Fréttablaðið - 02.06.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MIÐVIKUDAGUR
TOPPSLAGUR Í KVÖLD Fjórðu um-
ferð Landsbankadeildar karla lýkur í kvöld
með uppgjöri toppliðanna Fylkis og
Keflavíkur. Leikurinn fer fram á Fylkisvelli
og hefst kl. 20.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
LÉTTIR HELDUR TIL í höfuðborginni
og sunnan til þegar líður á daginn. Rign-
ing eða skúrir á Norðurlandi og Vestfjörð-
um. Áfram milt. Sjá síðu 6
2. júní 2004 – 148. tölublað – 4. árgangur
● fjármál ● heilsa
Verstu kaupin bíll á
100% láni
Auðunn Blöndal:
● fyrsti kaflinn kemur út á breiðskífu
Er einn í hljóm-
sveitinni Earth Affair
Gunnlaugur Briem:
▲
SÍÐA 25
VAXTAHÆKKUN
Seðlabankinn horfir framhjá hækkandi
eldsneytisverði við vaxtaákvarðanir en
hækkar engu að síður vexti og boðar fleiri
slík skref á næstunni. Sjá síðu 2
HREFNUVEIÐAR Í SUMAR
Heimilt verður að veiða 25 hrefnur í sumar
samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðherra í
gær. Alls voru 36 hrefnur veiddar á síðasta
ári samkvæmt vísindaáætlun. Sjá síðu 2
NÝR FORSETI ÍRAKS
Maðurinn sem meirihluti framkvæmdaráðs
Íraks vildi sem næsta forseta landsins var
útnefndur forseti eftir að maðurinn sem
Bandaríkjamenn vildu í embættið hafnaði
því. Sjá síðu 4
STAÐA RÚV
Sérfræðingur í fjölmiðlarétti segir að al-
menningsútvarp á borð við Ríkisútvarpið
hafi sérstakar skyldur umfram einkarekna
ljósvakamiðla. Sjá síðu 12
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 26
Tónlist 24
Leikhús 24
Myndlist 24
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
PAKISTAN, AP Mótmælendur og lög-
reglumenn skiptust á skotum í
Karachi í gær. Þá fylgdu þúsund-
ir sjíamúslima fórnarlömbum
sjálfsmorðsárásar á mosku síð-
asta mánudag til grafar. 20
manns létust í þeirri árás, sem
var hefndaraðgerð vegna morðs-
ins á áhrifamiklum súnníklerki
daginn áður.
Nokkur hundruð þeirra sem
voru við útförina grýttu lögreglu-
menn, sem svöruðu með því að
beita táragasi. Uppþotin jukust þó
því kveikt var í rútum, verslunum
og skrifstofuhúsnæði nálægt
moskunni þar sem tilræðið átti
sér stað. Í kjölfarið skiptust mót-
mælendur og lögregla á skotum
en ekki var vitað hvort einhverjir
hefðu særst í þeim átökum. Ann-
ars staðar í borginni var kveikt í
skyndibitastöðum, bensínstöðvum
og verslunum.
„Við höfum ákveðið að taka
fólk engum vettlingatökum. Ef
einhver fer út á götur til að valda
usla tökum við á málinu af hörku,“
sagði Asad Ashraf Malik, yfir-
maður lögreglunnar í Karachi. ■
Upp úr sauð í Karachi eftir víg klerks:
Allt í hers höndum
MANNDRÁP Bróðir stúlkunnar sem
lést af völdum stungusára á heim-
ili sínu í vesturbæ Reykjavíkur
aðfaranótt mánudags er á bata-
vegi og kominn af gjörgæslu.
Móðir barnanna,
sem er grunuð um
að hafa orðið dótt-
ur sinni að bana
og stórslasað son
sinn, var yfir-
heyrð í gær. Hún
er talin hafa lagt
til barnanna með
hnífi á meðan þau
sváfu. Móðirin er
úr lífshættu og
komin af gjörgæslu en talið er að
hún hafi reynt að svipta sig lífi
eftir að hafa orðið dóttur sinni að
bana.
