Fréttablaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 29
Samningamál sjómanna í ógöngum
Á hinu háa Alþingi sem og í öllum
fjölmiðlum er nú mikið orðaskak,
sem er raunar farið að verða frekar
leiðinlegt, og hart tekist á um atriði
sem margir telja réttilega að snerti
grundvallaratriði lýðræðisins, tján-
ingarfrelsið og eignarréttarákvæði
stjórnarskrárinnar og sjálfsagt eitt-
hvað fleira. Fátt annað kemst að í
umræðunni um þessar mundir enda
er óneitanlega stórmál á ferð.
Ég sá þó örlitla klausu í því dag-
blaði sem mér berst alltaf frítt,
Fréttablaðinu 20. maí, „Baugstíð-
indum“ eins og hans háæruverð-
uguheit, forsætisráðherra virðist
vilja að kalla þann ágæta og að mínu
viti ábyrga fréttamiðil, að hvorki
gengur né rekur í samningaumleit-
unum sjómanna og útgerðarmanna.
Ég er nú ekki áskrifandi að
„Flokkstíðindum“ Sjálfstæðisflokks-
ins, Morgunblaðinu svo vel getur
verið þó ég viti ekkert um það að þar
sé einnig eitthvað fjallað um málið .
Það væri fróðlegt að vita hvort
Davíð Oddsson ætlar sér virkilega
að standa upp úr forsætisráðherra-
stólnum með samningamál sjó-
manna öll í einum graut eins og þau
hafa verið árum saman, en ég er
bara alls ekki frá því að sá pakki
hafi allur verið í einni hönk alla for-
sætisráðherratíð „Dabba kóngs“ .
Hvað er hvurs og hvurs er hvað.
Auðlindin sameiginleg eign þjóðar-
innar, hvaða vitleysa.
Það er óþolandi fyrir þjóðina, og
sjómennina, að ég tali nú ekki um út-
gerðina, að ekki skuli endanlega geng-
ið frá þessum málum. Það hlýtur að
vera erfitt fyrir hvaða útgerð sem er
að þurfa að gera sín plön aðeins fjög-
ur ár í senn, því mér skilst að útgerð-
ir geti tæpast gert áætlanir lengra
fram í tímann en fram að næstu kosn-
ingum, því ekkert er í hendi.
Hvað verður í framtíðinni ræðst
af hverskonar stjórn verður mynd-
uð að loknum hverjum kosningum.
Þessum málum fyndist mér mik-
ilvægara fyrir hæstvirtan sitjandi
forsætisráðherra að koma á ein-
hvern fastan flöt en rembast við að
drepa frjálsa fjölmiðlun í landinu
og virðast í leiðinni vera að vinna
hörðum höndum að því að reka helst
alla stóratvinnurekendur úr landi.
Og þó, það þarf auðvitað að bjar-
ga Mogganum. ■
21ÞRIÐJUDAGUR 25. maí 2004
Klókindi Davíðs Oddssonar
Fyndnast væri náttúrlega ef Ólafur Ragnar
sæti uppi með skömmina af þessu – að
hann yrði hið pólitíska fórnarlamb fjöl-
miðlamálsins sökum þess að hann skrifaði
undir. Það kallast að falla á eigin bragði.
Því auðvitað ber Ólafur nákvæmlega enga
ábyrgð á gjörningnum. Þetta er svipað og
þegar mótmælin gegn Kárahnjúkum voru
sem háværust og allt náttúruverndarliðið
mætti til að pípa á Ingibjörgu Sólrúnu –
sem kom málið voða lítið við. Er þetta ann-
ars ekki enn eitt dæmið um klókindi Dav-
íðs – hvernig hann leikur alltaf á okkur öll
og stendur að lokum uppi sigurvegari? Ég
hef stundum sagt að slægð Davíðs sé dýrs-
leg. Þetta er ekki spurning um gáfur, held-
ur eðlisávísun. Davíð á bara eina hugsjón –
að hanga á völdum sínum hvað sem það
kostar. Honum tekst það alveg bærilega.
Frægt er þegar Danakóngur hitti Jónas frá
Hriflu og sagði við hann: „Spiller De stadig-
væk den lille Mussolini?“ Á þetta ekki bara
ágætlega við á vorum dögum?
