Fréttablaðið - 09.06.2004, Blaðsíða 26
Eiginmaður minn, faðir, fóstri, tengdafaðir og afi,
HALLDÓR GUÐMUNDSSON,
fyrrv. framkvæmdastjóri,
Njarðvík,
Steinunn Gunnarsdóttir
Oddný Halldórsdóttir Valdimar Birgisson,
Dórothea Herdís Jóhannsdóttir Snæbjörn Reynisson,
barnabörn og aðrir vandamenn.
verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, föstudaginn 11. júní, kl. 14.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
GUÐJÓN M. JÓNSSON
Bifvélavirki
Barðaströnd 8, Seltjarnarnesi
verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 11. júní kl. 13:30
Hólmfríður Benediktsdóttir,
Magnús Benedikt Guðjónsson Ólöf Jóna Jónsdóttir
Ása Hrönn Magnúsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa,
ÞORBJÖRNS PÉTURSSONAR
Gullsmára 9, Kópavogi,
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Svanhvít Guðmundsdóttir
Guðrún J. Þorbjörnsdóttir, Jón Vilhjálmsson
Guðmundur Þorbjörnsson, Ingibjörg Þorfinnsdóttir
Oddrún Þorbjörnsdóttir, Gunnar Jónasson
Svanþór Þorbjörnsson, Petrína Ólafsdóttir
Katrín M. Þorbjörnsdóttir, Stefán Daði Ingólfsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Á þessum degi árið 1944 gerðiRauði herinn árás á Karelíu-
eiðið í Finnlandi. Herinn braust inn
á austanvert eiðið til að ná aftur
fyrri umráðum sínum. Samkvæmt
Moskvusamningnum frá árinu
1940 áttu Finnar að gefa eftir hluta
af suðausturhluta umráðasvæðis
síns til Sovétríkjanna, Karelíu-
eiðið, en það átti að verða hlutlaust
svæði. Til að verjast auknum yfir-
ráðum Sovétmanna leyfðu Finnar
Þjóðverjum að fara yfir land sitt til
að komast að landamærum Rúss-
lands en þetta gerðu þeir þrátt
fyrir að vera ekki í formlegu
bandalagi með Möndulveldunum.
Í kjölfar þessa unnu Finnar
aftur hluta af landsvæðinu sem
þeir höfðu gefið eftir með Moskvu-
samningnum. En eftir því sem
Þjóðverjar drógu sig meira og
meira til baka og bandamenn héldu
áfram að sprengja á Balkanskag-
anum urðu Finnar óttaslegnir og
biðluðu til Stalíns um vopnahlé.
9. júní var Rauði herinn enn og
aftur kominn til austurhluta Karel-
íuhéraðsins og Stalín var ekki í
skapi til að semja og krafðist þess
að Finnar gæfust að minnsta kosti
upp með táknrænum hætti. Finn-
land sneri sér aftur að Þjóðverjum,
sem lofuðu áframhaldandi stuðn-
ingi. Hins vegar urðu breytingar í
finnskum stjórnmálum til þess að
viðhorf til þessara mála og áhersl-
ur urðu aðrar. Finnar skrifuðu und-
ir vopnahlé sem veitti Stalín ná-
kvæmlega það sem hann vildi. Með
samningnum varð yfirráðasvæðið
sem samið var um í Moskvusamn-
ingnum árið 1940 aftur undir yfir-
ráðum Stalíns og einnig þurftu
þýsku hermennirnir að hverfa frá.
Finnar samþykktu skilmálana en
Þjóðverjar neituðu að fara. Í kjöl-
farið fór af stað mikill bardagi sem
lauk með ósigri Möndulveldanna
og Sovétmenn fengu sínu fram. ■
Rauði herinn herjar á Finnland
Nýlega var haldið EvrópuþingJunior Chamber í Lausanne í
Sviss. Á þinginu voru ýmis verð-
laun veitt og komu nokkur þeirra
íslenskum félögum JC í hlut. JCI
Vestfirðir var útnefnt sem Aðild-
arfélag ársins í Evrópu og einnig
fékk það verðlaun fyrir besta
fjáröflunarverkefni ársins í
Evrópu. Félagar úr JCI GK, þau
Sólveig Sólversdóttir, Ingimund-
ur Guðmundsson og Loftur Sig-
urðsson, lentu í öðru sæti í kapp-
ræðum og var Ingimundur valinn
ræðumaður dagsins. Karl Einars-
son varð í 3. sæti í ræðumennsku
og Arna Björk Gunnarsdóttir var
valin JC-félagi ársins í Evrópu.
„Ég var valin félagi ársins á
Íslandi á landsþinginu okkar í
fyrra fyrir vel unnin störf. Sú
umfjöllun var svo send til Evr-
ópu. Þeir hafa greinilega talið
það svo gott sem við erum að
gera hérna,“ segir Arna Björk,
sem hefur verið félagi í JC síðan
1998.
„Undanfarin ár hef ég aðal-
lega verið að leiðbeina á nám-
skeiðum og stutt nýja félaga. Á
námskeiðum hef ég verið að leið-
beina á námskeiði sem heitir
Fundarritun og verið með á leið-
toganámskeiðum, námskeiðum
um skapandi hugsun og fleiru
þess háttar.“
Mikið er fram undan hjá JC á
Íslandi til að halda áfram því
starfi sem verðlaunað var fyrir í
Sviss. Arna segir að í sumar
verði haldin ræðunámskeið fyrir
háskólafólk sem ekki má vera að
því að koma á veturna. „Með
haustinu fara svo í gang tvö stór
verkefni sem snúa að samfélags-
málum og á Menningarnótt verð-
um við með prógramm, þriðja
árið í röð.“ ■
Mikið gott starf fram undan
ARNA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR
Íslenskir JC-félagar gerðu það gott á
Evrópuþingi JC í Lausanne í Sviss.