Bæði móðirin og drengurinn
voru yfirheyrð í gær og má búast
við að þau verði yfirheyrð frekar
næstu daga. Móðurinni hefur
verið skipaður verjandi en hún
játaði ekki verknaðinn við yfir-
heyrslur í gær. Þá hefur drengur-
inn fengið réttargæslumann.
Hörður Jóhannesson, yfir-
lögregluþjónn í Reykjavík, segir
það vilja lögreglunnar að ljúka
rannsókninni sem fyrst. Konan
var á mánudag úrskurðuð í
gæsluvarðhald til 14. júní næst-
komandi og gæta lögreglumenn
hennar á sjúkrahúsinu. Henni
var jafnframt gert að sæta geð-
rannsókn.
Heimildir blaðsins herma að
konan hafi átt við geðræn vanda-
mál að stríða í einhvern tíma en
ekki er talið að hún hafi verið
undir áhrifum vímuefna þegar
hinir hörmulegu atburðir áttu sér
stað.
„Núverandi skrifstofa Barna-
verndar Reykjavíkur var stofnuð
fyrsta september árið 2000. Mál-
efni þessara barna hafa ekki verið
til umfjöllunar hjá skrifstofunni, í
það minnsta ekki frá þeim tíma, “
segir Guðrún Frímannsdóttir,
framkvæmdastjóri Barnaverndar
Reykjavíkur.
Drengurinn náði að komast al-
varlega slasaður út af heimili sínu
og heim til vinar síns og móður
hans við Kaplaskjólsveg. Lögregl-
an var kvödd á staðinn og fór í
framhaldinu í kjallaraíbúð fjöl-
skyldunnar við Hagamel. Stúlkan
var þá úrskurðuð látin.
Stúlkan sem lést hét Guðný
Hödd Hildardóttir, til heimilis að
Hagamel 46. Hún var fædd 29.
desember árið 1992.
hrs@frettabladid.is
NÝ RÍKISSTJÓRN ÍRAKS Nýskipuðum forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi, var fagnað er hann las upp nöfn á nýjum stjórnarliðum í
Bagdad í gær. Bandaríkjamenn lýstu yfir ánægju sinni með skipun nýrrar ríkisstjórnar í Írak og sögðust telja að hún myndi auka líkurnar
á því að Sameinuðu þjóðirnar kæmust að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig tryggja megi stöðugleika í landinu. Sjá síðu 4.
Lög um fjölmiðla:
Forseta af-
hent lögin
FJÖLMIÐLALÖG Lög um eignarhald á
fjölmiðlum voru afhent forseta
Íslands til samþykkis seinnipart-
inn í gær. Þær upplýsingar feng-
ust hjá forsetaskrifstofunni að
lögin hefðu ekki verið afgreidd í
gær. Ekki fékkst svar við því
hvort forsetinn myndi undirrita
lögin í dag.
Lögin voru samþykkt á Alþingi
á mánudag í síðustu viku og voru
afhent forsætisráðherra til undir-
ritunar næsta dag. Samkvæmt
stjórnarskrá skal samþykkja lög
innan tveggja vikna frá því að þau
hafa verið afgreidd frá Alþingi.
Um þrjátíu þúsund manns hafa
skrifað undir áskorun til forseta
um að undirrita ekki lögin. ■
Játning móðurinnar
liggur ekki fyrir
Konan sem grunuð er um að hafa banað dóttur sinni og stórslasað son sinn aðfaranótt mánudags
var yfirheyrð í gær. Játning liggur ekki fyrir. Móðirin og drengurinn eru komin úr gjörgæslu.
KVEIKT Í BÍLUM OG BYGGINGUM
Þúsundir fylgdu fórnarlömbum sjálfs-
morðsárásar til grafar og hundruð gengu
berserksgang.
„Málefni
þessara
barna hafa
ekki verið til
umfjöllunar
hjá skrifstof-
unni.
M
YN
D
/A
P