Fréttablaðið - 25.05.2004, Page 14
Sjálfstæðisflokkurinn fagnar í
dag 75 ára afmæli sínu. Allt frá
stofnun flokksins, þann 25. maí
árið 1929, hefur hann verið for-
ystuafl í íslenskum stjórnmálum
og borið höfuð og herðar yfir aðra
stjórnmálaflokka hvað kjörfylgi
áhrærir. Forystumenn flokksins
hafa iðulega vísað til hans sem
kjölfestu íslenskra stjórnmála.
Íhaldsmenn og Frjálslyndir
undir einum hatti
Sjálfstæðisflokkurinn varð til
þegar þingflokkar Frjálslynda
flokksins og Íhaldsflokksins sam-
einuðust. Var flokkurinn stofnað-
ur með svofelldri yfirlýsingu:
„Það hefur orðið að samkomulagi
milli þingmanna Íhaldsflokksins
og Frjálslynda flokksins að ganga
saman í einn flokk, er vér nefnum:
Sjálfstæðisflokk.“ Það hefur verið
eitt helsta einkenni íslenskra
stjórnmála að hægri vængurinn
er sameinaður í einum flokki en
ekki klofinn eins og tíðkast víða í
Evrópu.
Nafn flokksins á rætur sínar að
rekja til baráttunnar fyrir fullu
sjálfstæði íslensku þjóðarinnar. Í
grein sem Jón Þorláksson skrifaði
í blaðið Heimdall árið 1930 ræddi
hann um sjálfstæði út á við og
sjálfstæði inn á við. Um hið síðara
sagði Jón: „Að hver einstaklingur
fái að efla krafta sína og neyta
krafta sinna innan marka laga og
siðgæðis sjálfum sér, sérhverri
stétt og þjóðinni allri til aukinnar
velgengni og menningar með því
að vinna einn út af fyrir sig eða í
frjálsum félagsskap við aðra eða í
samvinnu með öðrum, eftir því
hvað hverju verkefni hentar
best.“
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
allt frá stofnun notið mikils kjör-
fylgis. Meðalfylgi flokksins er
39% en mesta fylgi hlaut hann í
alþingiskosningum árið 1933,
48%. Versta niðurstaða Sjálfstæð-
isflokksins er 27,2% í kosningun-
um árið 1987 en þá kom fram öfl-
ugt klofningsframboð Borgara-
flokksins. Úrslit síðustu kosninga,
33,7%, eru þau þriðju verstu í
sögu flokksins.
Úrslitaafl í umdeildum málum
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
haft úrslitaáhrif í mörgum um-
deildum málum. Flokkurinn hafði
forystu um inngöngu Íslendinga í
NATO árið 1949 og um gerð varn-
arsamnings við Bandaríkin í upp-
hafi 6. áratugarins. Undir forsæti
Ólafs Thors og Bjarna Benedikts-
sonar á tímum Viðreisnarstjórn-
arinnar á 7. áratugnum var horfið
frá haftabúskap fyrri ára og þátt-
taka Íslands í milliríkjaviðskipt-
um hófst fyrir alvöru. Þessi tími
markaði einnig umdeilt upphaf
stóriðju hér á landi og í byrjun 8.
áratugarins gengu Íslendingar í
EFTA.
Baráttan við verðbólgu ein-
kenndi íslensk stjórnmál á 8. og 9.
áratugnum en af málum sem
Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir
má nefna frelsi í útvarpsrekstri.
Á 10. áratugnum stóð Sjálfstæðis-
flokkurinn að umfangsmestu
einkavæðingu lýðveldistímans og
umbyltingu á íslenskum fjármála-
markaði, auk þess sem EES-samn-
ingurinn komst í höfn.
Áhrif Sjálfstæðisflokksins
hafa verið mjög mikil sem sést
best á því að flokkurinn hefur
setið í ríkisstjórn í 62 ár af 75
ára sögu sinni og átt forsætis-
ráðherra í 38 ár samtals. Þá hef-
ur hann alltaf haft meirihluta í
höfuðborginni ef frá eru talin
árin frá 1978 til 1982 og árin frá
1994.
Sjö formenn, sex forsætis-
ráðherrar
Alls hafa sjö menn gegnt
embætti formanns Sjálfstæðis-
flokksins. Jón Þorláksson var
fyrsti formaður flokksins en Jón
sat aldrei í ríkisstjórn fyrir
hönd Sjálfstæðisflokksins. Ólaf-
ur Thors tók við af Jóni og varð
hann mjög áhrifamikill leiðtogi.
Ólafur settist fyrst í ríkisstjórn
árið 1932 og stýrði fimm ríkis-
stjórnum áður en hann lét af
embætti í upphafi 7. áratugar-
ins. Þá tók Bjarni Benediktsson
við flokknum og ríkisstjórn.
