Fréttablaðið - 25.05.2004, Page 34
26 25. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Á HVOLFI
Eric Guerrero hvolfir hér Mike Zadick í
60 kg flokki á úrtökumóti í Bandaríkjunum
fyrir Ólympíuleikana í sumar.
■ GLÍMA
Komandi verkefni
A-landsliðanna:
Hóparnir
valdir
FÓTBOLTI Ásgeir Sigurvinsson og
Logi Ólafsson, þjálfarar A-lands-
liðs karla í knattspyrnu, og Hel-
ena Ólafsdóttir, þjálfari A-lands-
liðs kvenna, völdu í gær hópa sína
fyrir komandi verkefni. Karlalið-
ið tekur þátt í þriggja þjóða móti í
Manchester ásamt Englandi og
Japan og hefst mótið á sunnudag-
inn með leik Íslendinga og Japana
en kvennalandsliðið á fyrir hönd-
um tvo leiki í undankeppni EM,
gegn Ungverjum ytra á laugar-
daginn og gegn Frökkum á Laug-
ardalsvelli 2. júní.
KARLALIÐIÐ
Markmenn
Árni Gautur Arason Man. City
Kristján Finnbogason KR
Aðrir leikmenn
Arnar Grétarsson Lokeren
Hermann Hreiðarsson Charlton
Helgi Sigurðsson AGF Arhus
Þórður Guðjónsson Bochum
Brynjar B. Gunnarsson Stoke
Tryggvi Guðmundsson Örgryte
Pétur H. Marteinsson Hammarby
Auðunn Helgason Landskrona
Eiður Smári Guðjohnsen Chelsea
Heiðar Helguson Watford
Jóhannes K. Guðjónsson Wolves
Indriði Sigurðsson Genk
Bjarni Guðjónsson Coventry
Ívar Ingimarsson Reading
Marel Baldvinsson Lokeren
Hjálmar Jónsson IFK Gautaborg
Jóhann B. Guðmundsson Örgryte
Kristján Örn Sigurðsson KR
KVENNALIÐIÐ
Markverðir
Þóra B. Helgadóttir KR
María B. Ágústsdóttir KR
Aðrir leikmenn
Olga Færseth ÍBV
Erla Hendriksdóttir (F) Breiðablik
Edda Garðarsdóttir KR
Guðrún S. Gunnarsdóttir KR
Laufey Ólafsdóttir Valur
Íris Andrésdóttir Valur
Málfríður E. Sigurðardóttir Valur
Hrefna H. Jóhannesdóttir Medkila IL
Dóra Stefánsdóttir Valur
Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV
Hólmfríður Magnúsdóttir KR
Björg Ásta Þórðardóttir Breiðablik
Erna B. Sigurðardóttir Breiðablik
Rakel Logadóttir Valur
Dóra María Lárusdóttir Valur
Embla S. Grétarsdóttir KR
LEIKIR:
19.45. Fram og ÍA leika á Laugar-
dalsvelli í Landsbankadeild karla í
knattspyrnu. Bein útsending á
Sýn.
SJÓNVARP:
17.00 Olíssport á Sýn
18.15.Motorworld á Sýn
18.30 Saga EM í fótbolta (10:16) á
RÚV. Upphitunarþættir fyrir EM í
fótbolta sem hefst í Portúgal 12.
júní. Í þættinum er rakin saga
Evrópumóta landsliða frá 1960 og
fjallað um bestu leikina og leik-
mennina og fallegustu mörkin.
18.45 Fákar á Sýn. Þáttur sem fjallar
um allar hliðar hestamennskunn-
ar.
19.15 UEFA Champions League á
Sýn
22.00 Olíssportá Sýn
23.25 Trans World Sport (íþróttir
um allan heim) á Sýn.
SKAGAMENN LEIKA VIÐ FRAMARA Í KVÖLD
Pressan er meiri á Skagamönnum að mati Birkis Kristinssonar.
Fram og ÍA leika í Landsbankadeildinni í kvöld:
Pressan meiri á
Skagamönnum
FÓTBOLTI Þriðja umferð Lands-
bankadeildar karla hefst í kvöld
með leik Fram og ÍA á Laugar-
dalsvelli. Framarar hafa fjögur
stig eftir sigur á Víkingum og
jafntefli í Eyjum en Skagamenn
hafa gert jafntefli í báðum sínum
leikjum. Fréttablaðið bað Birki
Kristinsson, markvörð ÍBV, að
spá í leikinn en hann lék með ÍA á
árunum 1985-1987 og Fram á ár-
unum 1988-1995.
