Fréttablaðið - 25.05.2004, Side 16
16 25. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
NÝI TÍMINN OG GAMLI
Nútíð og fortíð mættust í göngu til minn-
ingar um heilagan Kýrillius, sem hannaði
letrið sem er kennt við hann. Gamli mað-
urinn á myndinni klæðist herbúningi úr
seinni heimsstyrjöld og heldur á mynd af
Nikulási II Rússlandskeisara sem missti
völdin 1917.
Afríka:
Grunur um ný tilfelli af ebólu
SJÚKDÓMAR Grunur leikur á að af-
brigði af hinni skæðu ebóluveiru
hafi stungið sér niður í suðurhluta
Súdan og hefur Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin sent sérfræðinga til lands-
ins til hjálpar. Borist hafa fregnir af
fimmtán sem sjúkir eru og hafa þeg-
ar fjórir þeirra látist. Hundrað aðrir
eru undir eftirliti lækna en afar
erfitt er að greina sjúkdóminn þar
sem fyrstu einkenni hans eru hiti og
verkir í liðum en slíkt getur átt við
marga sjúkdóma.
Orsök ebólu er enn ekki kunn en
versta afbrigði hennar dregur 90
prósent þeirra sem sýkjast til dauða
á tveim til þrem dögum. Á stuttum
tíma fær einstaklingur mikinn hita
og höfuðverk og skömmu síðar fær
viðkomandi ælupest og niðurgang.
Síðan fylgir óráð og örmögnun sem
síðan leiðir til innvortis blæðinga.
Mikill blóðmissir verður þess vald-
andi að erfitt verður um andardrátt
og flestir látast skömmu síðar. Eng-
in lækning er enn til þrátt fyrir að
talsvert hafi verið unnið í þá átt
undanfarin ár. ■
Ellefta bankaránið
Frá fyrsta apríl í fyrra hafa verið framin ellefu bankarán. Í öllum nema einu hafa ræningjarnir
ýmist verið vopnaðir eggvopnum eða bareflum.
Þrír menn sem grunaðir eru umvopnað rán í Landsbankanum við
Gullinbrú síðasta föstudag sitja í
gæsluvarðhaldi til morguns. Tveir
mannanna voru handteknir sama
dag og ránið var framið en sá þriðji
daginn eftir.
Var bankaránið í Landsbankanum
við Gullinbrú það þriðja á þessu ári
og það ellefta síðan fyrsta apríl í
fyrra. Flest ránin hafa verið upplýst
að fullu og hefur dómur hefur verið
kveðinn upp í nokkrum þeirra. Sá
sem framdi vopnað rán í Íslands-
banka í Lóuhólum er enn ófundinn
en málið er enn í fullri rannsókn. Þá
hefur enginn játað ránið í SPRON í
Hátúni í janúar. DNA-sýni úr gögn-
um málsins passa við einn mann sem
staðfastlega neitar sök. Rannsókn-
inni er lokið og verður það dómstóla
að skera úr um sekt eða sakleysi
mannsins.
Taldi í sig kjark hjá skósmiðnum
Bylgja bankaránanna hófst
þriðjudaginn fyrsta apríl á síðasta
ári þegar nítján ára piltur kom vopn-
aður hnífi inn í Sparisjóð Hafnar-
fjarðar við Reykjavíkurveg. Hann
náði öllum peningum úr skúffu eins
gjaldkerans eða 1.692.000 krónum.
Lögreglan í Hafnarfirði leit rann-
sóknina mjög alvarlegum augum.
Grunur var um að ræninginn hefði
flúið á bíl. Karl Karlsson, skósmiður
í Skóaranum í næstu byggingu við
bankann, sagði að um sama leyti og
ránið var framið hafi piltur komið
inn til sín og viljað fá að bíða þar.
Lýsing Karls á ræningjanum passaði
við þá mynd sem lögreglan hafði af
honum.