Bjarni féll frá með sviplegum
hætti sumarið 1970 og tók þá Jó-
hann Hafstein við embætti for-
manns og forsætisráðherra.
Árið 1973 var Geir Hall-
grímsson kosinn formaður eftir
14 25. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
HREINN DAVÍÐ
Umdeildri hreinsun listaverksins Davíðs eftir
Michelangelo er lokið á undan áætlun. Sót
og skítur sem hafði safnast á styttuna
síðustu áratugi var hreinsað í tilefni þess
að 500 ár eru frá sköpun listaverksins.
Flest bendir til að ráðist hafi verið á brúðkaupsgesti:
Myndir finnast
úr brúðkaupinu
ÍRAK, AP Vísbendingar hrannast
upp um að rúmlega 40 manns sem
létust í árás Bandaríkjahers í
Írak, nálægt sýrlensku landa-
mærunum, hafi verið brúðkaups-
gestir en ekki erlendir vígamenn
eins og bandaríska herstjórnin
heldur fram.
AP-fréttastofan hefur dreift
myndbandi sem er sagt sýna
brúðkaupsveisluna sem heima-
menn segja að hafi verið ráðist á.
Á því myndbandi má sjá brúðina
koma á staðinn, menn slappa af í
marglitum sessum og pilta dansa
við þjóðlög. Meðal þeirra sem
fréttamaður og myndatökumaður
AP báru kennsl á af myndbandinu
var fjöldi vitna sem þeir ræddu
við dagana eftir árásina, öll halda
því fram að ráðist hafi verið á
brúðkaupsgesti eftir að þeir fóru
að sofa.
Bandaríkjamenn neita þessu.
„Það voru engar vísbendingar um
brúðkaup; engar skreytingar, eng-
in hljóðfæri, engar birgðir af mat
eða afgöngum eins og búast mætti
við eftir brúðkaup,“ sagði Mark
Kimmitt hershöfðingi. „Kannski
voru einhver hátíðahöld þarna.
Illmenni skemmta sér líka.“
Þrátt fyrir þessi orð Kimmitts
gefa myndir sem AP tók á vett-
vangi til kynna að þar hafi brúð-
kaup átt sér stað. ■
Kjölfesta íslenskra stjórnmála
Áhrifamesti stjórnmálaflokkur landsins fagnar í dag stórafmæli. Þann 25. maí fyrir 75 árum
gengu þingmenn Frjálslynda flokksins og Íhaldsflokksins saman í einn flokk, Sjálfstæðisflokkinn.
BORGAR ÞÓR EINARSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
SJÁFSTÆÐISFLOKKURINN
75 ÁRA
■ ASÍA
LÉST Á EVEREST Búlgarskur maður
varð fyrsti fjallgöngumaður ársins
til að láta lífið við að ganga á Ever-
estfjall. Lík mannsins fannst í gær
en þá hafði mannsins verið saknað
í fjóra daga. Talið er að súrefnis-
skortur og þreyta hafi kostað hann
lífið á leiðinni niður.
GASIÐ AF BORGINNI Íbúar í
Makhachkala, höfuðstað rússneska
Mið-Asíulýðveldisins Dagestan,
máttu sætta sig við að borða kaldan
mat í gær. Ástæðan var sú að
gasleiðsla til borgarinnar fór í
sundur en stærstur hluti borgarbúa
notar gas við matseldina. Búist er
við að íbúar geti hitað sér mat í dag
eða á morgun.
Á VETTVANGI
Eyðileggingin var gríðarleg og brak
úr bílum dreifðist víða.
Kviknaði í bíl:
16 létust í
sprengingu
RÚMENÍA, AP Sextán létu lífið þegar
bíll sem flutti áburð sprakk í loft
upp á vegi í bænum Mihailesti í suð-
austurhluta Rúmeníu í gærmorgun.
Sex hinna látnu voru slökkviliðs-
menn sem voru kallaðir á vettvang
eftir að eldur kviknaði í bílnum.
Slökkviliðsmennirnir voru að búa
sig undir að slökkva í bílnum þegar
hann sprakk í loft upp. Þeir vissu
ekki hvað var í honum og voru því
ekki meðvitaðir um hættuna.
Flutningabíllinn tættist í sundur
og fimmtán metra breiður gígur
myndaðist þar sem hann var. ■
M
YN
D
/A
P
ÚR BRÚÐKAUPINU
Hljómborðsleikarinn, sem sagður er hafa skemmt brúðkaupsgestum,
var meðal þeirra sem létust í árásinni.
Sjálfstæðisflokkurinn í ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokkurinn í forsæti
STÆRSTUR OG ÁHRIFAMESTUR
Landsfundir Sjálfstæðisflokksins eru haldnir annað hvort ár og þykja með veigameiri
stjórnmálasamkomum hérlendis.