Fréttablaðið - 26.05.2004, Síða 1
● unnu framara 2–0
Landsbankadeild karla:
▲
SÍÐA 29
Fyrsti sigur
Skagamanna
● til að velja sér listafólk á listahátíð
Jónas Ingimundarson:
▲
SÍÐA 32
Fékk frjálsar
hendur
● og sá glitta í michael moore
Ísleifur B. Þórhallsson:
▲
SÍÐA 38
Skrapp til Cannes
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MIÐVIKUDAGUR
ÞEKKINGARSETUR Á LANDS-
BYGGÐINNI Á fundi fræðasetra Háskóla
Íslands í dag verður gerð grein fyrir starfsemi
fræðasetra Háskóla Íslands og mögulegu
framlagi þeirra til menntunar, rannsókna og
byggðaþróunar, flutt verða erindi um byggða-
þróun á Írlandi og þátt háskóla í byggðaþróun
á Íslandi. Fundurinn fer fram í Hátíðarsal há-
skólans í dag og hefst hann kl. kl. 13.30.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA BJARTVIÐRI Það er blíð-
skaparveður í kortunum. Léttskýj-
að norðan og austan til annars skýjað
með köflum. Hlýtt í veðri. Sjá síðu 6.
26. maí 2004 – 143. tölublað – 4. árgangur
KERFINU LOKAÐ Sátt náðist í gærkvöld
um svokallað sóknardagafrumvarp. Sóknar-
dagakerfinu verður lokað eftir tvö ár og sókn-
arbátar settir í kvótakerfi. Til skiptanna koma
9.500 tonn. Sjá síðu 2
KB Í BARÁTTU Í BRETLANDI KB
banki fjármagnar fjárfesta sem eiga í harðri
baráttu um yfirtöku á bresku verslunarkeðj-
unni Londis. Þeir vilja kaupa Londis fyrir átta
milljarða króna. Fyrir liggur tilboð írskrar
keðju í Londis. Sjá síðu 4
FLOKKUR ALLRA Sjálfstæðisflokkurinn
er ekki flokkur sem styður fáa, stóra og sterka
sem nota afl sitt og auð til að troða miskunn-
arlaust á öðrum, segir Davíð Oddsson. Sjálf-
stæðisflokkurinn fagnaði 75 ára afmæli á
Nordica hóteli í gær. Sjá síðu 6
ÓÞRIFNAÐUR Á SUNDSTÖÐUM
Þeim dæmum fjölgar erlendis þar sem tilkynnt
er um örverur á sundstöðum sem orðnar eru
ónæmar fyrir klór. Ekkert slíkt dæmi þekkist hér
á landi en óþrifnaður margra getur ýtt undir
þessa þróun. Sjá síðu 8
59%74%
Kvikmyndir 34
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 26
Sjónvarp 36
Gunnar Jónsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Bruðlar lítið
● fjármál o.fl.
VÍSINDI Skaftáreldar kostuðu
meira en tíu þúsund Breta lífið,
að því er fram kemur í nýrri
rannsókn fræðimanna við há-
skólann í Cambridge. Hópur
fræðimanna fór yfir veðurfars-
lýsingar, kirkjubækur og aðrar
samtímaheimildir og komst að
þeirri niðurstöðu að eitrað loft
frá Skaftáreldum hefði orðið til
að hækka mjög dánartíðni í aust-
urhluta Englands.
Vísindamönnunum telst svo til
að Skaftáreldar hafi kostað allt að
11.500 Breta lífið, að því er greint
er frá á vísindavef BBC. Það eru
fleiri en þeir níu þúsund Íslend-
ingar sem létu lífið sökum móðu-
harðinda sem fylgdu í kjölfar
Skaftárelda. „Það virðist eitthvað
hafa verið í gangi í Englandi og
Evrópu meðan öflugustu eldgosin
stóðu yfir,“ sagði Claire Witham,
einn rannsakenda, við BBC.
Eldgosið hófst 8. júní 1783 og
stóð í átta mánuði áður en því
lauk. Að sögn bresku fræði-
mannanna létust flestir Bret-
anna sem dóu af völdum eitur-
efna frá Lakagígum í ársbyrjun
1784. ■
Skaftáreldar mannskæðir í Bretlandi samkvæmt nýrri rannsókn:
Fleiri Bretar létust en Íslendingar
Ákvörðunar forseta
Íslands beðið
Varaforseti Alþingis og skrifstofustjóri settu nöfn sín á fjölmiðlafrumvarpið í gær. Frumvarpið
bíður staðfestingar forseta Íslands. Undirskriftir tæplega 32 þúsund Íslendinga voru afhentar
forseta í gær þar sem skorað er á hann að synja staðfestingu.
