Fréttablaðið - 25.05.2004, Side 41
Skáldaspírukvöldin svo-nefndu, sem haldin hafa ver-
ið á Jóni forseta við Aðalstræti,
hafa nú flutt sig um set yfir í
Kaffi Reykjavík. Fyrsta kvöldið
á nýja staðnum verður í kvöld,
og þar ætla að lesa úr verkum
sínum þeir Einar Kárason og
Einar Már Guðmundsson.
Einnig lesa þar úr verkum
sínum þau Halldóra Thoroddsen,
Birgitta Jónsdóttir, Snæbjörm
Brynjarsson og Steinunn Gunn-
laugsdóttir, en hún komst í úrslit
ljóðasamkeppni Fréttablaðsins
og Eddunnar á dögunum.
„Það var frekar erfitt að fá
nógu gott næði á Jóni forseta,“
segir Benedikt Lafleur, sem hef-
ur skipulagt skáldaspírukvöld-
in, um ástæðu þess að skipta um
húsnæði.
Í vetur voru gerðar gagnger-
ar breytingar á húsnæði Kaffi
Reykjavíkur. Innréttuð var að-
staða til ráðstefnu- og fundar-
halda á efri hæðum hússins. Á
annarri hæðinni eru fjórir salir,
mismunandi stórir, og svo er
fimmti salurinn á þriðju hæð-
inni, sem er stærstur þeirra
allra.
„Áður var þetta bara ball-
dæmi á fyrstu hæðinni, en nú
erum við komnir með ráðstefnu-
aðstöðu fyrir allt frá fimm og
upp í fimm hundruð manns,“
segir Guðmundur Thor Guð-
mundsson á Kaffi Reykjavík.
„Við innréttuðum líka þennan
sérstæða ísbar, sem hefur vakið
mikla athygli, bæði útlendinga
og Íslendinga. Og svo erum við
auðvitað með matseðil áfram.
Til dæmis er nautalundin hjá
okkur á 2.900 krónur, sem kost-
ar 4.900 krónur á Holtinu –
alveg sami maturinn.“ ■
ÞRIÐJUDAGUR 25. maí 2004 33
...símjúkur á brauðið
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
6
2
9
0
/ S
IA
Eldri borgarar
Hin sívinsæla 8 daga hringferð um
Norðausturland 21.-28. júní nk.
Reykjavík - Hornafjörður -
Breiðdalsvík - Egilsstaðir - Mjóifjörður
- Kárahnjúkar - Norðfjörður -
Raufarhöfn - Hljóðaklettar -
Dettifoss - Akureyri - Kjölur - Reykjavík
VERÐ AÐEINS KR. 71.000
Innifalið í verði: Gisting, kvöldverður,
morgunverður og nesti.
Skráningar þurfa að berast
fyrir 29. maí í síma 892 3011
FERÐAKLÚBBUR ELDRI BORGARA
HANNES HÁKONARSON.
ALLIR ELDRI BORGARAR VELKOMNIR.
■ BÓKMENNTAKVÖLD
Að brjóta valhnetu
með slaghamri
Þetta er eins og að brjóta uppvalhnetu með slaghamri,“ seg-
ir doktor Louise Crossley um
framkvæmdirnar við Kára-
hnjúkavirkjun. „Það er gjörsam-
lega yfirdrifið að fórna svona
miklu fyrir bara 450 störf.“
Crossley, sem er bæði um-
hverfisfræðingur og vísindasagn-
fræðingur, hefur langa reynslu af
bæði kennslu í umhverfisfræðum
og baráttu fyrir umhverfis-
málum.
Í kvöld ætlar hún að flytja fyr-
irlestur í húsakynnum Reykjavík-
urAkademíunnar við Hringbraut,
þar sem hún ætlar að segja frá
baráttu umhverfissinna í Tasman-
íu gegn stórri virkjun, sem þeir
komu í veg fyrir að yrði reist þar.
Hún ætlar að lýsa mismunandi að-
ferðum sem náttúruverndar-
sinnar þar beittu, og fjalla einnig
um það hvernig stjórnvöld og
fyrirtæki brugðust við þessum
mismunandi aðferðum.
„Það er margt líkt með
Tasmaníu og Íslandi,“ segir hún.
„Þar býr innan við hálf milljón
manns og þeir eru með þriðja
heims stefnu í iðnvæðingu með
alla áherslu á vinnslu og
útflutning hráefnis.“
Þegar hún frétti af áformunum
um Kárahnjúkavirkjun varð hún
hreinlega fyrir áfalli og ákvað að
koma hingað, bæði til þess að
kynna sér framkvæmdirnar af eig-
in raun og til þess að fræða Íslend-
inga um baráttuna gegn Franklin-
virkjuninni á Tasmaníu. ■
LOUISE CROSSLEY
Hún flytur fyrirlestur í kvöld í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar um baráttu
umhverfisverndarsinna gegn virkjun í Tasmaníu er leiddi til frægs sigurs.
■ FYRIRLESTUR
Skáldaspírur á nýjum stað
BENEDIKT LAFLEUR
Skipuleggur skáldaspírukvöld á Kaffi
Reykjavík. Í kvöld koma meðal annars
Einar Már Guðmundsson og Einar Kára-
son fram og lesa úr verkum sínum.