„Framarar eru sterkari núna
en þeir hafa verið undanfarin ár.
Þeir eru búnir að fá Ríkharð
Daðason, Þorvald Makan Sig-
björnsson og Færeyingana tvo.
Þeir eru að mínu mati miklu
sterkari í ár en þeir hafa verið
undanfarin ár,“ sagði Birkir, sem
telur að Framarar verði frekar í
baráttunni í efri hluta deildarinn-
ar en þeim neðri eins og verið hef-
ur undanfarin ár.
„Það er líka gott fyrir þá að
byrja vel. Þeir unnu fyrsta leikinn
og það er nýtt fyrir þá, alla veg-
ana í nokkuð langan tíma. Það
hlýtur að gefa þeim byr undir
báða vængi og efla sjálfstraust-
ið.“
„ÍA gengur illa að skora. Þeir
rétt pota inn einu marki á lokasek-
úndunum í fyrri leiknum og ná
ekki að skora í seinni leiknum,“
sagði Birkir. „Ef við horfum á
þessi lið þá væri stemningin meiri
hjá Fram. Þeir hafa byrjað betur
en pressan er meiri á Skagamönn-
um. Þetta er hörkulið hjá ÍA, ég er
ekki í nokkrum vafa um það, en
það þarf að sýna það á vellinum
og koma inn mörkum til að ná í
stigin.“
Birki finnst jafntefli líklegustu
úrslitin en annað liðið nær sigri
þá eru Skagamenn líklegri.
„Pressan verður meiri á Skaga-
mönnum og þá koma þeir einbeitt-
ari í leikinn. Samt sem áður hef ég
frekar á tilfinningunni að þetta
verði jafntefli.“ ■
Gerard Houllierkeypti 29 leik-
menn fyrir 128,6
milljónir punda þau sex ár sem hann
stjórnaði Liverpool. Félagið fékk
hins vegar rúmlega 45 milljónir
punda fyrir 30 leikmenn sem seldir
voru á sama tíma.
Frakkinn Jean-Michel Ferri voru
fyrstu innkaup Houllier. Ferri kom
frá Istanbulspor fyrir 1,5 milljónir
punda í janúar 1999 en fór til
Sochaux fyrir sömu upphæð hálfu
ári síðar.
Emile Heskey var dýrastur þeir-
ra sem Houllier keypti. Liverpool
greiddi Leicester ellefu milljónir
fyrir hann árið 2000. Salan á Robbie
Fowler til Leeds í nóvember 2001,
gaf Liverpool ellefu milljónir punda
og Birmingham greiddi 6,25 milljón-
ir fyrir Heskey í síðustu viku. ■
■ Tala dagsins
128
Forseti Real Madrid:
Það voru mistök
að ráða Queiroz
FÓTBOLTI „Ég verð að viðurkenna að
það voru mistök að ráða Carlos
Queiroz,“ sagði Florentino Perez,
forseti Real Madrid. „Við erum að
hefja nýtt tímabil hjá félaginu með
því að ráða José Antonio Camacho.“
Real Madrid rak í gær þjálfar-
ann Carlos Queiroz og réði José
Antonio Camacho í stað hans. Félag-
ið er tómhent eftir leiktíðina en
fram eftir vetri keppti félagið um
þrjá titla. „Við teljum að þetta hafi
ekki verið gott tímabil hjá okkur og
okkur tekur það sárt,“ sagði Perez.
„Fótboltaheimurinn tekur mið af
okkur og við getum ekki leyft okkur
að eiga aðra eins leiktíð og þessa.
Það hefur verið mjög erfitt að
skilja hvað gerðist síðustu tvo
mánuðina en það er ljóst að liðið
skorti aga og skipulag til að snúa
stöðunni við.“
José Antonio Camacho lék með
Real í sextán ár og var þjálfari fé-
lagsins í 23 daga sumarið 1998.
Hann hætti vegna ósamkomulags
við Lorenzo Sanz, þáverandi forseta
félagsins. ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
22 23 24 25 26 27 28
Þriðjudagur
MARS
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M