Fréttablaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S E G J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G A S Í M I N N E R 550 5000 www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
Brosandi
hraðahindrun
Fólk er svo misjafnt. Sumir lendaaldrei í neinu, aðrir eru enda-
laust í vanda. Það kemur fyrir allra
vandaðasta fólk, sem má ekki vamm
sitt vita. Og svo er það svo merki-
legt að þeir sem rata oftast í sjálf-
heldu virðast svo saklausir og mein-
lausir. Gott fólk. Einn hafði ráðið sig
til starfa í sveitahéraði í Danmörku.
Vanur sveitastörfum varð hann
hvers manns hugljúfi. Vann vel og
kunni sig. Gekk meira að segja í
augun á dömunum. Var feiminn en
var farinn að gefa þeim auga. Og
þær honum.
ÞAÐ var sólskin og veður eins og best
verður á kosið. Hann var á traktorn-
um, ekki neinum Farmal Cub. Nei, á
stórum Ford, skjannabláum. Með
stórri kerru þar sem heybaggar voru í
stórum stæðum. Til að nýta ferðina
sem best var félaginn með þrjá bagga
á kló fremst á traktornum. Hann var
svo aldeilis lánsamur, að hann hélt, að
þurfa að aka í gegnum þorpið mitt.
Fólk var á gangi í sólskininu. Líka
sæta stelpan sem hafði gefið honum
hýrt auga. Hann sá hana og hún hann.
Hann hætti að horfa fram. Horfði bara
á hana.
ÞAÐ hefði hann ekki átt að gera. Þó
að umferðin hafi ekki verið mikil voru
samt hættur fram undan. Þar á meðal
hraðahindrun. Ekki stór, en hindrun
samt. Hann gleymdi stað og stund.
Horfði dreyminn á stelpuna og hún á
hann, svo fannst honum allavega. Var
viss um að hann tæki sig vel út á
hlöðnum og gljáandi traktornum. Það
styttist í hraðahindrunina. Hún brosti
og hann brosti. Honum hitnaði. Spenn-
an jókst.
ÞAÐ var fleira að gerast. Með ótrú-
legum hávaða og hamagangi hentist
hastur traktorinn yfir hraðahindrun-
ina og kerran líka. Baggarnir á klón-
um hrundu af og traktorinn fór ekki
aðeins yfir hraðahindrunina heldur
líka baggana með svo miklum látum
að fólk hentist út úr húsum og sund-
um og margmenni safnaðist saman
þar sem traktorinn hafði stöðvast.
Framöxullinn brotinn, heybaggar
um allt og fólk óttaðist að særður
traktorsstjórinn væri slasaður. Hann
var það ekki. Ekki líkamlega. Ótta-
sleginn leit hann á allt fólkið. Sá
ekki andlit hennar. Hvernig sem
hann leitaði. Sá hana aldrei meir.
Sem betur fer. ■
BAKÞANKAR
SIGURJÓNS M.
EGILSSONAR