Egill Helgason á strik.is
Blikur á lofti
Hingað til hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið
talinn með sterkasta kjarnafylgið. Hvort að
skýringin á því sé öflugt flokkstarf eða vel
ígrunduð hugsjónarvinna skal ósagt látið
en líklegast er þó að blöndu af hvoru
tveggja þurfi til. Nú eru blikur á lofti um að
ekki einungis gangi hratt á stuðning óá-
kveðinna kjósenda Sjálfstæðisflokksins
heldur hafi nú einnig verið gengið fram af
hluta kjarnafylgis. Að kjósendur sem hing-
að til hafa verið taldir tryggir stuðnings-
menn séu ekki lengur vissir í sinni sök.
Brynjólfur Stefánsson á deiglan.com
Glansmynd hverfur
Stöðugt fleiri gera sér nú grein fyrir raun-
verulegu eðli árásarstríðs Bandaríkja-
manna og Breta í Írak. Myndbirtingar og
frásagnir sjónarvotta hafa rifið niður þá
glansmynd sem ráðamenn reyndu að
draga upp af stríðinu með tilstyrk fjölmiðla.
Sjónarmið á fridur.is
Ólög frá Alþingi
Fyrirsjáanleg löggjöf um fjölmiðla er ekk-
ert annað en ólög, beint gegn ákveðnum
aðilum og hentar einkar vel fyrir aðila
þóknanlegum ákveðnum mönnum. Ég
vona að þetta frumvarp nái ekki fram að
ganga, ég efast um að þingmenn stjórnar-
liðsins hafi það mikið bein í nefinu að
þeir standi á sannfæringu sinni og því
mun frumvarpið ná fram á þingi. Þá er sá
möguleiki að forseti Íslands neiti að skrifa
undir lögin og leggi málið í hendur þjóð-
arinnar. Ef það gengur ekki mun næsta
skref verða að Norðurljós kæri ríkið til
dómstóla vegna laganna og ef þau vinna
málið þar verður þetta mál aðeins ein
ákúran enn á hendur ríkisstjórninni, af
nógu er að taka og svo mun verða lengi
enn.
Ólafur Ingi Guðmundsson á politik.is
Vandinn í hnotskurn
Það er að bera í bakkafullan lækinn að
tala meira um fjölmiðlafrumvarpið. En þó.
Það er athyglisvert að vefmiðillinn and-
riki.is sem heldur úti Vefþjóðviljanum birt-
ir sunnudaginn 23. maí 2004 skoðana-
könnun sem sýnir að tæplega 30% lands-
manna hafa kynnt sér fjölmiðlafrumvarp-
ið vel og þar af aðeins 5% mjög vel. Engu
að síður skekur málið þjóðfélagið allt
þessa dagana. Ætla mætti að þar sem fjöl-
miðlar fjalla stöðugt um meðferð málsins
í þinginu að fólk teldi sig almennt vel
upplýst um málið sjálft. En þetta þekking-
arleysi sýnir einmitt vandann í hnotskurn.
Benedikt Jóhannesson á heimur.is
Frjáls þjóð
Það er vandalaust að nota hugtakið „frjáls
þjóð“ um hvaða þjóð sem er ef maður
fellst á að stjórnvöld á hverjum stað hafi
skilyrðislausan rétt til skammta fólki frelsi
og mannréttindi eftir geðþótta. Ef til vill
hugnast forsætisráðherra slíkt stjórnarfar í
reynd betur en hann fæst nokkurn tíma til
að viðurkenna.
SH á murinn.is
Yfirmönnuð stofnun
Eftir þessa upptalningu læðist að manni
sá grunur að RÚV sé yfirmönnuð stofnun
og einnig kemur í ljós að samhengið á
milli útsendingartíma sjónvarps og út-
varps er ekki í rökréttur samhengi við
starfsmannafjöldann, sérstaklega ef
starfsmannafjöldi Íslenska útvarpsfélags-
ins er skoðaður til samanburðar. Því hefði
verið nær að þegar útvarpsstjóri fór þess
á leit við menntamálaráðherra í upphafi
árs að hækka afnotagjöldin, að mennta-
málaráðherra hefði gert þá kröfu að
stofnunin RÚV hagræddi í rekstri sínum.
Bjarki Már Baxter á frelsi.is
AF NETINU
GUÐMUNDUR SESAR MAGNÚSSON
SKRIFAR UM SAMNINGAMÁL
SJÓMANNA
Það væri fróðlegt að
vita hvort Davíð
Oddsson ætlar sér virkilega
að standa upp úr forsætis-
ráðherrastólnum með
samningamál sjómanna öll í
einum graut eins og þau
hafa verið árum saman.“
,,