Ræninginn var handtekinn föstu-
daginn fjórða apríl og var hann úr-
skurðaður í gæsluvarðhald í viku. Í
fyrstu neitaði hann sök en lögreglan
hafði sterkar vísbendingar sem
tengdu hann við málið. Hann hafði
lítillega komið áður við sögu lög-
reglu. Eftir að hann játaði á sig ránið
var honum sleppt úr gæsluvarðhaldi.
Hann hafði komið peningunum fyrir
á víðavangi og var búinn að eyða
hluta þeirra áður en lögregla náði að
koma höndum yfir þá.
Vísaði aldrei á ránsfenginn
Maður um tvítugt ruddist inn í
Sparisjóð Kópavogs við Hlíðarsmára
vopnaður hnífi þann 16. maí í fyrra.
Hann svipti sér inn í mannlausa
gjaldkerastúku og hrifsaði peninga
úr skúffu, um 900 þúsund krónur. Að
því loknu hljóp hann út. Vitni sáu til
ræningjans hlaupa til suðurs þegar
hann kom út úr sparisjóðnum. Ör-
yggismyndavélar náðu myndum af
manninum sem ekki huldi andlit sitt.
„Mér sýnast þetta vera sæmilegar
myndir þegar búið er að skýra þær
og skerpa. Við erum ekki búnir að
bera kennsl á manninn og getur það
reynst erfitt þrátt fyrir myndirnar.
Ekki er víst að lögreglan þekki and-
litið á kauða og við leitum til fjöl-
miðla til að birta mynd af honum,“
segir Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn í Kópavogi.
Ræninginn gaf sig fram við lög-
reglu eftir að myndir voru birtar af
honum í fjölmiðlum. Hann vildi þó
aldrei gera grein fyrir hvar pening-
arnir væru. Fyrir dómi sagði ræn-
inginn að hann hefði rænt bankann
til að losna undan fíkniefnaskuld.
Peningana endurgreiddi hann með
hjálp foreldra sinna. Hann var
dæmdur í níu mánaða fangelsi skil-
orðsbundið til fimm ára í Héraðs-
dómi Reykjaness í lok febrúar síð-
astliðinn.
Henti þýfinu út úr bílnum
Tveir starfsmenn voru í af-
greiðslu og einn viðskiptavinur voru
í Landsbankanum í Grindavík þegar
maður vopnaður hnífi ruddist inn í
bankann 5. júní á síðasta ári. Maður-
inn hljóp úr bankanum með pening-
ana sem hann náði, rúmum 900 þús-
und krónum. Skömmu eftir ránið
lokaði lögreglan öllum undankomu-
leiðum frá Grindavík. Innan við hálf-
tíma eftir ránið stöðvaði lögreglan
bíl á leið úr bænum. Bílstjórinn var
nítján ára piltur sem passaði við lýs-
ingu á ræningjanum. Þýfið var ekki í
bílnum og hóf lögreglan þá umfangs-
mikla leit. Leitarhundar og björgun-
arsveitarmenn aðstoðuðu við leitina.
Þýfið fannst í svartri tösku í veg-
kantinum nærri Reykjanesvita.
Ræninginn hafði hent töskunni úr
bílnum þegar hann varð var við að-
gerðir lögreglu. Síðar gekkst hann
við ráninu og benti lögreglu á stað
þar sem var að finna fatnaðinn og
hnífinn, sem var eldhúshnífur með
tuttugu sentímetra hnífsblaði.
Ræninginn reyndist vera sá hinn
sami og rændi Sparisjóð Hafnar-
fjarðar í byrjun apríl. Hann var
dæmdur til tveggja og hálfs árs
fangelsisvistar fyrir ránin. Hann bar
því við að ránin hefði hann framið til
að greiða skuldir sínar og komast hjá
handrukkurum.
Beið eftir strætó
25 ára maður rændi eitt hundrað
þúsund krónum í Íslandsbanka á
Eiðistorgi þann 29. ágúst í fyrra.
