Fréttablaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
FIMMTUDAGUR
TÆKIFÆRI SJÁVARÚTVEGSINS
Sjávarútvegsráðuneytið og Útflutningsráð
Íslands standa í dag fyrir ráðstefnu um
útrásartækifæri sjávarútvegs. Ráðstefnan
verður í Salnum í Kópavogi og hefst
klukkan 13.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÚRKOMA VÍÐA UM LAND en það
rofar heldur til síðdegis á vesturhelmingi
landsins. Áfram tiltölulega milt. Sjá síðu 6
29. apríl 2004 – 116. tölublað – 4. árgangur
● ferðir ● matur ● tilboð
Eldar magnaða
kjötsúpu
Elísabet Jökulsdóttir:
● 49 ára í dag
Dregur net á
afmælisdaginn
Grétar Mar Jónsson:
▲
SÍÐA 26
VILJA AUKA HLERANIR Rúmlega
helmingur lands-
manna vill að
heimildir lögreglu
til símahlerana
verði auknar, sam-
kvæmt könnun
Fréttablaðsins.
Staðfestir að fólk
vill bregðast við
harðari glæpum
og alls konar óáran í þjóðfélaginu, segir
dómsmálaráðherra. Sjá síðu 4
GILDISTÖKU FRESTAÐ Heilbrigðisráð-
herra hefur frestað gildistöku viðmiðunarverð-
skrár samheitalyfja um þrjá mánuði. Freista á
þess að reyna að ná fram tilætluðum sparn-
aði í samvinnu við lyfsala. Sjá síðu 6
ÞYRLULÆKNAR Formaður Sjómanna-
sambandsins segist ekki trúa því að gæslu-
þyrlurnar verði læknalausar. Þyrlulæknar segja
það mikið hjartans mál að þjónustan haldist
öflug. Sjá síðu 12
FÉKK SKILORÐ Fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Framsýnar
hlaut tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að misnota aðstöðu sína og stefna fé
sjóðsins í stórfellda hættu. Skaðabótakröfu
lífeyrissjóðsins var vísað frá dómi. Sjá síðu
14
53%66%
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 38
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Íþróttir 42
Sjónvarp 40
Lög um fjölmiðla:
Heyra ef til
vill undir
ESA
LÖGGJÖF Stjórnvöld þurfa ef til vill
að tilkynna Eftirlitsstofnun
EFTA, ESA, um fyrirhugaðar
breytingar á lögum um fjölmiðla
til að fá úr því skorið hvort þær
brjóti gegn þeim skuldbindingum
sem Ísland hefur undirgengist
vegna samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið. Þetta segir Hró-
bjartur Jónatansson hæstaréttar-
lögmaður en tekur fram að sjálfur
hafi hann ekki tekið afstöðu til
þess hvort þess sé þörf.
„Við erum skuldbundin öðrum
þjóðum um að viðhafa frelsi í við-
skiptum,“ segir Hróbjartur. Séu
gerðar breytingar á stöðlum og
reglugerðum sem varða við-
skiptahindranir þurfi að tilkynna
það til ESA, sem kanni þá málið og
komist að niðurstöðu um hvort
breytingarnar standist ákvæði
EES-samningsins. ■
Íslenska landsliðið:
Markalaust í
Lettlandi
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í
knattspyrnu gerði markalaust
jafntefli við það lettneska í vin-
áttulandsleik í Ríga í gærkvöld.
Íslenska landsliðið spilaði vel í
leiknum og átti í fullu tré við
Lettana, sem eru á leiðinni á EM í
Portúgal. Ásgeir Sigurvinsson
landsliðsþjálfari sagði í samtali
við Fréttablaðið í gær að leikurinn
hefði verið mikil breyting til batn-
aðar frá leiknum gegn Albaníu
fyrir mánuði síðan.
sjá nánar síðu 33
Fjölmiðlaskýrslan
á Alþingi:
Hvergi meiri
samþjöppun
ALÞINGI „Íslenskur fjölmiðlamark-
aður ber augljós einkenni sam-
þjöppunar. Eitt fyrirtæki sem jafn-
framt er eitt um-
svifamesta fyrir-
tæki í íslensku
viðskiptalífi, og á
hagsmuna að
gæta á fjölmörg-
um sviðum, hefur
á skömmum tíma
náð undir sig
stærstum hluta af
íslenska fjöl-
miðlamarkaðn-
um,“ sagði menntamálaráðherra
þegar hún flutti skýrslu um eignar-
hald á fjölmiðlum á Alþingi í gær.
