Fréttablaðið - 25.05.2004, Page 47
39ÞRIÐJUDAGUR 25. maí 2004
VIÐ AFNEMUM 24.5% VIRÐISAUKASKATT AF DVD!*
Laugavegi 26 • Kringlunni • Smáralind
TAX
FREE
DAGAR
*JAFNGILDIR 19,68% afslætti!
Ævar Örn Jósepsson, rithöf-undur og dagskrárgerðar-
maður, á annasama helgi að baki.
Þá var Glerlykillinn afhentur með
pomp og prakt auk þess sem ráð-
stefna Hins íslenska glæpafélags
og Félags norrænna glæpasagna-
höfunda, Skandinaviska kriminal-
sällskapet, fór fram. Við það til-
efni kaus Félag norrænna glæpa-
sagnahöfunda sér nýjan forseta
og var Ævar Örn kjörinn í emb-
ættið. „Ég veit satt best að segja
ekki nákvæmlega hvert mitt hlut-
verk er,“ segir Ævar, „en vonandi
verður þetta ekki alltof mikil
vinna. Félag norrænna glæpa-
sagnahöfunda er regnhlífarsam-
tök yfir glæpafélög á Norðurlönd-
um og ég verð vonandi bara
hafður upp á punt,“ bætir hann
við og hlær.
Félagið er nú á sínu fjórtánda
starfsári, en þetta er í fyrsta sinn
sem Íslendingur veitir því for-
stöðu. Uppskeruhátíð félagsins,
Glerlykillinn fór einmitt fram hér
á landi um helgina og Ævar segir
sigurvegarann í ár, Norðmanninn
Kurt Aust vel að Glerlyklinum
kominn, þó hann hafi vitaskuld
haldið með okkar manni Viktori
Arnari Ingólfssyni. „Það voru
reyndar nokkrar bækur sem
erfitt var að gera upp á milli, en
það er ekkert upp á það að klaga
að Aust hafi hreppt hnossið,“
bætti Ævar við. Sjálfur situr hann
sveittur við skriftir um þessar
mundir, en hann vinnur að nýrri
skáldsögu sem hann stefnir á að
koma út fyrir jól. Síðast sendi
hann frá sér reyfarann Skítadjobb
fyrir jólin 2002, sem hlaut góðar
viðtökur bæði gagnrýnenda og
almennings. ■
„Verð vonandi hafður upp á punt“
Landbúnaðarnefnd mætti í Val-höll til galaveislu um helgina í
boði Sjálfstæðisflokksins. Mun
þetta vera í
röð matar-
boða sem
Sjálfstæðis-
flokkurinn
stendur fyr-
ir og sást
meðal ann-
ars til nefnd-
armanna
sjávarút-
vegsnefndar
eftir gott boð í síðustu viku. Að
sjálfsögðu var Guðni Ágústsson
mættur og var nokkuð skemmti-
legur að því Fréttablaðið frétti.
Ekki er vitað hvort boðið var upp
á fisk í veislu sjávarútvegsnefnd-
ar en að minnsta kosti þótti við
hæfi að bjóða landbúnaðarnefnd
upp á hið íslenska lambakjöt og
hefur Guðni eflaust sagt að það
væri nú gott, íslenska lambið.
Þó svo Hrókurinn hafi hætt aðvera keppnisfélag, þá leggur
það ekki upp laupana eins og
fram kemur fyrr í blaðinu. Nú
eru þeir búnir að breyta vefsíð-
unni hrokurinn.is, þannig að hún
er orðin að allsherjarvefsvæði
fyrir risaskákmaraþon sem
Hrafn Jökulsson æltar að etja
gegn fjölmörgum Íslendingum í
Smáralind næsta föstudag. Ætl-
unin er að tefla í 30 klukkustund-
ir gegn allt að 200 áskorendum.
Fjölmargir áskorendur hafa
skráð sig, meðal annars má finna
nöfn Andreu Gylfadóttur og
Ladda þeirra á meðal.
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Kristinn H. Gunnarsson.
Jarno Trulli.
George Bush.
TÍMAMÓT
ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON,
■ forseti Félags norrænna
glæpasagnahöfunda.
ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON
Vonar að nýja embættið kosti
sig ekki of miklar annir.
Lárétt: 1hali,5ull,6sr, 7gt, 8ske,9
ikon,10um,12ort, 13lóm,15aa,16
eril,18gæfi.
Lóðrétt: 1 hugguleg,2alt,3ll,4prentaði,
6skora,8sko,11mór, 14mig,17læ.
■ FÓLK Í FRÉTTUM
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4
Lárétt: 1 tagl, 5 reyfi, 6 öfug röð, 7
skammstöfun, 8 gerast, 9 helgimynd, 10
varðandi, 12 samið, 13 fugl, 15 tveir eins,
16 gestagang, 18 spaki.
Lóðrétt: 1 vel útlítandi, 2 rödd, 3 tveir
eins, 4 gaf út lesefni, 6 rauf, 8 sjáðu til,
11 eldsneyti, 14 flugvélategund, 17 svik.
Lausn.