Fréttablaðið - 25.05.2004, Síða 10
10 25. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
ÞÚSUNDIR VIÐ ÚTFÖR
Nokkur þúsund manns voru viðstödd útför
sjö manna sem fram fór í gær. Mennirnir
létust í umsátri Ísraelshers um borgina en
alls hafa rúmlega 40 manns látist í henni.
Norðurljós um fjölmiðlalög:
Málshöfðun hefjist
fyrir réttarhlé
FJÖLMIÐLALÖG „Þetta eru sértæk lög
sem beinast að einu fyrirtæki og eig-
endum þess,“ segir Skarphéðinn Berg
Steinarsson, stjórnarformaður Norð-
urljósa, um lög um eignarhald á fjöl-
miðlum sem samþykkt voru á Alþingi
í gær. „Skoðun mín á þessum lögum
er enn sú sama.“
Að sögn Skarphéðins stefnir félag-
ið á að höfða mál gegn ríkinu vegna
laganna og er undirbúningur mál-
sóknar í fullum gangi.
„Það lá fyrir að lögin yrðu sam-
þykkt og höfum við því unnið að und-
irbúningi málsóknar að undanförnu,“
segir Skarphéðinn.
Aðspurður sagðist hann fastlega
gera ráð fyrir því að forseti Íslands
undirriti lögin og því væri ekki verið
að bíða eftir því varðandi ákvörðun
um málsókn. Hann sagði að ekki lægi
enn fyrir nákvæmlega hvenær form-
leg málshöfðun verður, en líklega
verði það mjög fljótlega því stefnt sé
að því að koma málinu fyrir dómstóla
áður en réttarhlé hefst, 1. júlí.
Hann sagðist ekki geta svarað því
gegn hvaða ákvæðum frumvarpsins
málsóknin myndi beinast, enda væri
það enn í skoðun.
Erlendir sérfræðingar í fjöl-
miðlarétti og tjáningarfrelsi komu
hingað til lands á vegum Norður-
ljósa fyrir skömmu og töldu að
frumvarpið bryti í bága við fjöl-
mörg ákvæði EES-samningsins og
mannréttindasáttmálans. Einnig
hafa íslenskir lögfræðingar tjáð sig
um að líklega brjóti frumvarpið í
bága við íslensku stjórnarskrána,
bæði tjáningarfrelsisákvæðið og
eignarréttarákvæðið. ■
Umdeilt fjölmiðlafrum-
varp orðið að lögum
Frumvarp forsætisráðherra um eignarhald á fjölmiðlum var samþykkt með atkvæðum meirihlutans á
Alþingi í gær. Kristinn H. Gunnarsson greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og Jónína Bjartmarz sat hjá.
Forseti Íslands hefur tvær vikur til að staðfesta lögin eða vísa þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu.
ALÞINGI Umdeilt frumvarp forsæt-
isráðherra um eignarhald á fjöl-
miðlum var samþykkt á Alþingi í
gær með 32 atkvæðum þing-
manna stjórnarflokkanna gegn 30
atkvæðum stjórnarandstæðinga
og Kristins H. Gunnarssonar,
Framsóknarflokki, sem var meðal
þeirra sem sögðu nei við frum-
varpið. Einn þingmaður greiddi
ekki atkvæði, Jónína Bjartmarz,
Framsóknarflokki, en hún sagðist
ekki geta stutt frumvarpið þrátt
fyrir þær umtalsverðu breytingar
sem gerðar hefðu verið á því.
„Ég vildi sjá
frekari breyt-
ingar á því. Sem
þingmaður geri
ég þann fyrir-
vara að lögin
rúmist innan
ramma stjórnar-
skrárinnar og
þann algilda fyr-
irvara gera allir
þingmenn þegar
þeir taka sæti á
þingi og undir-
rita drengskap-
arheit að stjórn-
arskránni. Ég
treysti mér ekki
til þess að styðja
f r u m v a r p i ð
núna,“ sagði
Jónína eftir að
fjölmiðlafrum-
varpið hafði ver-
ið samþykkt.
Breytingartillögur við frum-
varpið voru samþykktar með 33
atkvæðum Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar gegn 24 atkvæðum
Samfylkingarinnar og Frjálslynda
flokksins, en Kristinn H. Gunn-
arsson og fimm þingmenn Vinstri
grænna sátu hjá. Nafnakall fór
fram við atkvæðagreiðsluna og
gerðu fjölmargir þingmenn grein
fyrir atkvæði sínu. Fjöldi manns
kom sér fyrir á þingpöllum til að
fylgjast með afgreiðslu málsins.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
fór í ræðustól og las ummæli
Ólafs Ragnars Grímssonar, þá-
verandi þingmanns, á Alþingi árið
1995 um mikilvægi þess að setja
reglur og jafnvel að grípa til laga-
setningar til að sporna gegn óeðli-
legum valdatengslum og hringa-
myndun fjölmiðla.
