Fréttablaðið - 27.05.2004, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 27. maí 2004
Ræðukeppni Breiðholtsskól-anna 2004 var haldin nú í maí.
Það var ræðulið Fellaskóla sem
bar sigur úr býtum þetta árið.
Liðið skipuðu Hreiðar Már Árna-
son og Sigurður Björn Gunnars-
son sem voru liðsstjórar, Lilja Rós
Sigurðardóttir sem var frum-
mælandi, Gabriella Unnur Krist-
jánsdóttir meðmælandi og Sandra
Dögg Vignisdóttir stuðnings-
maður. Þjálfari liðsins var Atli
Bollason.
Trausti Jónsson, starfsmaður
ÍTR, afhenti Söndru Dögg bikar
en hún var þrefaldur ræðumaður
keppninnar. Á myndinni eru
einnig skólastjórar Fellaskóla,
Hólmfríður G. Guðjónsdóttir og
Guðrún Fanney Óskarsdóttir, sem
færðu nemendum rósir, og félags-
starfskennari skólans, Ásta Svav-
arsdóttir. ■
Ræðulið
Breiðholts
■ NÝJAR BÆKUR
RÆÐULIÐ FELLASKÓLA ÁSAMT SKÓLASTJÓRUM OG KENNARA
Sandra Dögg Vignisdóttir, sem er fyrir miðju myndarinnar, varð þrefaldur ræðumaður
keppninnar.
HRAPANDI JÖRÐ Hrapandi jörð
eftir Úlfar Þormóðsson er nú
komin út í kilju
hjá Almenna
bókafélaginu.
Tyrkjaránið,
ferðin suður í
Barbaríið og
nýtt líf í fram-
andi heimi er
meginviðfangs-
efni skáldsög-
unnar. Fylgst
er með afdrif-
um nokkurra
sögupersóna sem kippt er út úr
íslensku brauðstriti og kastað inn
í óvissu, myrkur og þjáningar.
SVARTIR ENGLAR Spennusagan
Svartir englar eftir Ævar Örn
Jósepsson er nú komin út í kilju,
en bókin kom út hjá Almenna
bókafélaginu á síðasta ári. Kona
hverfur sporlaust og óvenju um-
fangsmikilli lögreglurannsókn er
strax hrundið af stað. Fyrr en
varir teygir rannsóknin anga sína
bak við tjöldin í
stjórnsýslunni,
inn í leður-
klædd skúma-
skot viðskipta-
lífsins og napr-
an veruleika
hinna verst
settu í sam-
félaginu, eins
og segir í
fréttatilkynningu.
BÓKSALINN Í KABÚL Bóksalinn í
Kabúl eftir norsku blaðakonuna
Åsne Seierstad er nú komin út í
kilju hjá Máli og menningu. Vorið
eftir fall tali-
banastjórnarinn-
ar í Afganistan
dvaldi Åsne
Seierstad hjá
Kahn-fjölskyld-
unni í Kabúl.
Bóksalinn í Kab-
úl er áhrifamikil
lýsing hennar á
fjölskyldu sem
leitar að tilveru í hinu nýja
Afganistan og beinir jafnframt
athyglinni að togstreitunni milli
vestrænna lífshátta og hefðbund-
inna gilda og vandamálunum
henni samfara.
HLJÓÐBÆKUR Barnahljóðbækur
Dimma hefur gefið út bækurnar
Engill í Vesturbænum eftir Krist-
ínu Steinsdóttur, Snuðra og Tuðra
eftir Iðunni Steinsdóttir og Blóð
og hunang eftir Aðalstein Ásberg
Sigurðsson sem hljóðbækur. Með
hverja hljóðbók er það höfundur
sem les.
©
D
IS
N
EY
Taktu
galdr
apróf
.... á h
eimasíð
unni
www
.klubb
ar.is
og fin
ndu út
hvort
þú er
t
norn e
ða dís
eða h
vaða
stjör
nu þú
tilheyr
ir.
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Hringdu strax í síma 522 2020
eða skráðu þig á www.klubbar.is.
Óvæntur fylgihlutur
fylgir með hverri mánaðarsendingu
Galdraskraut að gjöf
með annarri sendingu ef þú svarar
innan 10 daga
Fyrstu tvö blöðin á verði eins
690 kr.
fyrir tvö blöð
Göldrótt áskriftartilboð
að myndasögublaði sem slegið
hefur í gegn um allan heim: