Fréttablaðið - 25.05.2004, Page 23
Sala línuskauta hefur verið að
aukast mjög mikið síðustu ár og
er elsti kaupandi þeirra sem ég
hef afgreitt um sjötugt,“ segir
Bjarni Baldursson, sölumaður í
íþróttaversluninni Útilífi, en hann
sérhæfir sig í að selja línuskauta
og veita fólki ráðgjöf við kaup á
þeim.
„Það er mjög gott fyrir maga,
rass og læri að leika sér á línu-
skautum og jafnvel hollara en
skokk því hnén verða fyrir minna
hnjaski,“ segir Bjarni og bætir
við að margar útgáfur séu til af
línuskautum.
Hægt er að kaupa stækkanlega
barnaskauta en þeir eru til í núm-
erunum 30-33 og einnig 34-37 og
kosta 3.990 krónur. Síðan er hægt
að fá fullorðinsskauta í númerun-
um 35-48 og eru þeir á verðbilinu
7.990 krónur og upp í 24.990 krón-
ur. Svo þarf líka að huga að hlífum
en mikilvægast er að fólk sé með
hjálm og úlnliðahlífar. Gott er að
fjárfesta einnig í hnéhlífum og
olnbogahlífum til að hafa öryggið
á oddinum. „Hægt er að kaupa
hlífapakka hjá okkur sem inni-
heldur úlnliðahlífar, hnéhlífar og
olnbogahlífar sem er náttúrlega
skynsamlegast að nota ef forðast
á meiðsl,“ segir Bjarni.
„Það er mjög mismunandi
hvernig skautar henta fólki best,
það fer allt eftir því hvernig það
skautar,“ segir Bjarni. Ef fólk er
að hugsa um að gera einhverjar
kúnstir á pöllum og handriðum þá
er hægt að kaupa svokallað
freestyle skauta. Hjólin á þeim
eru minni og mýkri og grípa bet-
ur, en á móti kemur að hraði er
ekki mikill þar sem litlu hjólin
hafa minna viðnám við götuna. Ef
fólk vill hins vegar fara hratt og
komast leiðar sinnar á sem
skemmstum tíma þá eru notuð
stærri og harðari dekk sem auka
hraðann. „Tvær legur eru í hverju
dekki og er betra fyrir byrjendur
að vera með lakari legur sem snú-
ast ekkert voðalega hratt. Staðal-
legurnar heita Apec og hafa þau
númerin einn, þrír, fimm eða sjö.
Því hærri sem talan er því hraðari
snúast legurnar,“ segir Bjarni,
sem hefur greinilega mikið vit á
línuskautum enda búinn að leika
sér á þeim síðan árið 1993.
„Það er mjög fínt að skauta í
Reykjavík og ég get stundum
skautað allt frá mars og fram í
desember. Stundum er mikið salt
og sandur á götunum og mætti því
sópa þær fyrr en yfirleitt er mjög
gott að komast leiðar sinnar á
milli bæjarhluta,“ segir Bjarni og
bætir við að vinsælasti staðurinn
til að skauta sé Nauthólsvík.
Nokkur slys verða á ári hverju
af völdum línuskautaiðkunar en
samkvæmt Ófeigi Tryggva Þor-
geirssyni, lækni á Landspítala - há-
skólasjúkrahúsi eru þau ekki al-
varleg. „Aðallega eru þetta úlnliða-
meiðsl og handarmeiðsl en engin
stórslys. Einnig er svolítið um
tognanir og mar,“ segir Ófeigur. ■
3ÞRIÐJUDAGUR 25. maí 2004
Loksins! Besta bók sem ég hef
lesið um andleg málefni er komin
út á íslensku. Í raun er bókin
sambland úr tveimur bókum
eftir búddamúnkinn og sálfræð-
inginn Jack Kornfield og nefnist
á íslensku Um hjartað liggur leið
í þýðingu Sigurðar Skúlasonar.
Ég las bókina A Path With Heart
fyrst á ensku árið 1997 og hef les-
ið reglulega í henni síðan. Bókin
er einstök vegna þess að hún er
svo manneskjuleg. Kornfield
varði átta árum sem munkur í
Austurlöndum en þegar hann
kom aftur til Bandaríkjanna átt-
aði hann sig á því að hann ætti
margt eftir ólært. Hann hafði
ekki sinnt tilfinningum sínum og
líkama. Bókin fjallar um það
hvernig Kornfield náði að sam-
hæfa hugleiðslutækni búdda-
munksins og lífsstíl hins vest-
ræna manns. Hann tekur fyrir
allar þær hættur sem leynast á
vegi andlegra leitenda. Sérstak-
lega finnst mér kaflinn Nýju föt-
in keisarans góður en hann fjall-
ar um fögur fyrirheit og síðan
svik andlegra kennara úr öllum
hefðum. Bókin er skyldulesning
fyrir alla sem stunda andlegt líf-
erni af einhverju tagi, hvort sem
þeir eru kristnir, búddistar,
múslimar eða mannræktar-
sinnar. Eftir að hafa farið svo
fögrum orðum um bók finnst mér
mikilvægt að taka fram að ég hef
engra hagsmuna að gæta hér.
