Fréttablaðið - 05.05.2004, Blaðsíða 1
● unnu valsstúlkur í framlengdum leik
Úrslitaeinvígið:
▲
SÍÐA 23
Eyjastúlkur
komnar yfir
● 37 ára í dag
Rebekka Rán Samper:
▲
SÍÐA 20
Fer í dýrindis
mat til mömmu
● feður raftónlistarinnar spila í kaplakrika
Kraftwerk:
▲
SÍÐA 24
Vélmenni gera
innrás
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MIÐVIKUDAGUR
FRELSI TIL AÐ REKA FJÖLMIÐLA
Norðurljós efna til hádegisverðarfundar
um lagaumhverfi fjölmiðla í dag. Tveir er-
lendir sérfræðingar í fjölmiðlarétti munu
reifa sjónarmið sín, þeir Floyd Abrams, lög-
maður hjá Cahill Gordon & Reindel í New
York og Filip van Elsen lögmaður hjá Allen
& Overy í Belgíu. Fundurinn verður á
Nordica Hótel og hefst klukkan 12.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÁFRAM SVALT OG VINDUR og í
raun heldur leiðinlegt. Vetur á Norðurlandi.
Bjart með köflum sunnantil. Hlýnar aðeins
á morgun. Sjá síðu 6.
5. maí 2004 – 122. tölublað – 4. árgangur
SANNFÆRÐ-
UR UM RIT-
SKOÐUN Eftir
að þingmaður
benti á harð-
orða grein ungs
framsóknar-
manns á netinu í ræðustól á Alþingi var
heimasíðu ungra framsóknarmanna lokað.
Þingmaðurinn segist sannfærður um að
ritskoðun hafi ráðið ferðinni. Sjá síðu 2
ÞREKRAUN Björgunarsveitarmenn á
Norðausturlandi unnu þrekvirki við að
koma slösuðum vélsleðamönnum til hjálp-
ar inn af Garðsárdal í Eyjafirði um helgina.
Allt vann á móti björgunarliðinu. Sjá síðu 4
FJÖLMIÐLAFRUMVARP Allsherjar-
nefnd Alþingis hafnaði tillögu Samfylkingar-
innar um að vísa fjölmiðlafrumvarpi for-
sætisráðherra til faglegrar umsagnar hjá
fjölmiðladeild Evrópuráðsins. Sjá síðu 6
ALLIR FARI AÐ REGLUM Forsætis-
ráðherra gerði frelsi, skattalækkun og fjöl-
miðlafrumvarp að umfjöllunarefni í ræðu á
aðalfundi Samtaka atvinnulífsins. Hann
ítrekaði andstöðu við ESB-aðild og sagði að
þótt mikið hefði áunnist í baráttu fyrir frelsi,
væri þeirri baráttu ekki lokið. Sjá síðu 8
Ólafur Egill:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Neytir meðan á
nefinu stendur
● fjármál
53%76%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
STJÓRNMÁL Allir stjórnmálaflokk-
arnir hlutu styrk fyrir síðustu al-
þingiskosningar sem nam hálfri
milljón eða meira samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Þetta
stangast á við fullyrðingar þing-
manna Samfylkingarinnar á Al-
þingi.
Þegar leitað var skýringa feng-
ust þau svör frá Karli Th. Birgis-
syni, framkvæmdastjóra Sam-
fylkingarinnar, að átt hafi verið
við peningagjafir yfir hálfri millj-
ón. Hann sagði að enginn styrkur
hærri en hálf milljón hefði borist
flokknum en samkvæmt reglum
sem Samfylkingin hefði sett sér
um gagnsæi fjárframlaga yrðu
þeir gerðir opinberir. Karl sagði
regluna því ekki gilda um upp-
hæðir sem næmu hálfri milljón.
Íslensk erfðagreining skýrði
Fréttablaðinu frá því að fyrir al-
þingiskosningarnar 2003 hafi
fyrirtækið lagt fram hálfa milljón
til Samfylkingarinnar og sömu
upphæð til Frjálslynda flokksins.
Að sögn Kristínar Halldórs-
dóttur, framkvæmdastjóra Vinstri
grænna, hlaut flokkurinn hálfrar
milljón króna styrk frá Íslands-
banka á sama tíma. Í bréfi frá Ís-
landsbanka kom fram að allir
flokkar hefðu hlotið jafnháan
styrk.
sda@frettabladid.is
FORSETI EISTLANDS HR. ARNOLD RÜÜTEL OG KONA HANS INGRID ÁSAMT HR.
