Fréttablaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 39
25. apríl 2004 SUNNUDAGUR Eiganda hundarins Libby, sem erþýskur fjárhundur, brá heldur í brún þegar hann komst að því að hundurinn var með 28 golfkúlur í maganum. Mike Wardrop, sem býr í Manchester á Englandi, skyldi ekk- ert í því af hverju hundurinn hans var hættur að hafa lyst á matnum sínum. Þegar hundurinn hafði hor- ast meira en eigandanum fannst eðlilegt ákvað hann að fara með hann til læknis. Dýralæknirinn komst að því að Libby hafði verið að stelast inn á Didsbury golfvöllinn þar sem eig- andinn vinnur og gleypt hverja golf- kúluna á fætur annarri. „Ég varð alveg gáttaður þegar ég komst að því að þær voru 28 tals- ins,“ sagði Wardrop í viðtali við The Daily Record. „Að sjá svo allar þessar golfkúlur var ótrúleg sjón. Samanlagt vógu þær um 2 og hálft kíló. Það er ekkert skrýtið að Libby hafi liðið hálf illa.“ Dýralæknirinn skilaði öllum kúl- unum til eigandans og höfðu flestar aflitast í maga hundsins. „Þær eru þó enn nothæfar og það verður frá- bært að nota þær á æfingum. Lækn- arnir þurftu ekki einu sinni að taka röntgenmynd til þess að átta sig á því hvað væri að. Þeir fundu fyrir golfkúlunum utan á maga hundsins.“ Það tók læknana tvo og hálfan tíma að ná öllum kúlunum út úr maga hundsins. Læknarnir voru víst byrjaðir að veðja um hversu margar kúlur þeir myndu finna í maga dýrsins. ■ 28 golfkúlur fundust í hundsmaga Sigrún Bender, 18 ára Hafnar-fjarðarmær, var krýnd Ungfrú Reykjavík með pompi og prakt á Broadway að kvöldi föstudagsins 23. apríl. Fjóla Ósk Aðalsteins- dóttir, sem er 19 ára Reykvíking- ur, varð í 2. sæti og Matthildur Birgisdóttir, 21 árs Kópavogsbúi, varð í því þriðja. Steina Dröfn Snorradóttir, tvítugur Reykvík- ingur, var valin Ljósmyndafyrir- sæta ársins. Keppnin um titilinn Ungfrú Reykjavík er einn liður í undan- keppninni um það hver verður Ungfrú Ísland árið 2004 og Sigrún hefur því færst einu skrefi nær þeirri nafnbót en hún etur kappi við aðrar stúlkur um titilinn á Broadway þann 29. maí. Sú sem hreppir aðalhnossið mun síðan keppa fyrir Íslands hönd í keppn- inni Miss World, eða Ungfrú heimur. Skjár einn sýndi beint frá keppninni en stúlkurnar komu fram í tískusýningum, á baðfötum og í síðkjólum auk þess sem boðið var upp á skemmtiatriði inn á milli. ■ UNGFRÚ REYKJAVÍK 2004 Sigrún Bender er hér fremst meðal jafningja en hún hreppti titilinn á föstudaginn. SIGRÚN BENDER Er á föstu og unnusti hennar hefur hér nánar gætur á henni eftir að úrslitin lágu fyrir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N K AR LS SO N ■ Tuttugu og átta golfkúlur fundust í maga hunds í Manchester. Skrýtnafréttin GOLFKÚLUR Vill einhver reyna að bæta met Libby? Ungfrú Reykjavík úr Firðinum ■ Fegurð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.