Vissulega þekki ég Sigurð Skúla-
son en það er Salka bókaforlag
sem gefur bókina út og ég hagn-
ast ekki persónulega á því að
veita henni meðmæli. Ég geri það
einungis vegna þess að ég trúi að
margir geti hagnast á því að lesa
um leið hjartans. ■
Líkami og sál
GUÐJÓN BERGMANN, JÓGAKENNARI
OG RITHÖFUNDUR, SKRIFAR UM
HEILSU LÍKAMA OG SÁLAR.
Leið hjartans
gbergmann@gbergmann.is.
Í þessari Ayurveda-teblöndu er m.a. Pu-Erh te, sem er
notað víða um heim til megrunar. Einnig er í blöndunni
Maté, náttúrulegur orkuauki frá Suður-Ameríku, en í því
eru nærandi og andoxandi efni.
Jafnvægi jurtablöndunnar er fullkomnað með hreinsandi
jurtum svo sem rósmarín, rauðrunna og brenninetlu.
Fullkomið jafnvægi
Slim & Fit te inniheldur jurtir til að örva efnaskiptin og er kjörin viðbót
við æfinga- og mataræðisprógrömm
Lífrænt
hreinsandi
og hressandi
jurtate
Einnig eru til fleiri tegundir í Yogi línunni eins og
t.d. De-Tox, Licorice, Green Power ofl.
Bjarni Baldursson segir gott fyrir maga, rass og læri að leika sér á línuskautum.
Sumarið er tíminn fyrir línuskauta:
Holl, góð og
skemmtileg hreyfing
Lilja Guðnadóttir, snyrtifræð-
ingur, nuddari og ilmkjarna-
fræðingur í Hveragerði, hefur
um árabil framleitt sérstaka
saltpúða og baðsölt með ilm-
kjarnaolíum. „Ég hafði sjálf
prófað að fara í saltböð og fund-
ið hvað þau gerðu mér gott,“
segir Lilja. „Ég notaði saltböðin
fyrst sem snyrtifræðingur fyrir
mína viðskiptavini, en draumur-
inn var alltaf að koma þessum
efnum í poka sem fólk gæti lagt
á líkamann. Það tók mig mörg ár
að þróa saltpokana sem eru hit-
aðir upp í ofni.“ Þess má geta að
Lilja hefur fengið viðurkenn-
ingu frá Iðntæknistofnun fyrir
pokana.
Þegar Lilja hafði bætt við sig
ilmkjarnafræðunum fannst
henni freistandi hugmynd að
sameina þetta tvennt, saltið og
ilmin. „Nú nota ég ilmkjarnaolí-
ur í baðsöltin og nú eru sjö teg-
undir á markaðnum.
Lilja segist líka vera með stó-
kostlega salvíublöndu sem virk-
ar sérlega vel fyrir konur á
breytingaskeiði. „Hún svínvirk-
ar á svitakófin, það veit ég af
eigin reynslu,“ segir Lilja hlæj-
andi. „Það hafa fundist ös-
trogenefni í salvíunni sem hefur
leiðréttandi áhrif á truflanir í
hormónakerfinu.
Það nýjasta hjá Lilju eru
sælupúðar og gælupúðar en í þá
notar hún lífrænt ræktað bygg
frá Móður jörð á Egilsstöðum.
„Gælupúðarnir eru lagðir á aug-
un og taka burt þreytu og bólgu
en sælupúðarnir eru með pip-
armintu og fólk getur haft þá við
mjóbakið þegar það ekur bíl eða
horfir á sjónvarpið. Ilmúðarnir
eru svo flunkuný afurð, en lík-
amsúðinn er notaður við hver-
skyns kvillum og heimilisúðinn
virkar á uppsafnaða neikvæða
orku innan heimilisins. Hann
drepur líka bakteríur þannig að
hann er tilvalinn til að koma í
veg fyrir kvef og pestar. „
Vörur Lilju eru til sölu í
Betra lífi og Rammagerðinni. ■
[ ILMÚÐi, BAÐSÖLT OG SÆLUPÚÐAR ]
Næring fyrir líkama og sál
Lilja Guðnadóttir hefur þróað heilsuvörur úr ilmkjarnaolíum, byggi og salti.