„Ég geri orð Ólafs Ragnar
Grímssonar að mínum; Hringa-
myndanir af hálfu fjölmiðla
ganga þvert á nútíma hugsun á
vettvangi lýðræðis. Ef þessi orð
voru rétt árið 1995 þá eru þau
enn réttari núna,“ sagði Davíð.
Samkvæmt fjölmiðlafrum-
varpinu verður óheimilt að veita
fyrirtæki útvarpsleyfi ef annað
fyrirtæki á meira en 35% eign-
arhlut í því og núverandi út-
varpsleyfum verður leyft að
renna út, þó þannig að ekkert
þeirra renni út fyrr en eftir 1.
júní 2006. Fyrirtæki sem rekur
ljósvakamiðil má ekki eiga í
prentmiðli og markaðsráðandi
fyrirtæki í óskyldum rekstri
mega einungis eiga 5% í fjöl-
miðlafyrirtæki.
Umræða um fjölmiðlafrum-
varpið stóð í 84 klukkustundir
samfleytt á Alþingi, en aðeins
aðild Íslands að EES árið 1992
var rætt lengur á þingi, eða í um
100 klukkustundir. Fjölmiðla-
frumvarpið hefur nú verið sent
ríkisstjórninni sem lög frá Al-
þingi og hefur Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, nú
tvær vikur til að taka ákvörðun
um hvort hann staðfestir lögin
eða vísa þeim til þjóðaratkvæða-
greiðslu.
bryndis@frettabladid.is
„Ég geri orð
Ólafs Ragnar
Grímssonar
að mínum;
Hringamynd-
anir af hálfu
fjölmiðla
ganga þvert
á nútíma
hugsun á
vettvangi lýð-
ræðis. Ef
þessi orð voru
rétt árið 1995
þá eru þau
enn réttari
núna.
ATKVÆÐAGREIÐSLA UM
FJÖLMIÐLAFRUMVARP
JÁ
Sjálfstæðisflokkur
Arnbjörg Sveinsdóttir
Árni M. Mathiesen
Birgir Ármannsson
Bjarni Benediktsson
Björn Bjarnason
Davíð Oddsson
Drífa Hjartardóttir
Einar K. Guðfinnsson
Einar Oddur Kristjánsson
Geir H. Haarde
Guðjón Hjörleifsson
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðmundur Hallvarðsson
Gunnar Birgisson
Halldór Blöndal
Kjartan Ólafsson
Pétur H. Blöndal
Sigríður A. Þórðardóttir
Sigurður Kári Kristjánsson
Sólveig Pétursdóttir
Sturla Böðvarsson
Þorgerður K. Gunnarsdóttir
Framsóknarflokkur
Árni Magnússon
Birkir J. Jónsson
Dagný Jónsdóttir
Guðni Ágústsson
Halldór Ásgrímsson
Hjálmar Árnason
Magnús Stefánsson
Siv Friðleifsdóttir
Valgerður Sverrisdóttir
Þórarinn E. Sveinsson
NEI
Framsóknarflokkur
Kristinn H. Gunnarsson
Samfylkingin
Anna Kristín Gunnarsdóttir
Ágúst Ólafur Ágústsson
Ásgeir Friðgeirsson
Ásta R. Jóhannesdóttir
Björgvin G. Sigurðsson
Bryndís Hlöðversdóttir
Einar Már Sigurðarson
Guðmundur Árni Stefánsson
Guðrún Ögmundsdóttir
Helgi Hjörvar
Jóhann Ársælsson
Jóhanna Sigurðardóttir
Jón Gunnarsson
Katrín Júlíusdóttir
Kristján L. Möller
Lúðvík Bergvinsson
Margrét Frímannsdóttir
Mörður Árnason
Rannveig Guðmundsdóttir
Össur Skarphéðinsson
Frjálslyndi flokkurinn
Guðjón A. Kristjánsson
Gunnar Örlygsson
Magnús Þór Hafsteinsson
Sigurjón Þórðarson
Vinstri grænir
Jón Bjarnason
Kolbrún Halldórsdóttir
Steingrímur J. Sigfússon
Þuríður Backman
Ögmundur Jónasson
Sat hjá:
Jónína Bjartmarz, Framsóknarflokki
UMDEILD FJÖLMIÐLALÖG SAMÞYKKT Á ALÞINGI
Umdeilt frumvarp forsætisráðherra um eignarhald á fjölmiðlum var samþykkt á Alþingi í gær með 32 atkvæðum þingmanna stjórnar-
flokkanna gegn 30 atkvæðum stjórnarandstæðinga og Kristins H. Gunnarssonar, Framsóknarflokki, sem var meðal þeirra sem sögðu nei
við frumvarpinu. Einn þingmaður sat hjá við atkvæðagreiðsluna, Jónína Bjartmarz, Framsóknarflokki.
FLOYD ABRAMS, FILIP VAN ELSEN, SKARPHÉÐINN BERG STEINARSSON
OG SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON
Norðurljós höfða mál á hendur ríkinu vegna nýsamþykktra laga um eignarhald á
fjölmiðlum. Stefnt er á að það gerist fyrir réttarhlé, 1. júlí.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA