Fréttablaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 1
▲
Ellefu vikur eru
frá því að Þorgeir
Jónsson kafari
fann lík Jucevici-
usar í höfninni í
Neskaupstað fyrir
tilviljun. Ríkislög-
reglustjóri hefur
sent málið til
ríkissaksóknara.
Tilviljun ein
SÍÐUR 22 & 23▲
Versta vinna lífs míns
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 28
Sjónvarp 32
SUNNUDAGUR
STÓRLEIKIR Í HANDBOLTANUM
Það ræðst í dag hvaða lið leika til úrslita í
Remax-deild karla í handbolta. Haukar
mæta KA klukkan 16.15 og á sama tíma
tekur Valur á móti ÍR. ÍBV og FH eigast
við í úrslitakeppni Remax-deildar kvenna
klukkan 16.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
2. maí 2004 – 119. tölublað – 4. árgangur
STJÓRNMÁL Evrópuráðið segir að op-
inberar reglur um fjármál stjórn-
málaflokka komi í veg fyrir spill-
ingu. Ráðið telur að stjórnvöld verði
að innleiða reglur um fjármögnun
stjórnmálaflokka og kosningabar-
áttu þeirra svo auka megi traust al-
mennings á stjórnkerfinu.
Í tilmælum sem Evrópuráðið
sendi frá sér í apríl á síðasta ári er
lagt til að ríki setji sérstakar reglur
sem tryggi gagnsæi fjárframlaga til
stjórnmálaflokka og komi í veg fyrir
leynileg framlög.
Ráðið hvetur til þess að ríki sjái
til þess að fjárframlög til stjórn-
málaflokka verði gerð opinber, ekki
síst framlög sem eru umfram
ákveðna upphæð. Einnig skuli
kannað hvort setja eigi hámark á
framlög til stjórnmálaflokka og
hvort setja eigi reglur sem tryggi
sjálfstæði þeirra. Ráðið telur að
setja þurfi sérstakar hömlur eða
banna framlög frá erlendum aðil-
um.
Þá er mælt með því að stjórnvöld
styðji stjórnmálaflokka fjárhags-
lega. Það komi í veg fyrir að stjórn-
málaflokkar verði of háðir einstök-
um aðilum sem leggi flokknum til
fé.
Lagt er til að sett séu takmörk
fyrir því hve miklu fé stjórnmála-
flokkar eyði í kosningabaráttu. Þá er
lagt til að stjórnmálaflokkum sé
gert skylt að halda til haga upplýs-
ingum um kostnað kosningabaráttu,
bæði beinan og óbeinan.
Ennfremur er mælt með því að
opinber aðili fari með endurskoðun
á bókhaldi stjórnmálaflokkanna sem
birt væri árlega.
sda@frettabladid.is
Nú fer í hönd sá tími þegar unga fólkið fer út á vinnumarkaðinn og fær sér sumarvinnu
til þess að drýgja tekjurnar. Ekki komast allir í jafn skemmtilega vinnu. Fréttablaðið spurði
nokkra einstaklinga að því hver væri versta vinnan sem þeir hefðu nokkru sinni unnið. SÍÐUR 20 & 21
▲
Lög um fjármál flokka
draga úr spillingu
Evrópuráðið hefur gefið út tilskipun um gagnsæi fjármála stjórnmálaflokka. Fjárframlög
verði opinber og þak sett á þau. Ráðið mælist til þess að opinber aðili fari með endurskoðun og
bókhaldsgögn verði birt árlega.
VETUR Á NÝ á Norðurlandi með
snjókomu eða slyddu. Skýjað með köflum
sunnan til og hætt við smáskúrum. Fremur
svalt. Sjá síðu 6.
KRÖFUGANGA Í REYKJAVÍK Baráttudagur verkalýðsins var haldinn hátíðlegur um land allt í gær. Í Reykjavík fór fjöldi manna í kröfu-
göngu frá Hallgrímskirkju og niður á Ingólfstorg þar sem haldinn var útifundur. Fulltrúaráð verkalýðsfélaga Reykjavíkur gagnrýndi stjórn-
völd harðlega og í ávarpi ráðsins segir að hertar reglur gegn fólki af erlendum uppruna sem vilji setjast hér að séu byggðar á ranghug-
myndum um útlendinga. Sjá nánar síðu 2.
MIKILL STUÐNINGUR VIÐ
ÞÓRÓLF Tæplega 84 prósent landsmanna
eru fylgjandi því að Þórólfur Árnason borgar-
stjóri leiði Reykjavíkurlistann í borgarstjórn-
arkosningunum árið 2006. Sjá síðu 2
SAMSTEYPUR AÐ VERÐA OF
STÓRAR Ritstjóri Morgunblaðsins segir
stærstu viðskiptasamsteypurnar að verða of
stórar og að eignarhald á fjölmiðlum sé
hluti af því vandamáli. Sjá síðu 4
TORTRYGGNI GAGNVART STÆKK-
UN Szymon Kuran, sem er fæddur í Pól-
landi en hefur íslenskan ríkisborgararétt,
vonar að inngangan í ESB verði góð reynsla
fyrir Pólland. Hann segir fjölskylduna tor-
tryggna gagnvart stækkun. Sjá síðu 6
BRETAR PYNTA FANGA Bresk yfir-
völd hafa nú til rannsóknar ásakanir um
misnotkun eftir að dagblaðið Daily Mirror
birti myndir af hettuklæddum íröskum
fanga sem virtist vera misþyrmt af breskum
hermönnum. Sjá síðu 2
Tuttugu manna
loftfimleikaatriði er
meðal viðburða á
Listahátíð. Leynd hefur
hvílt yfir atriðinu. Gísli
Örn Garðarsson leysir
frá skjóðunni.
Ástin er í loftinu
SÍÐA 18
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Halldór Ásgrímsson:
Á hæsta tind
landsins
ÚTIVIST Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra freistar þess í dag
að ganga á hæsta tind landsins,
Öræfajökul, ásamt sex öðrum
görpum. Meðal þeirra er flokks-
bróðir hans,
Finnur Ingólfs-
son, forstjóri
VÍS.
Upphaflega
ætluðu þeir í
gær en frest-
uðu förinni
vegna veðurs.
Þeir fá til
fylgdar traust-
an leiðsögu-
mann, Einar
Rúnar Sigurðs-
son á Hofsnesi,
sem hefur gengið á hnjúkinn hátt
í tvö hundruð sinnum. Hann keyr-
ir þá upp í 800 metra hæð og það-
an verður gengið á snjóþrúgum
upp að hnjúk en þá verða broddar
teknir fram og ísaxir. Ef allt fer
eftir áætlun verður haldið niður
Virkisjökul til baka. ■
Á UPPLEIÐ
Halldór ætlar í dag
upp á Hvannadals-
hnjúk.