Fréttablaðið - 25.05.2004, Side 11
11ÞRIÐJUDAGUR 25. maí 2004
!
"!# $%%&&&'
Davíð Oddsson:
Slíkt vald
ekki liðið
ALÞINGI „Ég geri orð Ólafs Ragn-
ars Grímssonar frá 1995 að mín-
um; Hringamyndanir af hálfu
f j ö l m i ð l a
ganga þvert á
nútíma hugs-
un á vettvangi
l ý ð r æ ð i s .
Skoða þarf
r æ k i l e g a
hvort ekki
þurfi að setja
reglur og jafnvel lög sem tryggja
trúverðugleika fjölmiðlunar í
landinu og koma í veg fyrir óeðli-
leg valdatengsl og hringamyndun
á þessu sviði. Máttur hinna stóru
er slíkur að það er ekki hægt í lýð-
frjálsu ríki að sætta sig við slíkt
vald. Ef þessi orð voru rétt árið
1995 þá eru þau enn réttari
núna.“ ■
Kristinn H. Gunnarsson:
Leiðir til
fábreytni
ALÞINGI „Ég hef ekki útilokað að rétt
sé að setja löggjöf um einstaka þætti
á þessum markaði. Ég hef þó fjar-
lægst það eftir
því sem liðið hef-
ur á umræðuna
að rétt sé að setja
sérstaka löggjöf
um eignarhald á
fjölmiðlum og
vísa til sam-
keppnislaga sem
nægjanlegrar löggjafar til að trygg-
ja að ekki verði um of mikla sam-
þjöppun að ræða. Það eru ýmsir ann-
markar á þessu máli, aðallega sá að
málið sneiði mjög hart að ýmsum at-
riðum stjórnarskrárinnar og það er
ekki rétt stefna að Alþingi láti reyna
til hins ýtrasta á þanþol stjórnar-
skrárinnar. Frumvarpið leiðir til fá-
breyttari fjölmiðlaflóru en nú er.“ ■
Ögmundur Jónasson:
Háskalega
vanhugsað
ALÞINGI „Ég tel þetta frumvarp
háskalega vanhugsað og ekki líklegt
til að ná yfirlýstum tilgangi um að
auka fjölbreytni
í íslenskum fjöl-
miðlum. Þvert á
móti er líklegt að
hið gagnstæða
verði uppi á ten-
ingnum og hafa
verið færð fyrir
því ítarleg rök í
umræðum hér á Alþingi. Afgreiðsla
málsins veitir þjóðinni dýrmæta
innsýn inn í sálarlíf ríkisstjórnar-
innar. Vinnubrögð stjórnarflokk-
anna og fylgisspekt stjórnarþing-
manna við formenn sína hafa verið
með þeim hætti að ekki verður sagt
að þar séu á ferðinni öflugir liðs-
menn lýðræðislegra og vandaðra
vinnubragða.“ ■
Jónína Bjartmarz:
Stjórnarskrá
njóti vafans
ALÞINGI „Ég styð hið yfirlýsta mark-
mið þessa frumvarps. Ég studdi fram-
lagningu þess og mér þótti einsýnt að
það tæki breyting-
um við meðferð
þingsins og ég hef
staðið að og stutt
við þær grund-
vallarbreytingar
sem við frum-
varpið hafa verið
gerðar. Ég er þó
ekki sannfærð um að frumvarpið í
þessari breyttu mynd standist gagn-
vart stjórnarskránni og ég á ekki ann-
an kost en að láta stjórnarskrána njóta
vafans. Þess vegna get ég ekki stutt
frumvarpið og greiði því ekki at-
kvæði.“ ■
Halldór Blöndal:
Unnir
sönnu
lýðræði
ALÞINGI „Þar
sem ég ann
sönnum lýð-
ræðisháttum,
frjálsri fjöl-
miðlun og heil-
brigðri skoð-
a n a m y n d u n
segi ég já.“ ■
Bryndís Hlöðversdóttir:
Smánarleg
vinnubrögð
ALÞINGI „Ríkisstjórnin ræðst hér
freklega fram í skjóli valdsins á
svið sem er afar viðkvæmt og
snertir tjáning-
arfrelsið, enda
hefur málið leitt
til harðvítugra
deilna í þjóð-
félaginu. Allt
bendir til að
málið þurfi
frekari skoðun-
ar við af hálfu ríkisstjórnarinnar
og það er ekkert sem réttlætir þá
fljótaskrift og þau hrak-
smánarlegu vinnubrögð sem voru
viðhöfð í málinu.“ ■
Mörður Árnason:
Vitnaði í Jón
Sigurðsson
ALÞINGI „Að sérhver maður hafi
frelsi til að halda trú þá sem
hann vill, tala hvað hann vill,
rita hvað
hann vill og
láta prenta
hvað hann
vill, meðan
hann meiðir
engan, þykir
v i s s u l e g a
engum á Ís-
landi frelsi um of. Að líkum
hætti má atvinnufrelsi og versl-
unarfrelsi ekki missa það sem
nokkuð fjör og dugnaður á að
komast á fót og má í því skyni
ekki hafa stundarskaða nokk-
urra manna fyrir augum, heldur
gagn alþýðu bæði í bráð og
lengd. Jón Sigurðsson 1841. Ég
segi nei.“ ■
Guðjón A. Kristjánsson:
Gengur
gegn
lýðræði
ALÞINGI „Hér er verið að setja
lög sem ganga gegn lýðræðis-
legum viðhorfum mikils meiri-
hluta þjóðar-
innar. Ég
hafna þess-
um vinnu-
b r ö g ð u m
sem ganga
gegn tjáning-
arfrels inu.
Ég segi nei.“
■
Helgi Hjörvar:
Reif
frumvarpið
ALÞINGI „Þegar ríkisvaldið ræðst að
frjálsum fjölmiðlum, þegar ríkis-
valdið reynir að banna óæskilegum
einstaklingum að
útvarpa og sjón-
varpa skoðunum
sínum, þá er veg-
ið að tjáningar-
frelsinu. Frum-
skylda hins háa
Alþingis sem hér
situr er að stan-
da vörð um tjáningarfrelsið. Við
þetta frumvarp að ólögum er þess
vegna aðeins eitt að gera og það er
að rífa frumvarpið í tætlur. Ég segi
nei.“ ■
Hjálmar Árnason:
Hindrar
Berlusconi-ástand
ALÞINGI „Með frumvarpinu er verið
að stíga skref til að koma í veg fyrir
samþjöppun á fjölmiðlamarkaði og
stuðla að fjöl-
breytni í eignar-
haldi í fjölmiðl-
um. Með þessu
er verið að
bregðast við
ákalli þing-
manna allra flok-
ka á síðustu
misserum. Viðsnúningur þessara
sömu þingmanna núna er þess
vegna óskiljanlegur. Með þessu er
verið að skapa umgjörð sem kemur
í veg fyrir Berlusconi-ástand á
íslenskum fjölmiðlamarkaði.“ ■