Fréttablaðið - 09.06.2004, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S E G J U M F R É T T I R 99 kr/skeytið.
Sendu SMS skeytið JA POPP á númerið 1900 & þú
gætir farið á tónleikana. Við sendum þér spurningu sem þú svarar
með SMS skeyti JA A, B eða C á númerið 1900.
Við sendum þér STRAX til baka númer hvað þú ert og
hvort þú hafir unnið eða ekki.
Lengi lifi
lýðræðið
Var ekki kominn tími til að viðfengjum að ganga til beinnar at-
kvæðagreiðslu um eitthvað sem
skipti máli? Reykvíkingar hafa að
vísu fengið forskot á sæluna og
greitt atkvæði um flugvöllinn í
Vatnsmýri og íbúar tiltekinna sveit-
arfélaga hafa greitt atkvæði um
hvort þeir vilji sameinast öðrum
sveitarfélögum. Að öðru leyti höfum
við Íslendingar ekki fengið að greiða
atkvæði nema um hundahald og
áfengisútsölur. Mér finnst þetta ekki
ná nokkurri átt.
FULLTRÚALÝÐRÆÐIÐ er ágætt
fyrir sinn hatt og nauðsynlegt. Við
borgararnir gætum ekki greitt at-
kvæði um alla þá hluti sem fulltrúar
okkar á þingi og í sveitarstjórnum
greiða atkvæði um því þá hefðum
við tíma fyrir fátt annað. Þess vegna
kjósum við fulltrúa okkar til að
halda á málum frá degi til dags.
Ábyrgð þeirra er mikil. Þeir eiga að
endurspegla sjónarmið þjóðarinnar,
fólksins sem valdi þá sem fulltrúa
sína og verða að gæta sín að ein-
angrast ekki og fara að lifa sjálf-
stæðu lífi úr takti við þjóðina sem
kaus þá, eins og stundum hefur
gerst.
ÞAÐ er vissulega kominn tími til að
við fáum að ganga til alvöru þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Til þess hefði átt
að koma miklu fyrr. Auðvitað hefð-
um við líka á átt að ganga til at-
kvæða um EES, virkjun við Kára-
hnjúka og öryrkjafrumvarpið. Við
vorum mörg ósátt við að gera það
ekki. Það þýðir þó ekki að við getum
aldrei gengið til þjóðaratkvæða um
neitt. Einhvern tíma hlýtur allt að
verða fyrst.
ÉG vona að þjóðaratkvæðagreiðslan
um fjölmiðlafrumvarpið sé upphafið
að því sem koma skal. Þá á ég ekki
við að við ætlum að greiða atkvæði í
hverri viku eða mánuði um allt
mögulegt heldur að þjóðaratkvæða-
greiðslan verði virkur þáttur í lýð-
ræðinu sem beitt verði af skynsemi.
Ég sé fyrir mér að Alþingi vísi sjálft
veigamiklum málum í þjóðaratkvæði
og í undantekningartilvikum, þegar
Alþingi hefur ekki borið gæfu til að
hafa tilfinningu fyrir þjóðinni, grípi
forsetinn til málskotsréttarins. Að
auki ætti tiltekinn fjöldi kosninga-
bærra manna einnig að geta krafist
þjóðaratkvæðagreiðslu. Lengi lifi
lýðræðið! ■
BAKÞANKAR
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
8
6
4
8
Gjaldeyrisglaðningur
Íslandsbanka er kominn!
Tryggðu þér áhyggjulaust frí með Íslandsbanka
• Greiðsluþjónusta – bankinn sér um reikningana á meðan þú slappar af.
• Kreditkort – ferðatryggingar og þægindi á ferðalögum erlendis.
• Netbankinn – hvar sem þú ert í heiminum.
• Stofn Sjóvá-Almennra – vertu vel tryggður heima og að heiman.
Þeir sem koma í Íslandsbanka og kaupa gjaldeyri fyrir 10.000 kr.
eða meira fá flotta tösku sem er tilvalin í fríið.
Gjaldeyrisglaðningur
Passi
Sólarvörn
Farseðill
Gjaldeyrir
Netbankinn
Adressubók
Verkjatöflu
r
Greiðsluþjó
nustan
Bitvörn
Sunddót
Kreditkort
Ferðatrygg
ing
MUNA!
Njóttu sumarfrísins og vertu með eftirfarandi þjónustu á hreinu:
SM Á A U G L Ý S I N G A S Í M I N N E R 550 5000