Fréttablaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S E G J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G A S Í M I N N E R 550 5000
Þarna náði ég þér kæri les-andi! Ha ha! Þú ert að lesa
textann minn. Ég hef eitt orð á
blað og þau fylla á þér höfuð-
kúpuna, hertaka stjórnstöðv-
arnar svo nú stendur þú yfir
blaðinu lamaður, viljalaus og
bíður eftir fyrirmælum! Ha
ha! Þetta er svo auðvelt. Þetta
er svo grátlega auðvelt. Geisp-
aðu lesandi! Þarna náði ég þér.
Þú ert strengjabrúða!
HA HA! Ég finn völdin hel-
taka mig. Núna, akkúrat núna
klukkan 10 á laugardags-
morgni hef ég fullkomið vald
yfir huga og vilja 50.000 Ís-
lendinga! Þar á meðal þínum!
Ég get skipt um skoðun í þér
eins og ég fjarstýri sjónvarp-
inu mínu! Og það á sama tíma
og ég er sjálfur STEIN-
SOFANDI!!!
STRENGJABRÚÐA! Þú trú-
ir öllu sem ég segi! Ha! Ha!
Farðu í stríð! Virkjaðu!
Hlauptu! Ekki hlaupa! Kauptu
Bónus pylsur! X-B er flokkur
unga fólksins! Beygðu þig! Það
er hryðjuverkamaður í kústa-
skápnum! Ha ha! Fyrsti apríl!
Þú trúðir mér! Þú beygðir þig!
Viðurkenndu það! Úff hvað
þetta er hrikalega auðvelt.
Þetta minnir mig á brandara:
Hvað er vitlausara en lesandi?
Svar: Hlustandi? NEI, KJÓS-
ANDI!
Ó NEI! Pistillinn er á enda.
Ég er að missa völdin kæri les-
andi! Nú ætla ég að nota tæki-
færið! Nú ætla ég að æsa upp
þjóðina! Nú blæs ég í herlúð-
urinn og efni til þjóðarupp-
reisnar: Góðir landsmenn!
Þetta gengur ekki lengur! Ráð-
ríkið má ekki vara lengur!
Rífðu löppina undan eldhús-
skollinum, tendraðu hana sem
blys og stormaðu í bæinn! Nú
er ögurstundin runnin upp!
Allah er máttugur!
NEI NEI! Ekki fara! Lestu
meira! Ég hef völdin hérna á
baksíðunni, ég stjórna viljan-
um. Þetta er minn eigin leið-
ari! FARIÐ ÚR NÆRBUXUN-
UM OG HLAUPIÐ KRINGUM
HÚSIÐ! Ó nei ég á bara örfá
orð eftir. Völdin eru að gufa
upp! Þú þarna lesandi ekki
fara! Ekki láta stjórna þér!
Það eru Framsóknarmenn í
skúmaskotunum! Stopp! Hvert
ertu að fara! Ekki fara! Lestu
mig aftur!
Þarna náði ég
þér!
ORUST stóll
GRUNDSUND blómakarfa 13 sm
Sumargleði 29/04–17/06
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
24
81
3
05
.2
00
4
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
Borðleggjandi sumar
FORÖN sessa
TULLERÖ borð, bekkur og tveir stólar
18.900,-
990,-
ORUST bekkur
12.900,-
HARPÖ legubekkur
9.900,-
SUNDÖ blómapottur 25 sm 795,-
SUNDÖ undirskál 25 sm 290,-
MYNTA blómapottur
h 67 sm, Ø 30 sm, ýmsir litir
590,-
4.990,-
9.900,-
www.finna.is
ANDRA SNÆS MAGNASONAR
BAKÞANKAR