Fréttablaðið - 25.05.2004, Page 12
12 25. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
BRAGÐGÓÐ KLÆÐI
Samia og Dominique klæddust kjólum úr
rækjum og sítrusávöxtum þegar þær voru
viðstaddar Chelsea-blómasýninguna
í London.
Hátt olíuverð hefur víða áhrif en heimsmarkaðsverð
lækkaði þó lítillega í gær:
Fargjöld strætó
hækka ekki
OLÍUVERÐ „Við gerum ráð fyrir
breytingum á eldsneytisverði á árs-
grundvelli og þessar hækkanir að
undanförnu eru enn innan þeirra
marka,“ segir Ásgeir Eiríksson,
framkvæmdastjóri Strætó, vegna
þeirra eldsneytishækkana sem ver-
ið hafa undanfarið. Strætó er einn
stærsti notandi eldsneytis hér á
landi og olíukaup stór kostnaðarlið-
ur hjá fyrirtækinu. Ásgeir telur að
grípa þurfi til einhverra aðgerða
fari svo að verðið verði áfram eins
hátt og verið hefur. „Það verður að
láta reyna á það en auðvitað hefur
þetta allt áhrif en ómögulegt er að
spá um til hvaða aðgerða verður
gripið. Ljóst er þó að við munum
ekki grípa til fargjaldshækkana
heldur fremur að þrengja beltið
annars staðar hjá fyrirtækinu.“
Heimsmarkaðsverð á olíu lækk-
aði lítillega í gær eftir að stærsti ol-
íuframleiðandi heimsins, Sádí Arab-
ía, ákvað að auka framleiðslu sína
til að slá á hræðslu um versnandi
efnahag vestrænna þjóða í kjölfar
þeirra hækkana sem orðið hafa und-
anfarið. Verð er engu að síður enn
afar hátt og ekki er víst að um frek-
ari lækkanir verði að ræða þar sem
hin olíuframleiðsluríkin innan
OPEC eru afar ósátt við þessa
ákvörðun þar sem slíkt á að ákvarð-
ast á fundum en ekki hjá hverju og
einu ríki fyrir sig. ■
LÍFEYRISSJÓÐUR STARFSMANNA
KÓPAVOGSBÆJAR
ÁRSFUNDUR 2004
Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar verður haldinn
fimmtudaginn 27. maí 2004 kl. 16.00 í Félagsheimili
Kópavogs, 2. hæð.
Dagskrá:
Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
Önnur mál.
Allir sjóðfélagar, þ.m.t eftirlaunaþegar, eiga rétt til fundarsetu
og eru allir viðkomandi hvattir til að mæta.
Þeim sjóðfélögum sem hafa áhuga á að kynna sér tillögur til breytinga
á samþykktum eða ársreikning sjóðsins fyrir fundinn er bent á að hafa
samband við Magnús Bjarnason framkv.stjóra sjóðsins,
netfang: mbjarnason@kopavogur.is eða í síma 570 1500
Kópavogi, 30. apríl 2004
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar
Sonur minn
slapp frá
barnaníðingi
– hefur þú séð DV í dag?
FYRIRHUGAÐ ÞJÓÐGARÐSSVÆÐI
Hlaupi engin snurða á þráðinn má búast við að opinber þjóðgarður norðan Vatnajökuls
verði opnaður árið 2012. Fastlega má búast við að reynt verði að koma þjóðgarðinum á
heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna þegar fram líða stundir.
Vatnajökulsþjóð-
garður árið 2012
Gangi hugmyndir þverpólitískrar nefndar sem gert hefur tillögur um
stofnun þjóðgarðs eftir mun stærsti þjóðgarður landsins verða að veruleika
eftir átta ár. Rík sátt er um tillögurnar hjá náttúruverndarsinnum.
UMHVERFISMÁL Svæðið norðan
Vatnajökuls býður upp á einstaka
möguleika á stofnun þjóðgarðs
sem mundi með nauðsynlegum
aðgerðum styrkja ferðaþjónustu
og byggð í grenndinni. Þetta eru
niðurstöður nefndar sem falið var
að koma með tillögur að stofnun
þjóðgarðs norðan þessa stærsta
jökuls Evrópu og Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra kynnti í
gær. Telur nefndin að samhliða
ákvörðun um stofnun þjóðgarðs á
þessu svæði þurfi að huga vel að
uppbyggingu aðstöðu til að taka
með góðu á móti þeirri umferð
ferðamanna sem gert er ráð fyrir
að aukist til muna gangi allar hug-
myndir eftir.
Umhverfisráðherra segir að
komið hafi í ljós að svæðið sem
um ræðir er einstakara en áður
var talið. „Það kom í ljós þegar
farið var að skoða hugmyndir um
þjóðgarð norðan Vatnajökuls að
þegar svæðið er borið saman við
sambærilegar náttúruminjar ann-
ars staðar í heiminum ber Vatna-
jökulssvæðið höfuð og herðar yfir
önnur svæði. Þarna er afar til-
komumikið samspil lands, íss og
elda og í raun ótrúlegt hvað land-
svæðið hefur að geyma mörg nátt-
úrufyrirbæri sem eru einstök á
heimsmælikvarða.“
Áætlanir gera ráð fyrir að um-
ferð ferðamanna aukist um allt að
fimm prósent árlega frá því sem
nú er á þessum slóðum með til-
komu betri vega og aðstöðu á
svæðinu en stofnkostnaður vegna
byggingar þjónustumiðstöðva og
uppsetningu merkinga verði 600
milljónir króna. Annar rekstar-
kostnaður yrði 140 milljónir
króna en nokkur fyrirtæki á borð
við bandaríska álrisann Alcoa og
Landsvirkjun hafa sýnt áhuga á
að styðja við þetta verkefni með
fjárframlögum. Þau framlög
kæmu að einhverju leyti til móts
við heildarkostnað ef af yrði.
Náttúruverndarsamtök Ís-
lands, sem og Landvernd, lýsa
ánægju með tillögur nefndarinnar
enda sé farið nákvæmlega eftir
reglum Alþjóða náttúruverndar-
samtakanna eins og nefndin
leggur til að gert verði.
albert@frettabladid.is
HUGMYNDIRNAR KYNNTAR
Umhverfisráðherra segir mikilvægt að
koma á umræðu í þjóðfélaginu
um væntanlegan þjóðgarð
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FARGJÖLD HÆKKA EKKI
Framkvæmdastjóri Strætó segir að ekki standi til að hækka fargjöld til að mæta auknum
útgjöldum vegna olíuverðsins sem er stór hluti rekstrarkostnaður hjá fyrirtækinu.