Fréttablaðið - 22.05.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
LAUGARDAGUR
ÁHRIF FJÖLMIÐLALAGA Fjöl-
miðlahópur ReykjavíkurAkademíunnar
efnir í dag til fundar um lagaumhverfi
fjölmiðla með Páli Þórhallssyni lögfræð-
ingi sem starfar hjá Evrópuráðinu. Páll
hefur um árabil starfað í mannréttinda-
deild ráðsins fyrir nefnd þess um fjöl-
miðla. Fundurinn hefst í ReykjavíkurAka-
demíunni Hringbraut 121 kl. 13.30.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA RIGNING EÐA SKÚRIR Þurrt
að kalla allra suðaustast. Snýst í norðlæga
átt á morgun með björtu veðri sunnan og
vestan. Sjá síðu 6.
22. maí 2004 – 139. tölublað – 4. árgangur
ENN EITT BANKARÁN Maður vopn-
aður öxi ruddist inn í Landsbankann við
Gullinbrú í gærmorgun og hafði nokkur
hundruð þúsund krónur á brott með sér.
Maðurinn var handtekinn stuttu síðar en
vitorðsmanna hans er leitað. Sjá síðu 2
ÞINGSTÖRFIN Stefnt er að því að ljúka
þriðju umræðu um fjölmiðlafrumvarpið á
Alþingi í dag en þingfundur hefur verið boð-
aður klukkan tíu. Eldhúsdagsumræður fara
fram á Alþingi á mánudagskvöld. Sjá síðu 2
MILLJARÐAKAUP Vátryggingafélag Ís-
lands hefur keypt allt hlutafé í Lyfju. For-
stjóri VÍS lítur á kaupin sem langtímafjár-
festingu. Skrifað verður undir kaupsamning
í júní. Sjá síðu 6
ENN SPJÖLL Á ÞINGVÖLLUM Lög-
reglan var í gær kölluð að Þingvallavatni í
annað skiptið í vikunni vegna ólöglegra
framkvæmda. Nú hafði verið brotið úr
klöpp við vatnið til að byggja bátaskýli og
hlaða tvo varnargarða. Sjá síðu 8
KÖNNUN Innan við þriðjungur
landsmanna er fylgjandi ríkis-
stjórninni samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Fréttablaðsins. 30,9
prósent þeirra sem taka afstöðu
eru fylgjandi stjórninni og hefur
stuðningur við hana ekki áður
mælst svo lítill í könnunum blaðs-
ins. 69,1 prósent er andvígur
stjórninni. Stuðningur við stjórn-
ina hefur minnkað og andstaða við
hana aukist í þremur könnunum í
röð.
Konur eru sýnu ósáttari við
stjórnina en karlar, einungis 28 pró-
sent kvenna styðja stjórnina en 34
prósent karla. Stuðningur við hana
er nokkuð minni á höfuðborgar-
svæðinu, 30 prósent, en á lands-
byggðinni þar sem hann er 33 pró-
sent.
„Þetta kemur mér ekki á óvart.
Það mál sem hefur verið efst á
baugi hefur mætt miklum andbyr
og við höfum greinilega verið undir
í fjölmiðlaumræðunni, enda hafa
fjórir fjölmiðlar greinilega beitt sér
harkalega gegn okkur í málinu,“
segir Einar K. Guðfinnsson, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks.
Niðurstöðurnar koma þing-
flokksformanni Framsóknar,
Hjálmari Árnasyni, ekki á óvart.
„Ekki miðað við hörkuna sem hef-
ur verið í fjölmiðlamálinu, en
kynningin á því hefur að mörgu
leyti verið einsleit.“
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingar, segir stjórnina upp-
skera eins og hún sáir til. „Ríkis-
stjórnin hefur með ofbeldi reynt að
þröngva í gegn frumvarpi sem
snýst eingöngu um að setja lög um
opinbera ritskoðun. Þetta særir
réttlætiskennd og siðferðiskennd
allrar þjóðarinnar.“
Einnig var spurt hvaða flokka
fólk hygðist kjósa. Samfylkingin
er langstærsti flokkurinn sam-
kvæmt könnuninni með 41,3 pró-
senta fylgi. Stjórnarflokkarnir fá
samanlagt tæp 36 prósent at-
kvæða og njóta því minna fylgis
samanlagt en Samfylkingin.
800 manns, jafn skipt milli kynja
og hlutfallslega milli landshluta,
voru spurð: Ertu fylgjandi eða and-
vígur ríkisstjórninni? 82,2% tóku
afstöðu. Sama fólk var spurt: Hvaða
lista myndir þú kjósa ef gengið yrði
til kosninga nú? 51,5% tóku afstöðu.
bryndis@frettabladid.is
Stjórnin aldrei óvinsælli
Nær 70% landsmanna eru andvíg ríkisstjórninni, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins, og
hafa aldrei verið fleiri. Samfylkingin nýtur meira fylgis en stjórnarflokkarnir til samans.
