Fréttablaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 35
27ÞRIÐJUDAGUR 25. maí 2004
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Bi
llu
nd
Bi
llu
nd
DANMÖRK
Beint leiguflug
me› ICELANDAIR
2.
jú
ní
ti
l 1
. s
ep
te
m
be
r
10
.3
85
Fl
ug
sæ
ti
kr.á mann
Innifalið er flug aðra leið
og flugvallarskattar.
19.995 kr. á mann.
Flug báðar leiðir
og flugvallarskattar.
Takmarkað sætaframboð
10
.3
85
Verð miðast við að bókað sé á Netinu,
ef bókað er í síma eða á skrifstofu
bætast 1.500 kr. þjónustugjöld
á hverja bókun.
FÓTBOLTI ÍBV vann sinn annan risa-
sigur í röð í Landsbankadeild
kvenna þegar liðið vann FH, 8–0, í
lokaleik 2. umferðar í Eyjum í gær.
Þetta var fyrsti leikur FH-liðsins á
mótinu en ÍBV hafði unnið
Breiðablik 8–1 í fyrsta leiknum og
er því með markatöluna 16–1, eftir
fyrstu tvo leiki mótsins. ÍBV hefur
nú unnið FH-liðið þrisvar sinnum í
röð 8–0.
Hin 18 ára gamla Eyjastúlka
Margrét Lára Viðarsdóttir hefur
eftir leikinn í gær skorað sjö mörk í
fyrstu tveimur leikjum sumarsins
og þriðja og síðasta mark hennar í
gær var stórglæsilegt skot eftir
frábæran einleik. ÍBV-liðið lék mjög
vel fyrir hlé en botninni datt aðeins
úr leik liðsins eftir hlé. Olga
Færseth hélt uppteknum hætti og
skoraði í heimaleik en Olga hefur
skorað í öllum tíu heimaleikjunum
sem hún hefur spilað fyrir
Eyjaliðið. Olga hefur skorað 19
mörk í þessum tíu leikjum.
Mary McVeight lék ekki með
ÍBV í gær þar sem hún fór til
Bandaríkjanna til að útskrifast en
mun væntanlega vera komin aftur
fyrir næsta leik.
„ÍBV og Valur eru með yfir-
burðalið í þessarri deild en þetta var
stærra tap en við ætluðum okkur.
Við verðum að berjast og forðast
fallið,“ sagði Sigurður Víðisson,
5–0 Elín Anna Steinarsdóttir 43.
6–0 Margrét Lára Viðarsdóttir 63.
7–0 Olga Færseth 78.
8–0 Karen Burke 81.
BEST Á VELLINUM
Karen Burke ÍBV
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 26–3 (17–1)
Horn 9–0
Aukaspyrnur 12–6
Rangstæður 1–1
FRÁBÆRAR
Engin
MJÖG GÓÐAR
Karen Burke ÍBV
GÓÐAR
Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV
Íris Sæmundsdóttir ÍBV
Olga Færseth ÍBV
Mhairi Gilmour ÍBV
Sara Sigurlásdóttir ÍBV
Elín Svavarsdóttir FH
■ Það sem skipti máli
ÍBV-FH 8–0 (5–0)
1–0 Olga Færseth 9.
2–0 Íris Sæmundsdóttir 16.
3–0 Margrét Lára Viðarsdóttir 19.
4–0 Margrét Lára Viðarsdóttir 29.
Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu:
Markasúpa hjá ÍBV
KAREN BURKE STERK
Átti fínan leik í liði ÍBV.
Houllier lýkur keppni
Sagt upp eftir sex ára starf hjá Liverpool.
FÓTBOLTI Þá hefur það loksins verið
gert opinbert sem lengi hefur leg-
ið í loftinu – Gerald Houllier hef-
ur verið sagt upp störfum sem
framkvæmdastjóra Liverpool eft-
ir að hafa verið við stjórnvölinn á
Anfield Road í sex ár.
„Ég hefði frekar viljað vera
áfram sem framkvæmdastjóri en
ég skil við félagið í góðu. Það get-
ur verið að ég hafi yfirgefið
Liverpool en Liverpool mun
aldrei yfirgefa mig. Þessi sex ár
hjá félaginu hafa verið mikill
hamingjutími í lífi mínu,“ sagði
Houllier skömmu eftir brottrekst-
urinn. Stjórnarformaður Liver-
pool, Rick Parry hafði þetta að
segja við sama tækifæri:
„Stjórnin ákvað að breytinga
væri þörf ef við ætlum okkur að
eiga raunverulega möguleika á
Englandsmeistaratitlinum á
næsta ári. Við sögðumst ætla að
endurskoða stöðu okkar eftir
þetta keppnistímabil og það höf-
um við nú gert. Þótt við höfum
náð sæti í meistaradeildinni er
það fyrst og fremst lágmarks-
krafa en ekki markmið – við vilj-
um mun meira. Eins og við mátti
búast tók Gerard tíðindunum eins
og sönnum heiðursmanni sæmir“.
Gerard Houllier kom til Liverpool
í júlí árið 1998 og fyrst um sinn
starfaði hann við hlið Roy Evans
en hann hvarf á braut í nóvember
á sama ári. Besta árangri sínum
með Liverpool náði Houllier
keppnistímabilið 2000-2001 en þá
vann liðið sigur í fjórum keppn-
um; Evrópukeppni félagsliða, FA
bikarkeppnina, deildarbikar-
keppnina og keppnina um meist-
ara meistaranna í Evrópu.
Þetta sama ár fékk Houllier
alvarlegt hjartaáfall og þurfti í
kjölfarið að gangast undir stóra
aðgerð og segja má að hann hafi
aldrei almennilega náð sér full-
komlega eftir það. Liverpool
vann reyndar deildarbikarinn
árið 2003 en þær vonir og vænt-
ingar sem vöknuðu í Liverpool
eftir draumatímabilið 2000-2001
slokknuðu smám saman og menn
í Liverpool fóru að gera sér grein
fyrir því að líklega myndi félagið
aldrei ná hæstu hæðum með
Houiller innanborðs.
Þeir Alan Curbishley, fram-
kvæmdastjóri Charlton, og Rafa-
el Benitez, þjálfari Spánarmeist-
ara Valencia, eru þeir tveir sem
taldir eru líklegastir til að taka
við af Gerald Houillier en einnig
eru þeir Martin O’Neal, stjóri
Glasgow Celtic, og Jose Mourin-
ho hjá Portó nefndir til sögunnar.
■
SÍÐASTI VALSINN
Þú ert víst einn. Gerald Houllier kveður hér Anfield Road í síðasta sinn. Brottrekstur hans
hefur legið í loftinu lengi.