nígeríu-
menn féllu þegar ráðist var á bát
olíuverkamanna í Nígeríu. Einn
Bandaríkjamaður slasaðist og
tveggja Nígeríumanna er saknað
eftir árásina. Mennirnir unnu hjá
verktaka á vegum bandaríska olíu-
fyrirtækisins Chevron Texaco, en
olíuauðurinn er mikið bitbein í Ní-
geríu. Algengt er að starfsmenn
olíufyrirtækja séu teknir í gíslingu.
Formaður nefndar um eignarhald fjölmiðla:
Fjölbreytni í eignarhaldi tryggir fjölbreytni
ÁRÁSIR Á OLÍUTANKA Þrír bátar
sprungu við olíupramma og olíu-
tanka við strönd Íraks í gær-
kvöldi. Talsmaður breska hersins
sagði að svo virtist sem um sam-
ræmdar sjálfsmorðsárásir hefði
verið að ræða.
SKÝRSLA MENNTAMÁLARÁÐHERRA UM EIGNARHALD Á FJÖLMIÐLUM
„Framboð og framsetning á viðhorfum og skoðunum mótast alltaf óhjákvæmilega af því
hverjir eiga fjölmiðla. Það er ekki ástæða til að deila mikið um það, þetta nánast leiðir af
sjálfu sér,“ sagði formaður nefndarinnar.