Fréttablaðið - 25.05.2004, Page 40
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Guðrún Rútsdóttir básúnu-
leikari spilar á útskriftartónleikum sínum
frá Listaháskóla Íslands í Salnum, Kópa-
vogi. Með henni spila Tinna Þorsteins-
dóttir á píanó, Gróa Margrét Valdi-
marsdóttir á fiðlu, Gunnhildur Daða-
dóttir á fiðlu og Sigríður Kristjánsdóttir
á fagott.
20.30 Gunnar Þorgeirsson óbó-
leikari, Pawel Panasiuk sellóleikari og
Agnieszka Panasiuk píanóleikari flytja
tónlist eftir Benjamin Britten, Cesar
Franck, og brasilísku tónskáldin João
Guilherme Ripper og José Vieira
Brandão í Dalvíkurkirkju.
■ ■ LISTOPNANIR
Eva Þ. Haraldsdóttir opnar mynd-
listarsýningu í Sparisjóðnum Garðatorgi
1, Garðabæ.
■ ■ FYR-
IRLESTRAR
17.00 Hlín
Agnarsdóttir
flytur fyrirlestur
á Amtsbóka-
safninu á Akur-
eyri um Magnús
og Snæfríði og
tvíleik alkóhól-
ismans.
20.00 Dr.
Louise Cross-
ley, umhverfis- og vísindasagnfræðingur,
heldur fyrirlestur í ReykjavíkurAkademí-
unni um baráttuna gegn Franklin-
virkjuninni í Tasmaníu og baráttu gegn
höggi ósnortinna skóga.
■ ■ FUNDIR
12.00 Thomas Bryne, framkvæmda-
stjóri Þróunarstofu suðaustur Írlands fjallar
um aðstoð Evrópusambandsins við upp-
byggingu sveitarfélaga á Írlandi á hádegis-
fundi sem Evrópusamtökin og Samband ís-
lenskra sveitarfélaga efna til í Norræna hús-
inu. Fundarstjóri verður Anna G. Björns-
dóttir, forstöðumaður þróunar- og alþjóða-
sviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundurinn fer fram á ensku og er öllum
opinn.
32 25. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Ég hef örugglega spilað í öll-um lúðrasveitum á landinu,“
segir Guðrún Rútsdóttir
básúnuleikari, sem í kvöld held-
ur burtfararprófstónleika sína
frá Listaháskóla Íslands.
Hún byrjaði að læra á básúnu
tíu ára og er að spá í framhalds-
nám.
„Ég spilaði reyndar á fiðlu í
mörg ár, en í Mosfellsbæ er öfl-
ug lúðrasveit og mig langaði svo
til að vera með í lúðrasveitinni.
Ætlaði að læra á klarinett eða
flautu, en hljómsveitarstjórinn
þáverandi sagði mér að því mið-
ur væri ekkert laust pláss fyrir
klarinettu- eða flautuleikara. En
svo bætti hann við að ég gæti
lært á básúnu ef ég vildi.“
Hún segist alls ekki hafa séð
eftir því, þótt óneitanlega fylgi
því hálfgerð barátta sem getur
verið svolítið þreytandi á stund-
um.
„Í rauninni er þetta eins og
maður tilheyri minnihlutahóp.
Og þótt maður slái því stundum
fram hvað allt væri miklu ein-
faldara ef ég væri bara á fiðlu
eins og allir hinir, þá meina ég
það í rauninni ekki. Ég hef
aldrei séð eftir því að vera á
básúnu.“
Hetja allra básúnuleikara um
þessar mundir er Christian
Lindberg, sem kom hingað til
lands í vetur til þess að leika
einleik með Sinfóníuhljómsveit
Íslands.
„Hann hefur staðið sig rosa-
lega vel við að kynna básún-
una út á við, sem er nauðsyn-
legt. Svo er hann fínn spilari
líka.“
Tónleikar Guðrúnar í Salnum
hefjast klukkan átta í kvöld.
