Fréttablaðið - 25.05.2004, Page 28
Stokkandarhjón á Tjarnarbakkanum. Engu líkara en að þau séu að velta fyrir sér hvað gerist innan dyra í ráðhúsinu.
SJÓNARHORNSVIPMYND
SANDGERÐI: SJÁVARPLÁSS YST Á
REYKJANESI
ÍBÚAFJÖLDI : 1.398
EINKENNI: Flatt landslag og fá-
breytt.
VEÐURFAR: Aldrei logn.
ÞEKKTASTI ÍBÚI Í SANDGERÐI FYRR
OG SÍÐAR: Fjöllistakonan Leoncie
býr í Sandgerði með Viktori unnusta
sínum.
FRUMKVÖÐLAR: Árið 1918 var sett
upp í Sandgerði fyrsta rafstöðin á
Suðurnesjum. Um tíma á sjöunda
áratugnum var rekin glerverksmiðja
í Sandgerði.
ÞURR BÆR: Fyrstu félagasamtök í
Sandgerði voru góðtemplarastúkur
sem störfuðu á síðasta tug 19. aldar.
VISSIR ÞÚ ...
... að hestur sem vegur 600 kíló
étur sjö sinnum þyngd sína á ári.
... að kamelljón geta horft í tvær
áttir í einu.
... að simpansar eru einu aparnir
sem þekkja sjálfa sig í spegli.
... að kakkalakki getur lifað hátt í
viku hauslaus.
... að kvenmakríllinn gýtur 500.000
eggjum í einu.
... að vírus sem gekk í Bandaríkj-
unum árið 1872 drap fjórðung allra
hesta í landinu.
... að köttur getur lifað lengur án
vatns en kameldýr.
... að í venjulegu rúmi eru um það
bil sex milljarðar rykmaura.
25. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR8
„Alltaf gaman að sjá árangur erfiðisins,“
segir Þórarinn.
Þórarinn Halldórsson, verkstjóri
hjá Jarðkrafti:
Erfiðast að
falla á tíma
Í hverju felst starfið?
Ég stjórna bæði mannskap og vélum
hjá jarðvinnufyrirtækinu Jarðkrafti.
Hvenær vaknarðu á morgnana?
Klukkan sjö. Ekki veitir af því ég mæti
í vinnuna hálf átta.
Hversu lengi vinnurðu?
Oftast til klukkan sjö á kvöldin og
stundum lengur. En við reynum að
hætta sjö.
Hvað er skemmtilegast við starfið?
Fjölbreytnin er skemmtilegust og svo
er alltaf gaman að sjá árangur erfiðis-
ins og koma hlutum í verk.
En erfiðast?
Að standast ekki áætlun með verk og
vera að falla á tíma.
.
Hvað gerirðu eftir vinnu?
Stundum þarf ég að útrétta eitthvað
fyrir sjálfan mig. Svo fer ég heim að
borða kvöldmat.
Hvað gerirðu um kvöldið?
Slaka á, spjalla við aðra í fjölskyldunni
og horfi á sjónvarpið.
HVUNNDAGURINN