Hann gekk inn fyrir gjaldkerastúku,
fram hjá starfsmanni og tók
peningabúnt og hélt út. Starfsmenn
gerðu lögreglu viðvart um ránið með
því að þrýsta á öryggishnapp og
mætti fjöldi lögreglumanna á stað-
inn.
Einn starfsmanna bankans veitti
ræningjanum eftirför og gat sagt til
um hvar hann væri að finna. Níu
mínútum eftir að ránið var tilkynnt
var ræninginn handtekinn í strætó-
skýli á Eiðisgranda þar sem hann
hélt á ránsfengnum í rauðum bak-
poka og beið eftir strætó. Maðurinn,
sem er góðkunningi lögreglunnar,
var hvorki vopnaður né huldi andlit
sitt. Hann veitti lögreglunni enga
mótstöðu.
Eins og mörgum er kunnugt er
lögreglustöð á næstu hæð fyrir ofan
útibúið, en lögreglumenn stöðvar-
innar voru fjarstaddir þegar ránið
var framið.
Ræninginn gengur enn laus
Þann 18. september kom maður
inn í Íslandsbanka í Lóuhólum, vopn-
aður eggvopni, stökk yfir gjaldkera-
borð, hrifsaði peninga úr skúffunni
og hljóp á brott. Hörður Jóhannes-
son, hjá lögreglunni í Reykjavík,
sagði að myndirnar úr öryggis-
myndavélum af ræningjanum væru
nokkuð skýrar og þær séu eitt af því
fáa sem lögreglan gæti stuðst við.
Ákvörðun var tekin um að birta ekki
myndir af ræningjanum í fjölmiðl-
um vegna eðlis þeirra að sögn Harð-
ar. Í ráninu hljóp ræninginn út og
hvarf. Hann var venjulegur útlits og
engin auðkenni við hann og því fá
kennileiti. Ræninginn er enn ófund-
inn.
Eyddi helmingi ránsfengsins
Sautján ára piltur vopnaður hnífi,
klæddur lambhúshettu með götum
fyrir augu og munn, kom inn í Spari-
sjóð Hafnarfjarðar og heimtaði pen-
inga í poka þann 14. nóvember 2003.
Eftir að hafa fengið peningana af-
henta hvarf ræninginn á braut.
Skömmu eftir ránið mætti lögreglan
á staðinn með sporhund til að freista
þess að finna flóttaleið ræningjans.
Var þetta annað ránið í sparisjóðnum
á skömmum tíma og var starfsfólk-
inu illa brugðið. Fjölmiðlar fengu
upplýsingar um að ræninginn hafi
fengið óverulega upphæð í hendurn-
ar.
Ræninginn náðist nokkrum dög-
um eftir ránið og játaði verknaðinn
við yfirheyrslur hjá lögreglu. Hann
vísaði á það sem eftir var af ráns-
fengnum en þá hafði hann verið bú-
inn að eyða um helmingi hans. Lög-
regla vildi á sínum tíma ekki gefa
upp hvernig hún komst á spor ræn-
ingjans né hvort pilturinn hefði áður
komist í kast við lögin.
Ók eigin bíl á flóttanum
21 árs maður með lambhúshettu
ruddist inn í Búnaðarbankann við
Vesturgötu og ógnaði gjaldkera með
hnífi og hélt á brott með peninga í
plastpoka þann 17. nóvember í fyrra.
Sjónarvottar sögðu ræningjann hafa
verið hávaxinn og stæltan. Þegar
hann kom aftur út úr bankanum tók
hann niður húfuna en skýldi andlit-
inu með annarri hendinni og skokk-
aði niður á Nýlendugötu þar sem
hann fór upp í rauðan bíl. 25 ára vin-
ur hans ók eigin bíl á flóttanum.