18 9. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR
JOHNNY DEPP
Leikarinn fæddist í Kentucky í Bandaríkj-
unum fyrir 41 ári. Johnny býr í Frakklandi
ásamt konu sinni Vanessu Paradis og eiga
þau tvö börn. Venessa starfar sem leikari
og söngkona.
9. JÚNÍ
TÍMAMÓT
ARNA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR
■ Var nýlega valin JC-félagi ársins
í Evrópu.
9. JÚNÍ 1944
RAUÐI HERINN GERÐI ÁRÁS Á
KARELÍUEIÐIÐ Í FINNLANDI.
■ Herinn vildi ná aftur fyrri umráðum
sínum sem samið var um í Moskvusamn-
ingnum árið 1940.
STALÍN
Hann samdi við Finna um vopnahlé með
því skilyrði að fá umráð yfir austurhluta
Karelíuhéraðs og að Þjóðverjar héldu
frá svæðinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Það er sjálfsagt ekki á neitt fið-urfé hallað þó fullyrt sé að
Andrés Önd sé frægasta önd allra
tíma en þetta magnaða hugarfóst-
ur Walt Disney fagnar 70 ára af-
mæli sínu í dag.
A n d r é s ,
eða Donald
Duck eins
og hann
heitir á
frummál-
inu, kom
fyrst fram
á sjónarsvið-
ið þann 9. júní
1934 í teikni-
myndinni The
Wise Little Hen,
eða Skynsama
hænan. Þessi titill
er auðvitað alveg gal-
inn í ljósi þess hvernig per-
sóna Andrésar þróaðist en öll
heilbrigð skynsemi er iðulega
víðs fjarri þegar Andrés er
annars vegar.
Illskiljanlegt kvak verður
að visku
Andrés er sjálfsagt flóknasta
og dýpsta persónan í Disney-
galleríinu og gæddur miklu fleiri
mannlegum eiginleikum en hinn
leiðinlega klári Mikki Mús sem
hefur skyggt á Drésa frá fyrsta
degi. Andrésinn í
teiknimyndun-
um var lat-
ur og upp-
s t ö k k u r
slæpingi
og nán-
a s t
óskilj -
a n l e g t
kvakið í
h o n u m
þ ó t t i
e i n n a
fyndnast
í fari hans.
Það féll síðan í hlut
Carl Barks að útfæra per-
sónu Andrésar á pappír í
Andrésblöð-
u n u m
s e m
hafa
stytt
fólki á
ö l l u m
aldri stund-
ir áratugum
saman. Barks dýpkaði persónu
andarinnar geðvondu og lét hann
tala mannamál. Þá bjó Barks til
Andabæ þar sem söguhetjan gat
vitaskuld ekki lifað í lausu lofti.
Bæinn fyllti hann síðan af lit-
skrúðugum íbúum sem hafa fylgt
Andrési síðan, bæði til ánægju en
oftar til ama og óþæginda.
Fremstir í þessum flokki eru
vitaskuld litlu frændurnir hans,
þeir Rip, Rap og Rup, forríki
frændinn Jóakim Aðalönd,
kærastan Andrésína, Hábeinn,
hinn óþolandi heppni samkeppnis-
aðili Andrésar um
hylli Andrésínu, og
uppfinningamaður-
inn Georg gír-
lausi. Barks hélt
því statt og
stöðugt fram
að enga
d ý p r i
merkingu
væri að
finna í
s ö g u m
hans um
Andrés en
það er
þ ó
e k k i
h æ g t
að líta
fram hjá því að
oftast er Andrés að
takast á við vandamál og
aðstæður sem eru dæmigerðar
Síungur en geðstirð-
ur andarsteggur
AFMÆLI
ANDRÉS ÖND
■ Þessi dáði geðvonskupúki, sem án
nokkurs vafa er frægasta önd allra tíma,
fagnar 70 ára afmæli sínu í dag. Andrés
ætlar meðal annars að heimsækja Ísland
í fyrsta sinn um helgina í tilefni þessara
merku tímamóta.
ELDIST VEL
„Gisp... er ég orðinn sjötugur? Ég finn ekki
fyrir því að vera orðinn sjötugur, mér líður
eins og nýslegnum túskildingi í peninga-
geyminum hans Jóakims frænda og er
sprækur eins og lækur. Það hjálpar mér
líka góða skapið og hvað ég er óhræddur
að prófa sífellt ný störf,“ segir Andrés Önd.
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir,
tengdadóttir, systir, mágkona og frænka,
SIGRÍÐUR KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR,
Ásgarði 119, Reykjavík,
Björn Davíð Kristjánsson,
Davíð Freyr Björnsson,
Birna Fjóla Valdimarsdóttir,
Kristján Davíðsson Svanhildur Björnsdóttir,
Sigrún Halldórsdóttir Jóhann Hjaltason,
Alfreð Halldórsson Elín Sigurðardóttir,
Valdimar Halldórsson Sigríður S. Heiðarsdóttir,
og systkinabörn.
verður jarðsungin frá Bústaðarkirkju fimmtudaginn 10. júní kl. 13.30.