Kvikmyndir 46
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 50
Íþróttir 38
Sjónvarp 48
Erlendar leyniþjónustur hafa líklega að-
gengi að öllum samskiptum til og frá
útlöndum. Gríðarlegt magn gagna
liggur fyrir um einstaklinga. Persónu-
vernd stendur höllum fæti á tímum
baráttunnar gegn hryðjuverkum.
Sveitaböllum hefur fækkað á síðustu
árum og gömul vígi fallin. Helstu
sveitaballastaðina er nú að finna í
stærri bæjum landsins. Hljómsveitirnar
hafa þó ekki lagt árar í bát og munu
herja á sveitirnar í sumar.
Sveitaböll
SÍÐUR 28 OG 29
▲
Erna Ómarsdóttir:
● samið við tónlist fyrstu tölvu á íslandi
Dansar við tónlist
Jóhanns Jóhannssonar
SÍÐA 44
▲
● bílar o.fl.
Á trúföstum
Trabant
Guðbjartur Nilsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sérsveitarmenn misþyrmdu föngum í leynifangelsi:
Grófari pyntingar en áður
MISÞYRMINGAR Grófustu misþyrm-
ingarnar sem Bandaríkjamenn
hafa beitt í Írak áttu sér ekki stað
í Abu Ghraib-fangelsi sem hefur
verið í kastljósinu undanfarnar
vikur heldur í leynilegu fangelsi í
nágrenni Bagdad. Frá þessu sagði
bandaríska sjónvarpsstöðin NBC.
Meðferðin á föngum í fangels-
inu leynilega er sögð grófasta
brotið á Genfarsáttmálanum í öllu
Írak. Þrautþjálfaðir sérsveitar-
menn eru meðal annars sagðir
hafa haldið föngum í kafi þar til
þeir töldu þá vera að drukkna og
að haldið hafi verið fyrir vit fanga
þannig að þeir náðu ekki andan-
um, þar til þeir voru að því komn-
ir að kafna.
Frétt NBC rennir stoðum undir
grein sem birtist í tímaritinu The
New Yorker fyrir skömmu þar
sem því var haldið fram að Donald
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, hefði veitt sér-
sveitarmönnum sérstakar heim-
ildir til að þvinga fanga til svara.
Fyrst gilti sú heimild í Afganistan
en síðar einnig í Írak.
Fram kom í gær að lögfræðing-
ar Bandaríkjahers hefðu sett sig
upp á móti yfirheyrsluaðferðum í
fangabúðunum í Guantanamo. Þar
töldu þeir gengið of langt í óhefð-
bundnum yfirheyrslum.
Sjá nánar síðu 10.
BESTU STUÐNINGSMENNIRNIR Krakkarnir í Ísaksskóla studdu dyggilega við bakið á kennurum sínum þegar konur og karlar í kenn-
araliðinu brugðu á leik í gær og kepptu í knattspyrnu. Stúlkurnar fylktu sér að baki konunum en drengirnir hvöttu karlana. Engum sögum
fer af úrslitum leiksins eða baráttunni á áhorfendapöllunum.
AFSTAÐA TIL RÍKISSTJÓRNAR DAVÍÐS ODDSSONAR
Stuðningur við stjórnina hefur minnkað og andstaða við hana aukist í
þremur könnunum í röð.
Undir eftirliti
SÍÐUR 22 OG 23
▲
Setti hraðamet:
Átta tíma á
Everest
EVEREST Nepalskur sjerpi, Pemba
Dorji, var aðeins átta klukku-
stundir og tíu mínútur að klífa
Everestfjall og setti þar með
nýtt hraðamet. Fyrra metið átti
annar sjerpi, Lakpa Gheylu, sem
kleif fjallið á tíu klukkustundum
og 46 mínútum á síðasta ári.
Pemba bætti metið því um rúma
tvær og hálfa klukkustund.
Pemba og Lakpa hafa skipst á
að halda metinu. Þegar Lakpa
sló metið í fyrra var það aðeins
þremur dögum eftir að Pemba
hafði sett nýtt met, tólf klukku-
stundir og 43 mínútur.
Þegar Edmund Hilary og
sjerpinn Tenzing Norgay klifu á
fjallið tók það þá sjö vikur. ■
Samningar sjómanna og
útgerðarmanna:
Bíða til
hausts
SAMNINGAR Ríkissáttasemjari sér
að óbreyttu ekki ástæðu til að
kalla samninganefndir sjó-
manna og útvegsmanna saman
fyrr en í ágúst.
Samningar sjómanna hafa
verið lausir frá áramótum nema
hjá vélstjórum. Sjómenn vísuðu
kjaraviðræðunum til ríkissátta-
semjara þann 14. janúar og hafa
fundir verið haldnir á sjö til tíu
daga fresti. Ekkert hefur þokast
í átt til samkomulags. Sjómenn
segja að útvegsmenn hafi sýnt
áhugaleysi í samningaviðræðun-
um og tekið fálega í allar tillög-
ur sjómanna. Sjómenn og
útvegsmenn hafa ekki náð að
ljúka við tvo síðustu samninga
vegna lagasetningar en síðast
var samið án atbeina Alþingis árið
1995. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R