Fréttablaðið - 25.05.2004, Síða 38
38 25. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
■ TÓNLIST
! "! #!$%&' '(
)
*
+
*
!
# $%& "
,( & *((*(-'(!.
///!$%&' '(
Come on Pilgrim (1987)
Flestar upptökurnar á
fyrstu plötu Pixies voru
upphaflega gerðar sem
demó. Útgefandinn heyrði
strax þann neista sem fólst
í útsetningum og laga-
smíðum og vildi engu
breyta. Textalega séð er
þetta dónalegasta plata Pixies, ferskleikinn rennur
af plastinu enn þann dag í dag.
Surfer Rosa
(1988)
Þyngsta plata sveitarinnar
og jafnframt sú ruddaleg-
asta. Uppáhald hörðustu
aðdáenda enda var bensín-
ið gefið í botn, alla plötuna.
Doolittle (1989)
Hér gekk allt upp en plat-
an er jafnframt poppað-
asta verk Pixies. Ótrúlega
melódísk út í gegn og hér
eru nánast allir poppslag-
arar sveitarinnar.
Bossanova (1990)
Furðulegasta plata Pixies.
Listræn með eindæmum
með sterkar tilvitnanir í
surf-rokkið. Platan þótti
ekki eins söluvæn en er
líklegast metnaðarfyllsta
verk sveitarinnar, tónlistar-
lega séð.
Trompe le Monde (1991)
Afturhvarf í griparokkið. Bassaleikarinn Kim Deal
óþægilega fjarverandi alla
plötuna, heyrist varla í
söngrödd hennar nema í
einstaka bakröddum. Frá-
bær plata og falleg kveðju-
stund við bestu rokksveit
níunda áratugarins.
Helmingur hljómsveitarinnarPixies hefur verið hér á landi
síðan á föstudag en þau hafa ekk-
ert viljað tjá sig við fjölmiðla.
Liðsmenn hafa allir sagts vilj-
að koma hingað til langs tíma og
hafa eytt öllum stundum í það að
skoða sig um.
Bassaleikarinn Kim Deal og
gítarleikarinn Joey Santiago
komu hingað á föstudag ásamt
fjölskyldum sínum. Með Kim í för
er systir hennar, Kelly Deal, sem
leikur með henni í hljómsveitinni
The Breeders. Joey er hér með
eiginkonu og barni.
Söngvarinn Frank Black, eða
Black Francis... já, eða Charles
Michael Kittridge Thompson IV,
kom ásamt trommuleikaranum
David Lovering á sunnudag. Hóp-
urinn kíkti þá í Bláa lónið og allir
voru yfir sig hrifnir af staðnum.
Á laugardagskvöld snæddu þeir
sem þá voru hingað komnir á Aust-
ur Indíafélaginu. Um kvöldið kíkti
svo gítarleikarinn með hóp ís-
lenskra kunningja á skemmtistað-
inn Sirkus þar sem hann varð fyrir
miklu aðkasti aðdáenda. Honum
virðist ekki hafa líkað það mjög illa
því hann var þar fram eftir morgni
að slamma tequila og drekka bjór.
Í gær var góða veðrið nýtt til
þess að skoða Gullfoss og Geysi.
Voru allir gapandi yfir náttúru-
fegurð landsins. Hljómsveitin er
hér einnig með hóp af myndatöku-
mönnum sem eru að vinna heim-
ildarmynd um tónleikaferð sveit-
arinnar. Hópurinn er nýkominn
frá Brasilíu þar sem móttökurnar
voru nánast guðdómlegar. Ljóst
er að endurkoma Pixies er merk-
ur atburður í tónlistarsögunni,
sérstaklega í ljósi þess að Kim
Deal og Frank Black höfðu ekki
talast við í ein tíu ár.
Fylgdarfólk sveitarinnar segir
liðsmenn hafa báðar fætur á jörð-
inni og lítið fyrir glaum og glamúr.
Ekki er búist við því að Pixies
taki sömu tónleikadagskrá á báð-
um tónleikunum en hingað til hef-
ur það verið síbreytilegt, enda af
nógu að taka. Ekki er vitað hvort
sveitin reyni einhver ný lög, eins
og orðrómur gaf til kynna.
Í gær voru enn miðar fáanlegir
á tónleika kvöldsins, en sam-
kvæmt lögmálinu ættu þeir að
rjúka út í dag. ■
Goðsagnir í lifanda lífi
PIXIES
Sleeping on your belly,
you break my arms,
you spoon my eyes,
been rubbing a bad charm,
with holy fingers.
- Pixies í einu af betri lögum meistaraverksins
Doolittle frá 1989. Textar Franks Black eru
kannski ekkert sérstaklega skiljanlegir, en mikið
djöfulli eru þeir flottir.
Popptextinn
Plötur
Pixies
■ TÓNLIST
TÓNLIST
PIXIES
■ Bandaríska rokksveitin Pixies spilar í
Kaplakrika í kvöld.
PIXIES
Hafa verið hér síðan á föstudag og kynnt sér land, þjóð og næturmenningu.
Rafhljómsveitin Ghostigital sérum upphitun fyrir Pixies á báð-
um tónleikum þeirra hér á landi.
Sveitin hóf starf sitt sem sólóverk-
efni Einars Arnar Benediktsonar,
fyrrum Sykurmola, en er í dag
dúett með Birgi Erni Thoroddsen.
„Pixies er í raun og veru samtíð-
arsveit Sykurmolanna og leiðir
okkar lágu saman nokkrum sinn-
um,“ segir Einar Örn. „Við hitt-
umst á tónleikahátíðum þannig að
það er ekki eins og við höfum ekki
hist áður. Það er voðalega gaman
að þau skulu vera komin hingað.“
Eins og allt sem Einar kemur
nálægt er í nógu að snúast hjá
Ghostigital á árinu. Nokkrir vænt-
anlegir tónleikar erlendis eru
framundan, tónleikaplata í vinnslu
auk þess sem þeir félagar vinna að
gerð nýrrar breiðskífu.
„Við spilum á Sonar-hátíðinni á
Spáni í júní sem er spennandi raf-
tónlistarhátíð. Það hafa fleiri ís-
lenskar sveitir spilað þar og Mugi-
son er þar líka í ár. Svo vorum við að
klára myndband. Það var graffiti-
sýning á Barónstígnum sem var
verið að taka niður. Bibbi sá hana og
fannst við hæfi að við myndum gera
myndband í innsetningunni, sem
var eftir Short. Við erum svo komn-
ir með 30 til 50 lagahugmyndir og
ætlum að vinna úr þeim. En fyrst
ætlum við að gefa út tónleikaplötu.
Við ætlum að klippa saman plötu
sem verður öðruvísi en breiðskífan
okkar, þó að þetta séu í raun sömu
lögin. Við höfum leyft okkur að þróa
plötuna áfram í það sem hún er í
dag. Ef ég má orða það þannig, er
hægt að orða það þannig?“, spyr
Einar sjálfan sig að lokum.
Ghostigital ætlar að spila eitt
nýtt lag á tónleikunum, tileinkað
ástandinu eins og það er í dag, og
heitir það Ekki er öll vitleysan
eins. Einar ætti að vita allt um
það. ■
Ekki er öll vitleysan eins
GHOSTIGITAL
Í nýlegum dómi sænska blaðsins Expressen um plötu Ghostigital mælir gagnrýnandinn
með því að Einari Erni verði fórnað að heiðnum sið fyrir veðurguðina.