Snörp orðaskipti urðu milli
stjórnar og stjórnarandstöðu um
skýrsluna og fjölmiðlafrumvarp
forsætisráðherra. Stjórnarand-
staðan sagði skýrsluna vandaða
en frumvarp forsætisráðherra
vont. Það fæli í sér alvarlegt inn-
grip í atvinnulífið og stæðist ekki
þær kröfur sem gerðar væru til
lagasetningar í nútímaþjóðfélagi.
sjá nánar síður 8 og 10
LÍF OG FJÖR Í NAUTHÓLSVÍK Þessar ungu stúlkur voru glaðbeittar í góða veðrinu í Nauthólsvík í gær. Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands ætti að stytta upp sunnan- og vestanlands síðdegis en aftur má búast við rigningu á morgun. Um helgina verður svip-
aður hiti um allt land og verið hefur síðustu daga. Sennilega verður væta norðan- og austanlands en ágætis veður fyrir sunnan og vest-
an. Þá má búast við kólnandi veðri á þriðjudag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
RANNSÓKN Rannsókn efnahags-
brotadeildar lögreglunnar á
meintum brotum stjórnenda
Baugs teygði sig til Lúxemborgar
í gær. Lögreglumenn fóru í starf-
stöð Kaupþings til að sækja upp-
lýsingar varðandi reikninga í eigu
Baugs, fyrirtækja í eigu félagsins
og tengdra aðila. Rannsóknin í
Lúxemborg er liður í rannsókn
sem hófst 28. ágúst 2002 með hús-
leit efnahagsbrotadeildar Ríkis-
lögreglustjóra í höfuðstöðvum
fyrirtækisins.
Jón H. Snorrason, yfirmaður
efnahagsbrotadeildar Ríkislög-
reglustjóra, vildi ekki tjá sig á
nokkurn hátt um málið. Sama var
uppi á teningnum þegar leitað var
upplýsinga hjá lögregluyfir-
völdum í Lúxemborg.
Hreinn Loftsson, stjórnarfor-
maður Baugs, segir að rannsóknin
beinist helst að meintum brotum
forsvarsmanna fyrirtækisins
gegn félaginu. „Allir hlutaðeig-
andi hafa staðfastlega neitað sak-
argiftum. Þessi rannsókn hefur nú
staðið yfir í tæp tvö ár án þess að
leitt hafi verið í ljós að brot hafi
verið framin.“ Hreinn segir Baug
Group hafa veitt allar þær upplýs-
ingar og aðstoð sem óskað hafi
verið eftir. Hann segir væntan-
lega verið að sannreyna þau gögn
með lögregluheimsókn ytra.
Sigurður Einarsson, stjórnar-
formaður KB banka, staðfesti
að farið hefði verið fram á gögn.
„Það er ekki óþekkt þar sem við
störfum að yfirvöld fari fram á
upplýsingar um einstök við-
skipti eða viðskiptamenn. Að
sjálfsögðu veitir bankinn þar til
bærum yfirvöldum þær upplýs-
ingar sem farið er fram á.“
Hreinn Loftsson segir í yfirlýs-
ingu frá Baugi að félagið vænti
þess að látlausum árásum af
þessu tagi fari að linna, þannig að
fyrirtækið fái starfsfrið. Hann
segir fyrirtækið ekki veita frekari
upplýsingar um málið að svo
stöddu.
haflidi@frettabladid.is
Gögn sótt til
Lúxemborgar
Ríkislögreglustjóri leitaði til lögreglu í Lúxemborg til að sækja gögn um
viðskipti Baugs hjá Kaupþingi þar í landi. Stjórnarformaður Baugs segir
fyrirtækið hafa veitt lögreglu allar upplýsingar sem beðið hafi verið um.
RANNSÓKN Í GANGI
Rannsókn lögreglu á meintum brotum forsvarsmanna Baugs gagnvart félaginu hefur staðið
hátt á annað ár. Lögreglan í Lúxemborg sótti gögn í málinu í gær. Í nóvember sóttu starfs-
menn Skattrannsóknarstjóra gögn í höfuðstöðvar Baugs og Gaums eftir ábendingu lögreglu.
ÞORGERÐUR
KATRÍN GUNN-
ARSDÓTTIR