ÓLAFI RAGNARI OG DORRIT VIÐ BESSASTAÐI Opinber heimsókn forseta Eistlands
stendur til fimmtudagsmorguns. Þau hjónin eiga strembinn dag fyrir höndum sem hefst á
fundi með Davíð Oddssyni. Þá kíkja þau í sauðburð í Þingvallasveit og gróðursetja tré í
Vinaskógi. Eftir göngu um Almannagjá snæða þau með forsætisráðherrahjónunum í bú-
stað Davíðs á Þingvöllum. Síðdegis halda þau ásamt fylgdarliði til Hveragerðis og hitta
fyrir bæjarstjórnina og skoða helstu starfsemi bæjarins. Um kvöldið bjóða eistnesku for-
setahjónin til tónleika þjóðlagasveitarinnar Wirbel í Salnum í Kópavogi og móttöku í
Gerðarsafni að tónleikunum loknum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FJÖLMIÐLALÖG Nær þriðjungur
þjóðarinnar, um áttatíu og fjögur
þúsund Íslendingar, geta ekki átt
hlut í fyrirtæki sem rekur ljós-
vakamiðla ef frumvarp um eign-
arhald á fjölmiðlum nær fram að
ganga. Í frumvarpinu segir að
óheimilt sé að veita leyfi til út-
varps til fyrirtækis sem að hluta
eða öllu leyti er í eigu fyrirtækis
sem er í markaðsráðandi stöðu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Guðmundi Sigurðssyni, forstöðu-
manni samkeppnissviðs Sam-
keppnisstofnunar, hafa fjögur
fyrirtæki nýlega verið úrskurðuð
markaðsráðandi. Það eru Iceland-
air, Flugfélag Íslands, Eimskip og
Landsíminn. Hluthafar þeirra eru
um tuttugu og tvö þúsund. Ekkert
fyrirtækjanna getur átt í fyrir-
tæki sem rekur ljósvakamiðla ef
frumvarpið verður að lögum.
Auk þess telur Guðmundur að
viðskiptabankarnir þrír, KB
banki, Landsbankinn og Íslands-
banki séu í sameiginlegri mark-
aðsráðandi stöðu og teljist því
hver og einn markaðsráðandi
samkvæmt skilgreiningu sam-
keppnislaga. Það sé meðal annars
vegna sameiginlegs eignarhalds
bankanna á greiðslukortafyrir-
tækjum og Reiknistofu bankanna.
Hluthafar í bönkunum þremur
eru um sextíu og tvö þúsund. Eng-
inn bankanna getur átt hlut í fyrir-
tæki sem rekur ljósvakamiðla ef
frumvarpið nær fram að ganga.
Hluthafar í fyrirtækjum í
markaðsráðandi stöðu eru því alls
áttatíu og fjögur þúsund. Ljóst er
að sami aðili getur átt hlut í meira
en einu fyrirtæki. Fjöldi einstakl-
inga í hluthafahópnum er því ekki
ljós.
Aðspurður segir Guðmundur
að enginn úrskurður liggi fyrir
hjá Samkeppnisstofnun sem segi
að Hagar, dótturfyrirtæki Baugs,
sé markaðsráðandi. Hann taldi þó
líklegt að Hagar teldust markaðs-
ráðandi þótt hann vildi ekki full-
yrða það. Hann sagði að í mörgum
tilfellum væri flókið að leggja á
það mat því hægt væri að túlka
markaðinn á svo mismunandi
hátt. sda@frettabladid.is
Tugþúsundir mega ekki
eiga í ljósvakamiðli
Sjö fyrirtæki með áttatíu og fjögur þúsund hluthafa eru sögð vera markaðsráðandi. Eigendur þeirra
mega ekki eiga í fyrirtæki sem rekur ljósvakamiðil. Samkeppnisstofnun hefur ekki skoðað Haga.
Styrkir til stjórnmálaflokkanna:
Allir fengu hálfa
milljón eða meira
ÚR SAMKEPPNISLÖGUM
Markaðsráðandi staða er þegar fyrir-
tæki hefur þann efnahagslega styrk-
leika að geta hindrað virka samkeppni
á þeim markaði sem máli skiptir og
það getur að verulegu leyti starfað án
þess að taka tillit til keppinauta, við-
skiptavina og neytenda.
Fyrnd sök barnaníðings á Vestfjörðum:
Skaðabótamál við ríkið
DÓMSMÁL Skaðabótamál verður
höfðað á hendur ríkinu í kjölfar
nýgengins dóms yfir manni sem
ákærður hafði verið fyrir að hafa
margsinnis á árunum frá 1985 til
1989 beitt unga stúlku misgrófu
kynferðislegu ofbeldi. Sök manns-
ins var fyrnd að mati Héraðsdóms
Vestfjarða. Hæstiréttur staðfesti
niðurstöðuna í síðustu viku.
Héraðsdómi þótti framburður
stúlkunnar afar trúverðugur.
Sannað þótti að maðurinn hefði
gerst sekur um það sem hann var
ákærður fyrir. Stúlkan kærði
manninn í lok september árið 2002
en skýrsla var ekki tekin af hon-
um fyrr en um sjö mánuðum síðar.
Það varð til þess að brotin fyrnd-
ust og maðurinn hlaut ekki dóm.
Herdís Hallmarsdóttir, lög-
maður stúlkunnar, sagði að lögð
yrði fram beiðni til dómsmála-
ráðuneytisins um gjafsókn í mál-
inu. Hún sagði forsendu málshöfð-
unarinnar vera saknæma hátt-
semi við rannsókn málsins. Tafir á
rannsóknarstigi hefðu orðið til
þess að sök mannsins hefði fyrnst.
Það hefði meðal annars leitt til
þess að stúlkan hefði ekki fengið
dæmdar skaðabætur, sem henni
hefðu annars borið úr hendi
mannsins. ■
HÆSTIRÉTTUR
Staðfesti að sök mannsins væri fyrnd.