ALÞINGI Guðmundur Árni Stefáns-
son, fyrsti varaforseti Alþingis,
og Friðrik Ólafsson skrifstofu-
stjóri skrifuðu í gærmorgun und-
ir lög um eignarhald á fjölmiðl-
um. Guðmundur Árni skrifaði
undir lögin í fjarveru Halldórs
Blöndal, forseta Alþingis.
Að undirritun lokinni var laga-
skjalið sent forsætisráðuneytinu,
en ekki fengust upplýsingar í gær
um hvenær lögin verða færð
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta
Íslands, til staðfestingar.
Listar með nöfnum 31.752
kosningabærra manna voru af-
hentir forsetaskrifstofunni í gær
en þar er skorað á forseta Íslands
að staðfesta ekki fjölmiðlalögin.
Söfnun undirskrifta stendur enn
yfir og seint í gærkvöld nálgaðist
fjöldi áskorenda 34 þúsund.
Davíð Oddsson forsætisráðh-
erra sagði í fjölmiðlum í gær að
hann ætti ekki von á öðru en að
forsetinn staðfesti lögin.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins telja þó fjölmargir þingmenn,
bæði stjórnar og stjórnarand-
stöðu, að Ólafur Ragnar Grímsson
muni brjóta blað í sögu lýðveldis-
ins og verða fyrsti forseti Íslands
til að nýta málskotsréttinn.
Þess eru nokkur dæmi að skor-
að hafi verið á forseta að synja
staðfestingu laga og skjóta mál-
um til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Sveinn Björnsson staðfesti Kefla-
víkursamninginn 1946 þótt skor-
að hefði verið á hann að gera það
ekki. Sama gerði Ásgeir Ásgeirs-
son árið 1966 þegar álsamningar
voru til umfjöllunar. Árið 1993
staðfesti Vigdís Finnbogadóttir
lög um EES-samninginn þrátt fyr-
ir að henni bærust áskoranir 30
þúsund manns um að hafna lögun-
um. Ólafur Ragnar Grímsson,
sem setið hefur á Bessastöðum
frá árinu 1996, hefur tvívegis
fengið áskoranir frá kjósendum
um að synja staðfestingu laga,
annars vegar um Kárahnjúka-
virkjun og hins vegar um skerð-
ingu örorkulífeyris vegna tekna
maka öryrkja.
Ákvörðunar Ólafs Ragnars
Grímssonar í fjölmiðlamálinu er
því beðið með nokkurri eftir-
væntingu. ■
PIXIES Í KAPLAKRIKA Frank Black, söngvari Pixies, var í miklum ham á tónleikum hljómsveitarinnar í gærkvöld. Gríðarleg stemning
var á tónleikunum og fannst gestum að klukkan hefði færst aftur um fimmtán ár. Sveitin leikur aftur í Kaplakrika í kvöld.
Framsókn:
Flokkadrættir
og óvissa
STJÓRNMÁL Stjórn þingflokks
Framsóknarflokksins ákvað að
taka Kristin H. Gunnarsson og
Jónínu Bjartmarz út af mæl-
endaskrá í eldhúsdagsumræð-
um í fyrrakvöld, en samkvæmt
hefð var komið að þeim að tala
við umræðurnar.
Í þeirra stað töluðu Halldór
Ásgrímsson, formaður flokks-
ins, og Árni Magnússon félags-
málaráðherra fyrir hönd flokks-
ins, auk Valgerðar Sverrisdótt-
ur, viðskipta- og iðnaðarráð-
herra. Heimildir Fréttablaðsins
innan þingflokks Framsóknar-
flokksins segja að ákvörðun
stjórnar þingflokksins endur-
spegli flokkadrætti innan
flokksins.
Steingrímur Hermannsson,
fyrrverandi formaður Fram-
sóknarflokksins og forsætis-
ráðherra, segist í samtali við
Fréttablaðið óttast að fram-
undan séu erfiðir tíma hjá
flokknum. “Stundum grær um
heilt, stundum ekki,” segir
Steingrímur.
Sjá baksviðs á síðu 18-19
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
LAKAGÍGAR
Afleiðingar Skaftárelda árið 1783 til 1784
voru gríðarlegar um alla Evrópu.