Fréttablaðið - 06.06.2004, Blaðsíða 1
▲
Bragi
bóksali
SÍÐUR 18 & 19
Íslenskir herramenn
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 36
Tónlist 35
Leikhús 35
Myndlist 35
Íþróttir 28
Sjónvarp 34
SUNNUDAGUR
KEPPT UM HM-SÆTI Karlalandslið-
ið í handbolta etur kappi við ítalska
handboltalandsliðið í Íþróttahúsinu við
Austurberg í Breiðholti í kvöld. Þetta er
seinni leikurinn í viðureign þjóðanna um
laust sæti á HM í Túnis á næsta ári.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
6. júní 2004 – 152. tölublað – 4. árgangur
Roger Hargreaves skapaði hina óviðjafnanlegu Herramenn. Tólf bækur
hafa komið út í íslenskri þýðingu og fleiri eru á leiðinni.
BJART MEÐ KÖFLUM í borginni
og einnig víða vestan- og norðanlands.
Skýjað suðaustan og austan til og stöku
skúrir. Sjá síðu 6.
SJÓMANNADAGURINN Skipin sem liggja við bryggju í Reykjavíkurhöfn draga fána að hún í tilefni Sjómannadagsins og Hátíðar hafsins
í Reykjavík. Hvalaskoðunarskip eru í forgrunni en fyrsta hrefnan sem veidd er á árinu veiddist á föstudag.
RUSL SKYGGIR Á FJÖLLIN Íbúar í
nágrenni Sorpstöðvar Suðurlands kvarta
undan því að sorphaugur stöðvarinnar
stækki óðum. Þeir segja að hann sé farinn
að byrgja fjallasýn. Sjá síðu 4
STJÓRNARANDSTAÐAN VILL
SAMRÁÐ Formenn stjórnarandstöðu-
flokkanna hafa ritað formönnum stjórnar-
flokkanna bréf. Þeir fara þess á leit að sam-
ráð verði haft við þá um undirbúning þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Sjá síðu 4
BJARGAÐ ÚR SJÁVARHÁSKA Þrem-
ur mönnum var bjargað eftir að leki kom að
netabátnum Gústa í Papey. Togarinn Árbak-
ur var kominn að Gústa tíu mínútum eftir
að neyðarkall var sent út og bjargaði áhöfn
hans skipverjunum þremur. Sjá síðu 6
ÚRSLITARIMMA Í DAG Ísraelska
stjórnin greiðir í dag atkvæði um framtíð
landnemabyggða á Gaza. Harðar deilur eru
innan stjórnarinnar um hvort eigi að leggja
þær niður eða ekki og hafa tveir ráðherrar
verið reknir úr stjórninni. Sjá síðu 9
SÍÐUR 22 og 23
SÍÐA 20
▲
▲
MÁLSKOT Halldór Ásgrímsson, for-
maður Framsóknarflokksins, seg-
ist ekki vita betur en að Davíð
Oddsson forsætisráðherra hafi
spurt formenn allra stjórnmála-
flokka að því hvort þeir væru til í
að taka þátt í því að hafin yrði
endurskoðun stjórnarskrárinnar.
„Að minnsta kosti var ég
spurður. Ég svaraði því játandi, að
Framsóknarflokkurinn væri tilbú-
inn til þess að taka þátt í því. For-
sætisráðherra tók það fram að
honum fyndist rétt að ákvæðin er
vörðuðu forsetann væru inni í
þeirri endurskoðun,“ segir Hall-
dór.
Fréttablaðið hafði samband við
formenn hinna stjórnmálaflokk-
anna. Enginn þeirra kannaðist við
það að forsætisráðherra hefði
rætt við þá um endurskoðun
stjórnarskrárinnar.
Halldór telur að það hafi verið
einhvern tímann síðastliðinn vet-
ur sem Davíð hafi komið að máli
við hann. Það hafi verið í kjölfar
umræðu um endurskoðun stjórn-
arskrárinnar, „annað hvort á Al-
þingi eða í Morgunblaðinu,“ að
sögn Halldórs. Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstri grænna,
bar fram fyrirspurn til forsætis-
ráðherra á Alþingi í byrjun nóv-
ember. Í svari sínu sagðist Davíð
vera „tilbúinn til samstarfs við
forustumenn stjórnmálaflokk-
anna um þessi atriði og vinnu í
framhaldi af því“.
„Það er með ólíkindum hversu
þessir menn eru smitaðir af and-
stæðu þingræðisins, það er að
segja ráðherraræðinu, sem virð-
ist ráða öllum þeirra gjörðum,“
segir Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar. „Þeir
eru bersýnilega byrjaðir á bak við
luktar dyr að ákveða sín á milli
hvernig á að breyta stjórnarskrá,“
segir hann.
sda@frettabladid.is
sjá nánar síðu 2.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Nefnd á vegum dómsmála-
ráðuneytisins hefur lagt fram
tillögu um nýjar aðferðir til
að leysa brotamál. Ungir
brotamenn eru ekki dæmdir til refsingar heldur
leita sátta til að bæta fyrir brot sín.
Sátt í stað
refsingar
Bragi Kristjónsson
fornbókasali ræðir
um bækur, lestur
og trú og skefur
ekki utan af því
þegar kemur að
stjórnmálunum.
Ronald Reagan:
Fallinn frá
WASHINGTON, AP Ronald Reagan,
fyrrum forseti Bandaríkjanna, er
látinn 93 ára að aldri.
Maðurinn sem margir hafa vilj-
að eigna endalok Kalda stríðsins
og fall Sovétríkj-
anna, lifði meira og
minna í einangrun
síðasta áratug ævi
sinnar. Hann
greindi frá því fyr-
ir tíu árum að hann
þjáðist af Alz-
heimer og dró sig
þá úr kastljósinu.
Snemma í gær
bárust fréttir af því að heilsu
Reagans hefði hrakað síðustu
daga og að endalokin væru að lík-
indum ekki langt undan. Í gær-
kvöld var svo tilkynnt að hann
væri látinn. „Löng vegferð
Ronnies hefur fært hann á þann
stað þar sem ég næ ekki lengur
sambandi við hann,“ sagði Nancy,
eiginkona hans fyrir mánuði síð-
an. Þá hafði Alzheimer-sjúkdóm-
urinn komið endanlega í veg fyrir
samskipti hans við annað fólk. ■
Ekkert samráð við
stjórnarandstöðu
Halldór Ásgrímsson taldi forsætisráðherra hafa haft samráð við formenn allra stjórnmálaflokka um
breytingu stjórnarskrár, ekki bara við sig. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna kannast ekki við það.
Opið 13-17 í dag
RONALD
REAGAN
Varð langlífastur
allra forseta.