Ungt par veitti ræningjunum eftir-
för austur eftir Sæbrautinni. Þegar
þau misstu sjónar af bílnum héldu
þau til baka og gáfu lögreglu hald-
góðar upplýsingar um bílinn og ferð-
ir ræningjanna. Fljótlega fundust
ræningjarnir. Báðir höfðu þeir kom-
ið við sögu lögreglu en áttu þó ekki
langan brotaferil að baki.
Ræningjanum var neitað um pen-
inga
Maður vopnaður hnífi ógnaði
starfsfólki Landsbankans við Gullin-
brú og krafðist peninga þann fimmta
desember í fyrra. Eftir að starfsfólk-
ið neitaði að afhenda honum peninga
snéri hann við og fór út og upp í bíl.
Ræninginn og samverkamaður hans
náðust skömmu eftir ránið en vitni
sá bæði bílinn og bílnúmer. Bíllinn
fannst fyrir utan heimili annars
mannanna sem voru 22 og 24 ára
gamlir. Þeir játuðu verknaðinn við
yfirheyrslur hjá lögreglu og var
sleppt að því loknu. Báðir eiga þeir
sakaferil að baka þó að þeir hefðu
ekki áður framið verknað í líkingu
við þennan.
Ellefu handteknir vegna ránsins
Tveir menn vopnaðir bareflum
og með hulin andlit ruddust inn í úti-
bú SPRON við Hátún níunda janúar.
Þeir brutu gler í einni gjaldkera-
stúkunni, hrifsuðu peninga úr
HERMENN AÐ STÖRFUM Í ÍRAK
Verkamannaflokkurinn í Bretlandi óttast að
erfiðleikar hernámsliðsins í Írak geti haft
áhrif á úrslit flokksins í borga- og sveitar-
stjórnarkosningunum í júní.
Kosningar í Bretlandi í
júní:
Óttast áhrif
stríðsins í
Írak
BRETLAND, AP Verkamannaflokk-
urinn telur erfiðleika her-
námsliðsins í Írak geta haft
áhrif á úrslit í borga- og sveitar-
stjórnarkosningum sem fara
fram í Bretlandi þann 10. júní.
Peter Hain, sem gegnt hefur
embætti ráðherra Wales, óttast
afleiðingar stefnu ríkisstjórnar
Verkamannaflokksins vegna
Íraksmálsins. Hann segir stefnu
flokksins í málinu hafa valdið
miklum vanda og segist óttast
að kjósendur sitji annað hvort
heima eða kjósi jafnvel annan
flokk en Verkamannaflokkinn.
■
– hefur þú séð DV í dag?
Sjálfstæðis-
flokkurinn
vildi verðlauna Árna
Óánægja innan Framsóknar
M
YN
D
/A
P
FRÁ SÚDAN
Fundist hefur nýtt afbrigði af hinni skæðu ebóluveiru í suðurhluta landsins en veiran
dregur fólk til dauða á nokkrum dögum.
EBÓLUFARALDURINN:
1976 Súdan 117 látnir
1976 Kongó 280 látnir
2000 Úganda 173 látnir
2002 Úganda 100 látnir
1.apríl 2003 Sparisjóður Hafnarfjarðar
16. maí 2003 Sparisjóður Kópavogs
5. júní 2003 Landsbankinn í Grindavík
29. ágúst 2003 Íslandsbanki á
Eiðistorgi
18. september 2003 Íslandsbanki við
Lóuhóla
14. nóvember 2003 Sparisjóður
Hafnarfjarðar
17. nóvember 2003 Búnaðarbankinn
við Vesturgötu
5. desember 2003 Landsbankinn við
Gullinbrú
9. janúar 2003 SPRON í Hátúni
17. maí 2003 SPRON Mjóddinni
21. maí 2003 Landsbankinn við
Gullinbrú
HJÖRDÍS RUT SIGURJÓNSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
SKRIFAR UM BANKARÁN