Hún ætlar að flytja verk eftir
Camille Saint-Saëns, Heinrich
Ignaz, Franz Biber, Sigismond
Stojowski, Eero Hämeenniemi
og Philippe Gaubert.
„Þetta eru svona misfrægir
höfundar,“ segir Guðrún, enda
er ekki beint um auðugan garð
að gresja þegar leitað er að ein-
leiksverkum fyrir básúnu.
„Þau koma samt í hollum.
Þrjú af verkunum sem ég ætla
að spila eru frá árunum 1905-
1915.“
Guðrún hefur fengið til liðs
við sig þær Tinnu Þorsteins-
dóttur, sem spilar á píanó,
Gróu Margréti Valdimarsdótt-
ur og Gunnhildi Daðadóttur á
fiðlu og Sigríði Kristjánsdóttur
á fagott. ■
■ TÓNLEIKAR
Eins og að vera í
minnihlutahóp
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
22 23 24 25 26 27 28
Föstudagur
MAÍ
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
GUÐRÚN RÚTSDÓTTIR MEÐ BÁSÚNUNA SÍNA
Hún heldur útskriftartónleika sína í Salnum í Kópavogi í kvöld.
20.00 Aðalfund-
ur Alliance française
verður haldinn í húsa-
kynnum Alliance
française à Tryggva-
götu 8.
21.00 Skálda-
spírukvöld verður
haldið á Kaffi
Reykjavík. Þeir Einar
Már Guðmundsson
og Einar Kárason mæta til að lesa úr
verkum sínum ásamt þeim Halldóru
Thoroddsen, Birgíttu Jónsdóttur, Snæ-
birni Brynjarssyni og loks Steinunni
Gunnlaugsdóttur ljóðskáldi, sem komst
í úrslit ljóðasamkeppni Fréttablaðsins og
Eddunnar á dögunum.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Samdrykkja með Þorsteini
Samdrykkjan er held ég sú afbókum Platóns sem hefur not-
ið langmestrar hylli í veröldinni
og verið mest lesin,“ segir Þor-
steinn Gylfason, prófessor í
heimspeki.
„Meðal annars er það vegna
þess hvað hún er mikið bók-
menntaverk. Í þessari bók nær
ritsnilld Platóns hámarki og svo
fjallar hún um ástina, sem er
mörgum hugstæð.“
Á Súfistanum við Laugaveg
verður í kvöld efnt til sam-
drykkju, þar sem Þorsteinn ætlar
að eiga svolítið spjall við fólk um
Samdrykkju Platóns.
Spjallið í kvöld er hið fyrsta í
átakinu Lærdómsrit mánaðarins,
sem hefur verið hrint af stað til
þess að kynna lærdómsritaröð
Bókmenntafélagsins. Lærdóms-
ritin hafa komið út síðan 1970 og
eru þau orðin 55 að tölu.
„Ég hleypti þessari ritröð af
stokkunum, en hætti sem ritstjóri
hennar fyrir mörgum árum,“ seg-
ir Þorsteinn.
Ákveðið var að Samdrykkja
Platóns yrði fyrsta lærdómsrit
mánaðarins og Þorsteinn var
fenginn til þess að fylgja þessari
kynningu úr hlaði með því að
spjalla bæði um þetta merka rit
Platóns og fjalla vítt og breitt um
lærdómsritin.
„Ég var búinn að ganga með
hugmyndina að svona bókaflokk
í maganum í tæpan áratug áður
en Bókmenntafélagið ákvað að
slá til og hefja útgáfuna,“ segir
Þorsteinn. „Markmiðið var að
gefa út alþjóðleg og klassísk rit
eða nýjar bækur sem gætu stað-
ið við hliðina á klassíkinni. Þetta
er þolinmæðisvinna og sumar
bækurnar eiga sér langan með-
göngutíma, má nefna að nýleg
rit á borð við verk Kants og
heilags Tómasar eru 30 ára
gamalt plan.“ ■
ÞORSTEINN GYLFASON PRÓFESSOR
Spjallar um Samdrykkju Platóns á Súfistanum í kvöld.■ KAFFIHÚSASPJALL